Morgunblaðið - 22.01.2011, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011
✝ Lind Einarsdóttirfæddist 11. júlí
1956. Hún lést á
heimili sínu í
Strangnes í Svíþjóð
28. desember 2010.
Foreldrar Lindar
voru Þorbjörg Sig-
urðardóttir, f. 4. jan-
úar 1919, d. 2. mars
1991, og Einar Kjart-
an Ólafsson, f. 11.
júní 1913, d. 20. októ-
ber 1992. Systkini
Lindar eru: Hjördís
Inga Einarsdóttir,
samfeðra, f. 30. mars 1934, Sess-
elja Ólafía, f. 21. ágúst 1938, Katr-
ín Særún, f. 6. maí 1941, Ágústa, f.
14. nóvember 1943, Sigrún, f. 10.
júní 1949, d. 28. nóvember 2004,
Gróa Sigríður, f. 31. desember
1950, Þórey, f. 1. janúar 1954, og
Ólafur Brynjólfur, f. 16. janúar
1967.
Lind giftist í júní 1980 Gunnari
Jósef Jóhannessyni, f. 1956. Börn
þeirra eru 1) Garðar, f. 7. desem-
ber 1980, kona hans
er Jara Kristín Thom-
asdóttir. Börn þeirra
eru a) Vaka, f. 18.
júní 2005, b) Katla, f.
2010. 2) Ríkey, f. 20.
mars 1991. Gunnar
og Lind skildu 1998.
Seinni maður Lindar
er Urban Bertling, f.
1. apríl 1956, þau
giftu sig 28. desem-
ber 2006.
Fyrstu árin ólst
Lind upp á Miklu-
braut 16 í Reykjavík
og gekk í Hlíðaskóla. Seinna flutti
fjölskyldan á Látraströnd 26 á Sel-
tjarnarnesi og gekk Lind þar í
grunnskóla. Lind lauk prófi frá
Ritaraskólanum og tók ýmis nám-
skeið tengd sínu starfi. Lind vann
ýmis skrifstofustörf, m.a. á Borg-
arspítalanum, Landmælingum Ís-
lands, Borgarverkfræðingi og Sím-
anum.
Útför Lindar fór fram í Svíþjóð
18. janúar 2011.
Nú er önnur systir okkar fallin
frá langt fyrir aldur fram og skilur
hún eftir sig stórt skarð í systk-
inahópnum og hjá eiginmanni,
börnum og vinum.
Linda var full af lífsþrótti og
andlegum styrk fram á síðustu
stundu. Hún lifði hamingjuríku lífi,
var stolt af börnunum sínum og
hafði unun af því að umgangast
sitt fólk. Sem persónu verður
henni best lýst þannig að hún kom
hreint fram og það var ekki vafi á
því hvaða skoðanir hún hafði. Hún
vildi hafa reglu á sínu lífi en það
kom berlega í ljós á ferðalögum að
hún var jafnan búin að skipuleggja
allt í þaula fyrirfram. Hún var vin-
ur vina sinna og talaði vel um fólk.
Linda fermdist í upphlut sem
móðir okkar erfði en hann var með
smíðaverki eftir föður hennar, Sig-
urð Daníelsson gullsmið á Eyr-
arbakka. Hún tók sig vel út á
fermingardaginn í upphlutnum,
hún var mikill fjörkálfur og seinna
um daginn sást til hennar á stökki
yfir garðveggi í hverfinu þannig að
skotthúfan og hárið sveiflaðist til
og frá í vindinum.
Linda hafði marga hæfileika, t.d.
söng hún mjög vel og tróð upp á
skemmtunum og spilaði á gítar á
sínum yngri árum.
Hún var náttúrubarn og hafði
gaman af allri útiveru. Hestar
voru í uppáhaldi hjá henni og hún
notaði hvert tækifæri til að um-
gangast þá.
Linda fór að heiman ung og
byrjaði fljótlega búskap með
Gunna mági. Það var þröngur
kostur hjá þeim fyrst en þau
keyptu litla íbúð á Öldugötunni og
bjuggu þar meðan Gunnar var í
námi. Á þessum tíma var Linda í
þremur vinnum og Gunni vann
með námi. Þau fluttu í Sörlaskjólið
þar sem þau eignuðust son sinn
Garðar. Á þessum árum náði
Linda að mennta sig með vinnu.
