Morgunblaðið - 22.01.2011, Síða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011
✝ Fjóla fæddist áFossi í Blönduhlíð
í Sagafirði 12. maí
1929. Hún lést á Heil-
brigðisstofnuninni á
Sauðárkróki 10. jan-
úar 2011. Foreldrar
Fjólu voru Friðrika
Steinunn Ólafsdóttir,
f. 24.4. 1888, d. 7.11.
1963, og Baldvin
Bergsveinsson Bárð-
dal kennari, f. 27.7.
1859, d. 14.10. 1937.
Systir Fjólu sam-
mæðra var Hulda
Jónsdóttir, f. 2.6. 1914, d. 9.1. 1992.
Systkini samfeðra voru; Agnar, f.
4.9. 1885, d. 2.12. 1947, og Valrós, f.
22.8. 1887, d. 20.12. 1958.
Fjóla ólst upp á Sauðárkróki.
Hún missti ung föður sinn og var
hjá móður sinni eftir það. Fjóla fór
ung í vist á Sauðárkróki og vann
síðar við ýmis störf svo sem fisk-
vinnu og saumaskap, ásamt því að
annast um veika móður sína sem
1994, menntaskólanemi. 2) Stein-
unn, f. 4.3. 1962, sérkennari við
Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi,
gift Sigurði Guðjónssyni, f. 14.10.
1960, verkfræðingur á verk-
fræðistofunni Verkís, synir þeirra
eru; a) Örn, f. 4.12. 1988, d. 21.6.
2008. b) Þorgeir, f. 27.5. 1993
menntaskólanemi. 3) Ingibjörg, f.
27.9. 1965, hjúkrunarfræðingur á
Landspítalanum, gift Einari Sæv-
arssyni, f. 9.7. 1963, sölumanni hjá
Dímon, þeirra börn eru: a) Sig-
urþór, f. 15.5. 1991, mennta-
skólanemi. b) Arngunnur, f. 29.8.
1997, c) Þorgerður, f. 29.8. 1997.
Fjóla tók virkan þátt í Kvenfélagi
Skarðshrepps og var ein af stofn-
endum þess. Í Messuholti ræktaði
Fjóla fallegan garð og átti um tíma
gróðurhús þar sem hún ræktaði
hverskyns grænmeti og matjurtir. Í
mörg ár voru börn í sumardvöl hjá
Fjólu og önnur til lengri tíma. Einn-
ig var hún dagmamma um árabil.
Fjóla hafði yndi af ferðalögum og
fór í margar ferðir innanlands með
Sigurþóri, einkum þó til fjalla.
Útför Fjólu fer fram frá Sauð-
árkrókskirkju í dag, 22. janúar
2011, og hefst athöfnin kl. 14.
hún gerði af mikilli
alúð.
Fjóla var í sambúð
með Sigurþóri Hjör-
leifssyni, f. 15.6. 1927
á Brunngili í Bitru, fv.
ráðunautur og at-
vinnurekandi í Messu-
holti. Foreldrar Sig-
urþórs voru, Áslaug
Jónsdóttir og Hjör-
leifur Sturlaugsson.
Dóttir Sigurþórs og
Sólveigar Þórarins-
dóttir er Hjördís
Þóra, f. 5.6. 1959.
Haustið 1967 tók Fjóla að sér
heimilið í Messuholti og þrjár ung-
ar dætur Sigurþórs og Guðbjargar
Hafstað sem lést 2.7. 1966, og gekk
þeim í móðurstað. Fósturdætur
Fjólu eru: 1) Arngunnur, f. 4.3.
1962, kennari í Reykjavík, gift Ægi
Sturlu Stefánssyni, f. 15.5. 1961,
vélsmiður hjá Ístaki, dætur þeirra
eru; a) Guðbjörg Fjóla, f. 11.2. 1990,
háskólanemi, b) Melkorka, f. 5.4.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Þegar ég var lítil stelpa kenndi
Fjóla mér þessa bæn. Hún kom inn í
líf mitt þegar ég var fimm ára og
gekk okkur systrunum í móðurstað.
Til þess hefur þurft mikinn kjark, en
verkefnið leysti Fjóla vel af hendi og
fyrir það verður aldrei fullþakkað.
Nú er ljósið þitt slokknað, en minn-
ingar um góða konu lifa. Hafðu þökk
fyrir allt.