Seinna fluttist fjölskyldan í ein-
býli í Grafarvogi þar sem Ríkey
kom til sögunnar. Einar faðir okk-
ar bjó hjá þeim síðasta árið sem
hann lifði og undi hag sínum vel.
Linda kynnist Urban fyrir fimm
árum og kom hann með jákvæða
strauma inn í líf hennar. Það var
ekki síst fyrir hans sakir og
barnanna sem henni tókst að eiga
við veikindi sín af mikilli þraut-
seigju og æðruleysi.
Það er sorglegt að hugsa til þess
að hún dó sama dag og þau áttu
fjögurra ára brúðkaupsafmæli.
Þau áttu fallegt heimili í Svíþjóð
og sumarhús í Finnlandi. Þau ferð-
uðust víða og áttu góðar stundir
saman. Urban stóð eins og klettur
við hlið hennar í veikindunum og
veitti henni mikinn stuðning og
von um bata í erfiðri viðureign.
Það var gott að vita af henni í góð-
um höndum og við munum æv-
inlega vera honum þakklát fyrir.
Í nóvember var stór dagur í fjöl-
skyldunni, þá gekk Garðar sonur
hennar að eiga Jöru og við það til-
efni var Katla, yngra barnabarn
Lindu og Gunnars, skírð. Linda
geislaði af gleði og stolti af börn-
um sínum sem bæði hafa erft
dugnað og eljusemi foreldra sinna.
Linda sagði stolt frá því hvað
börnin hennar stóðu sig vel í skóla.
Við vitum að helsta ósk hennar
hefði verið að geta verið áfram
með sínu fólki og haldið áfram að
styðja við það. Við kveðjum hana
systur okkar með mikilli sorg,
trega og söknuði.
Þórey Einarsdóttir og Ólafur
Brynjólfur Einarsson.
Nú er þessu stríði lokið. Það
voru fyrstu orðin sem ég fann til
að segja við hann Urban, þar sem
við sátum við dánarbeð systur
minnar Lindar Einarsdóttur. Svo
ótrúlega sem hún hefur barist við
krabbameinið í 2½ ár og allt til
síðasta dags trúði hún á bata. Hún
var næstyngst í stórum systkina-
hóp og ólst upp við gott atlæti og
væntumþykju. Ég minnist þess
hvernig hún knúsaði hana mömmu
og reyndi slíkt hið sama við hann
pabba. Linda hafði snemma mik-
inn áhuga á dýrum og fékk að fara
í sveitina til Dísu systur á Snæ-
fellsnesinu. 12 ára flutti Linda með
fjölskyldunni á Seltjarnarnesið og
þar eignaðist hún marga nýja vini
sem hafa fylgt henni gegnum lífið.
Svo stækkaði þessi fjörkálfur og
fór út í heim. Hún fór sem au pair
til London og þá var hún komin
með kærasta, hann Gunna sinn.
Þau gengu í hjónaband og eiga
saman þau Garðar og Ríkeyju.
Þau skildu árið 1997 en þrátt fyrir
það voru þau alltaf góðir vinir og
samtaka með börnin sín. Seinni
maður Lindar er Urban Bertling
sem hún kynntist 2. desember
2005 á Íslandi. Hún flutti til hans í
mars 2006 og 28. desember sama
ár gengu þau í hjónaband í Róm
og þvílík ást og hamingja og gleði.
Allt á fullu við að laga til á nýja
heimilinu í Svíþjóð. Eins og alls
staðar bjó hún Linda mín sér fal-
legt heimili. Saman ferðuðust þau
til margra landa og skemmtu sér.
Allt var gert með hraði. Nú segir
Urban að það sé betra að hafa átt
fimm góð ár en 20 léleg. Mikill
kraftur og dugnaður einkenndi
Lindu alla tíð og lét hún aldrei
deigan síga þótt hún væri sárlasin.
Hún kom sífellt á óvart og hélt
reisn sinni allt til enda.
Hún lést á heimili sínu 28. des-
ember 2010 umvafin ást og um-
hyggju frá sínum elskaða Urban.