Þín
Steinunn.
Mamma, ég man þá daga,
man þína hvítu sterku hönd.
Ein kunni hún allt að laga
og opna hlið í drauma lönd.
Stoltari en stormaveldin,
sterkari en élja kveldin
varði hún æskueldinn,
árdaga og fagra strönd.
(Sigurður Hansen)
Elsku mamma mín, nú þegar þú
hefur kvatt þetta líf er mér efst í huga
þakklæti til þín. Það var gæfa okkar
systranna að þú komst til okkar í
Messuholt. Síðasta árið var þér erfitt,
þú varst mikið lasin og fannst ómögu-
legt að vera svona máttlaus og
drusluleg eins og þú sagðir sjálf. Ég
trúi því að þér líði betur þar sem þú
ert núna og hafir hitt hann Örn okkar
og þið fylgist með okkur hinum í okk-
ar veraldlega vafstri.
Þín
Ingibjörg.
Elsku Fjóla. Ég vil hér minnast þín
og þakka þér fyrir uppeldið, samferð-
ina og allt sem þú hefur gefið mér.
Þegar ég horfi til bernskuáranna
fyllist ég auðmýkt og þakklæti, þér
verður aldrei þakkað nógu vel fyrir
gæsku þína, æðruleysi og fórnfýsi. Þú
sýndir kjark og þor þegar þú tókst að
þér þrjár ungar systur og heimilis-
hald í Messuholti.
Ég er þér óendanlega þakklát fyrir
allt það sem ég hef fengið í uppeldi
mínu og lít á það sem gæfu mína að
hafa eignast þig fyrir móður. Þú varst
okkur afar kær, lagðir þig fram um að
gera allt fyrir okkur, gafst okkur ást
og hlýju og settir okkur systurnar
alltaf í fyrsta sæti. Þú hafðir mikið að
gefa og ég minnist þess hvað þú varst
flink að gera gott úr öllu og þú varst
líka svo úrræðagóð og skapandi. Þú
sagðir okkur nýjar sögur á hverju
kvöldi, allt skáldsögur frá þér og
stundum var framhaldssaga. Þessar
sögur heyrði ég svo í breyttri mynd
mörgum árum seinna þegar þú end-
urtókst leikinn fyrir barnabörnin.
Þú varst barnabörnunum afar kær,
alltaf tilbúin að spila og leika við þau
og að hvetja þau áfram. Þú varst allt-
af tilbúin að passa fyrir mig þó að oft
væru 300 km á milli okkar, þá varst
þú alltaf tilbúin að koma suður eða fá
stelpurnar norður í vikutíma. Dætur
mínar eiga líka góðar minningar um
ferðalög með ömmu og afa hringinn í
kringum landið og víða í óbyggðum.
Á seinni árum höfum við fjölskyldan
notið þess að vera í nálægð við þig
þegar við höfðum dvalið í Skógarholti
og samgangur fjölskyldunnar við
ykkur pabba hefur gefið okkur og
stelpunum dýrmætar minningar um
jól og áramót og mörg skemmtileg
sumur.
Elsku Fjóla ég kveð þig með sökn-
uði um leið og ég gleðst yfir því að
þjáningu þinni er lokið.
Hvíl þú í friði.
Þín
Arngunnur.
Nú þegar komið er að leiðarlokum
langar mig að þakka Fjólu tengda-
móður minni fyrir allt, sem hún hefur
gert fyrir mig og fjölskyldu mína.
Leiðir okkar Fjólu lágu saman fyrir
tæpum 30 árum. Þá var ég að gera
hosur mínar grænar fyrir Steinunni
fósturdóttur hennar sem síðar varð
konan mín. Fjóla tók mér afskaplega
vel frá fyrsta degi og reyndist mér
sönn og dygg tengdamóðir alla tíð.
Aldrei bar skugga á okkar samskipti
og ríkti ávallt gagnkvæm vinátta og
traust okkar í milli.
Í Fjólu átti ég alla tíð stuðnings-
mann til allra góðra hluta, sem hikaði
ekki við að taka málstað minn þrátt
fyrir á stundum réttmæta gagnrýni
fósturdóttur hennar á hann. Fjóla
annaðist og rak heimilið í Messuholti
af miklum myndarskap. Hún hugsaði
vel um fjölskyldu sína og var umhug-
að um að allir hefðu það gott og liði
vel. Segja má, að hún hafi ræktað
garðinn sinn af alúð í eiginlegri og
óeiginlegri merkingu þeirra orða.