Ég vil þakka honum fyrir alla
elskuna sem hann gaf henni litlu
systur minni.
Útför hennar fór fram 18. jan-
úar í Svíþjóð. Minningarathöfn fer
fram í febrúar í Reykjavík og
verður hún auglýst síðar.
Hafðu hjartans þökk fyrir sam-
fylgdina elsku Linda mín.
Þín
Gróa Einarsdóttir (Lóa).
Lind Einarsdóttir
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp
á biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta
kl. 12. Bein útsending frá sameiginlegri
samkomu í kirkju aðventista í Reykjavík.
Janos Kovacs-Biro prédikar.
Aðventsöfnuðurinn | Sameiginleg sam-
koma í Aðventkirkjunni í Reykjavík í dag,
laugardag, kl. 12. Janos Kovacs-Biro
prédikar. Biblíufræðsla fyrir börn, ung-
linga og fullorðna kl. 11. Boðið upp á
biblíufræðslu á ensku.
Samfélag aðventista Akureyri | Sam-
koma í Gamla Lundi í dag, laugardag,
hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir alla.
Guðsþjónusta kl. 12.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir.
Félagar úr messuhópi aðstoða. Félagar
úr kór Akureyrarkirkju syngja, organisti er
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu kl. 11.
Umsjón Sunna Dóra og Sigga Hulda.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir
altari og prédikar, organisti er Kristina
Kalló Szklenár og kirkjukórinn leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Sunnudagaskól-
inn á sama tíma í safnaðarheimilinu í
umsjón Margrétar Ólafar og Hafdísar.
Veitingar á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Barn verður skírt við messuna. Sr. Sig-
urður Jónsson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt Ægi Sveinssyni
djáknanema. Ásdís Pétursdóttir Blöndal
djákni leiðir sunnudagaskólann. Kór Ás-
kirkju syngur, organisti er Kári All-
ansson. Kaffi og safi á eftir. Sjá askirkja-
.is.
BESSASTAÐAKIRKJA | Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
prédikar og þjónar fyrir altari. Gospelkór
Jóns Vídalíns syngur undir stjórn Ingvars
Alfreðssonar.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón hafa
Auður S. Arndal og Heiða Lind Sigurð-
ardóttir ásamt yngri leiðtogum.
BORGARNESKIRKJA Messa kl 14.
Guðsþjónusta á Dvalarheimili aldraðra
kl. 15.30. Presstur Þorbjörn Hlynur Árna-
son.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi |
Guðsþjónusta kl. 11. Gunnar Krist-
jánsson sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11,
prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Kór
Breiðholtskirkju syngur og organisti er
Örn Magnússon. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Kaffi á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaðakirkju
syngur, organisti er kantor Jónas Þórir
og prestur er sr. Pálmi Matthíasson.
Kaffi eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Gunnar Sigurjónsson, organisti er
Zbigniew Zuchowicz, kór Digraneskirkju
A hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á
sama tíma. Súpa og brauð á eftir. Sjá
digraneskirkja.is.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálm-
ar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari,
Dómkórinn syngur, organisti Kári Þor-
mar. Skólakór Kársnesskóla undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur syngur. Kaffi á
eftir.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur er sr. Svavar Stefánsson,
söngvarinn Þorvaldur Halldórsson leiðir
almennan safnaðarsöng. Sunnudaga-
skóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Dagg-
ar Jónsdóttur og Þóru Sigurðardóttur. Jó-
hanna F. Björnsdóttir er meðhjálpari og
kirkjuvörður.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Kvöldguðsþjónusta kl. 20.
Altarisganga. Kór og hljómsveit kirkj-
unnar leiða sönginn undir stjórn Arnar
Arnarsonar, organisti er Skarphéðinn Þór
Hjartarson og bassaleikari er Guð-
mundur Pálsson.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl.
11. Aldursskipt fræðsla og hressing í
lokin. Almenn samkoma kl. 13.30. Greg
Aikins prédikar. Á samkomunni verður
lofgjörð, barnastarf og boðið til fyr-
irbæna. Kaffi á eftir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta
Messa kl. 14. Anna Sigríður Helgadóttir
og Carl Möller tónlistarstjórar ásamt kór
Fríkirkjunnar leiða tónlistina. Einar Berg-
mundur Arnbjörnsson prédikar og Bryn-
dís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari.
Barnastarfið hefst í kirkjunni.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11
með fermingarbörnum og foreldrum
þeirra úr Borga- og Víkurskóla. Sr. Lena
Rós Matthíasdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Vigfúsi Þór Árnasyni.
Kór Grafarvogskirkju syngur, organisti er
Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11.
Umsjón hefur Gunnar Einar Stein-
grímsson djákni.
Borgarholtsskóli | Gospelmessa kl. 17.
Sr. Guðrún Karlsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari, Vox Populi syngur, organisti er
Guðlaugur Viktorsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11,
umsjón hefur Erla Rut Káradóttir. Messa
kl. 11. Altarisganga og samskot til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. Messuhópur þjónar.
Kirkjukórinn syngur, organisti er Árni Ar-
inbjarnarson, prestur sr. Ólafur Jóhanns-
son. Molasopi á eftir. Hversdagsmessa
með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Messa kl. 14, sr. Auður Inga Einarsdóttir
messar. Söngstjóri er Kjartan Ólafsson.
GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti | Barna-
starf kl. 11 í umsjá Árna Þorláks Guðna-
sonar. Veitingar á eftir. Messa kl. 14,
prestur sr. Sigríður Guðmarsdóttir, Þor-
valdar Halldórssonar sér um tónlistina.
Meðhjálparar Aðalsteinn D. Októsson og
Sigurður Óskarsson. Kirkjuvörður Lovísa
Guðmundsdóttir. Kaffi á eftir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl.
11. Fermingarbörn aðstoða, prestur sr.
Þórhallur Heimisson, organisti er Guð-
mundur Sigurðsson. Barbörukórinn leiðir
söng. Vænst er þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra. Hressing á eftir.
Barnasamkoma í safnaðarheimilinu kl.
11. Messa á miðvikudag kl. 8.15. Morg-
unverður á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédik-
ar og þjónar fyrir altari ásamt hópi
messuþjóna. Eldri félagar Karlakórs
Reykjavíkur syngja undir stjórn Friðriks
S. Kristinssonar, organisti er Hörður Ás-
kelsson. Fyrirbænamessa á þriðjudag kl.
10.30. Árdegismessa á miðvikud. kl. 8.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón með barnaguðs-
þjónustu hafa Páll Ágúst og Bára. Org-
anisti er Douglas A. Brotchie og prestur
er Tómas Sveinsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl.
11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Félagar
úr kór kirkjunnar syngja og leiða safn-
aðarsöng, organisti er Jón Ólafur Sig-
urðsson. Sunnudagaskóli kl. 13.
HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Almenn
samkoma kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 14. Ræðumaður er Rannvá Ol-
sen. Sunnudagaskóli í kjallarastofu.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Helgi Flatoy prédikar. Kaffi
á eftir. Alþjóðakirkjan með samkomu á
ensku kl. 14. Ræðumaður Alex Couper.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnastarf kl.
11 í aldursskiptum hópum. Kennsla á
sama tíma fyrir fullorðna, Kristleifur
Kristjánsson kennir. Samkoma kl. 20 í
lok samkirkjulegrar bænaviku.
KAÞÓLSKA kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11
og 19. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema
föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl.
14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er
messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa
kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugard.
er messa á ensku kl. 18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa laugardag kl. 18.
Bolungarvík | Messa kl. 16.
Suðureyri | Messa kl. 19.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 11. Kór
Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arn-
órs Vilbergssonar. Sjálfboðaliðar reiða
fram súpu að messu lokinni. Sr. Erla
stýrir barnastarfinu, prestur er sr. Sigfús
B. Ingvason.
KFUM og KFUK | Samkoma á Holtavegi
28 kl. 20. Ræðumaður er Ólafur Jó-
hannsson, Páll Ágúst og félagar sjá um
tónlistina og leiða söng. Á eftir verður
sælgætissala KSS opnuð.
KÓPAVOGSKIRKJA | Tónlistarmessa kl.
11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og
þjónar fyrir altari. Fermingarbörnum og
foreldrum þeirra er sérstaklega boðið til
messunnar. Kór Kópavogskirkju syngur
undir stjórn Lenku Mátéová, kantors
kirkjunnar. Sunnudagaskólinn hefst í
kirkjunni, síðan í safnaðarheimilinu, um-
sjón hafa Þóra Marteinsdóttir og Sólveig
Aradóttir. Eftir messu verður fundur með
fermingarbörnum og foreldrum þeirra.
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta í Fossvogi
kl. 10.30 á stigapalli á 4. hæð. Org-
anisti er Helgi Bragason og prestur er sr.
Ingileif Malmberg
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi Þór-
arinsson, organisti er Jón Stefánsson.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan í
safnaðarheimilið. Kaffi á eftir.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Karls-
son þjónar ásamt Gunnari Gunnarssyni
organista, kór Laugarneskirkju, sunnu-
dagaskólakennurum og hópi messu-
þjóna. Kaffi á eftir.
LÁGAFELLSKIRKJA | Taize-guðsþjónusta
kl. 20. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur
og leiðir safnaðarsöng. Vilborg Reyn-
isdóttir, syngur einsöng, organisti er Arn-
hildur Valgarðsdóttir og prestur er sr.
Ragnheiður Jónsdóttir. Meðhjálpari er
Arndís Linn. Sunnudagaskóli kl. 13 í um-
sjón Hreiðars Arnar og Arnhildar.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudaga-
skóli kl. 11 í Lindakirkju og Boðaþingi.
Messa kl. 14. Kór Lindakirkju syngur
undir stjórn Óskars Einarssonar. Ung-
lingamessa kl. 17. Sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson þjónar. Fermingarbörn sér-
staklega boðin velkomin. Hljómsveitin
Tilviljun? leikur og syngur.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór
Neskirkju leiða safnaðarsöng, organisti
er Steingrímur Þórhallsson og sr. Örn
Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Messuþjónar aðstoða. Umsjón
með barnastarfi hafa Sigurvin, Katrín og
Ari. Veitingar á Torginu á eftir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Guðsþjónusta
kl. 14 og barnastarf á sama tíma í um-
sjón Elíasar og Hildar. Árni Heiðar Karls-
son stjórnar kór safnaðarins. Maul eftir
messu. Sjá www.ohadisofnudurinn.is.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17
í safnaðaheimili Grensáskirkju. Ræðu-
maður er Hermann Bjarnason.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl.
11. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Val-
geir Ástráðsson prédikar og þjónar fyrir
altari, kór Seljakirkju leiðir safn-
aðarsönginn, organisti er Tómas Guðni
Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Sunnudagaskóli á sama tíma. Sr.
Toshiki Toma, prestur innflytjenda, pré-
dikar, Harpa Frímannsdóttir kennari les
ritningartexta dagsins. Félagar úr Kamm-
erkór kirkjunnar leiða tónlistarflutning
undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar,
organista, prestur er sr. Sigurður Grétar
Helgason. Kaffi á eftir.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Kristinn Ólason annast prestsþjón-
ustuna og nemendur af söngnámskeiði
á vegum Jóns Þorsteinssonar sjá um
söng og tónlistarflutning.
VEGURINN kirkja fyrir þig | Fjölskyldu-
samkoma kl. 14. Barnastarf, lofgjörð,
prédikun og fyrirbæn. Erna Eyjólfsdóttir
predikar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar
prédikar og þjónar fyrir altari, félagar úr
Kór Vídalínskirkju leiða safnaðarsönginn
og organisti er Jóhann Baldvinsson.
Leiðtogar safnaðarins annast sunnu-
dagaskólabörnin undir forystu Odds Ei-
ríkssonar, æskulýðsfulltrúa. Molasopi og
djús á eftir.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Kór kirkjunnar leiðir
söng undir stjórn Stefáns H. Krist-
inssonar. Meðhjálpari er Ástríður Helga
Sigurðardóttir. Sunnudagaskóli kl. 11.
ORÐ DAGSINS:
Jesús gekk ofan
af fjallinu.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Holtskirkja í Önundarfirði.
(Matt. 8)