Fjóla var ekki sú manngerð sem tran-
aði sér fram eða lét mikið á sér bera
en vann verk sín af alúð og umhyggju.
Hún hafði ákveðnar skoðanir, sem
hún stóð fast á ef þess þurfti við.
Fjóla var ákaflega barngóð og hafði
einstakt lag á börnum enda passaði
hún mörg börn á sinni lífstíð. Hún
taldi aldrei eftir sér að spila, lesa og
leika við börnin og virtist alltaf hafa
jafngaman af og þau. Synir okkar
tveir nutu þess alla tíð að vera í návist
við hana enda voru þeir tíðir gestir
hjá afa og ömmu í sveitinni. Þegar ég
spurði son minn að því hvernig hann
minntist ömmu sinnar svaraði hann
einfaldlega: „Amma, hún var bara ná-
kvæmlega eins og ömmur eiga að
vera.“ Það er við hæfi að enda þessa
stuttu minningu með þeim orðum.
Takk fyrir allt og allt, ég kveð þig
Fjóla með þakklæti og söknuði.
Sigurður Guðjónsson.
Í dag kveð ég Fjólu Barðdal,
tengdamóður mína.
Fjóla var ættfróð og góður sagna-
brunnur, við áttum margar góðar
samræður um menn og málefni og
hún fræddi mig gjarnan á því hvað
gerðist á Króknum í gamla daga.
Þegar ég minnist Fjólu er mér efst
í huga góð nærvera hennar, létt lund,
gæska og æðruleysi. Fjóla var ein-
staklega barngóð og ég er þakklátur
fyrir þann tíma sem dætur mínar
fengu að njóta hennar. Fjóla var
smekkvís og naut þess að rækta garð-
inn sinn og hafa huggulegt í kringum
sig. Hún var dýravinur, náttúruunn-
andi og var dugleg að ferðast, sér-
staklega um hálendi Íslands með
Sóra.
Eftir að við fjölskyldan byggðum
okkur bústað í Skógarholti urðu sam-
verustundir okkar fleiri og við nutum
gestrisni og hjálpsemi Fjólu. Þegar
bústaðurinn var í byggingu þurfti
ekki að hafa fyrir því að hugsa um
mat eða kaffi, Fjóla bara blés í lúð-
urinn þegar matur og kaffi var á
borðum.
Ég vil þakka Fjólu fyrir samferð-
ina.
Blessuð sé minning hennar.
Ægir Sturla Stefánsson.
Elsku amma, ég kveð þig með
söknuði en á þó alltaf eftir ljúfar
minningar um þig. Þú að blístra í eld-
húsinu á meðan þú eldaðir, hvernig
þú spilaðir alltaf við okkur barnabörn
þín ólsen ólsen, svarta pétur og svo
mætti lengi telja. Ein sterkasta minn-
ingin um þig er hvernig þú dáðir
Fjóla B. Barðdal
✝
Okkar ástkæra
SIGURRÓS INGÞÓRSDÓTTIR
er látin.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hennar.
Margrét Sigurrós Guðnadóttir,
Ragnhildur Hreiðarsdóttir,
Hjálmar Theodórsson,
Davíð Elvar Hill.
✝
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
HALLDÓRA EBBA GUÐJOHNSEN,
lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 6. janúar.
Útförin fór fram frá Fossvogskapellu mánudaginn
17. janúar.
Þökkum öllum vinum og ættingjum, starfsfólki
Droplaugarstaða og systrum úr Rebekkustúku
númer 1, Bergþóru, sýnda samúð.
Pétur Sigurjónsson og fjölskylda.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
ÓLI G. JÓHANNSSON
listmálari,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 20. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Lilja Sigurðardóttir,
Örn Ólason, Christina Nielsen,
Sigurður Ólason, Áshildur Hlín Valtýsdóttir,
Hjördís Óladóttir, Björn L. Þórisson,
Hrefna Óladóttir, Sverrir Gestsson
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HEIÐA AÐALSTEINSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi Garði fimmtu-
daginn 20. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
28. janúar kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldóra L. Júlíusdóttir, Ólafur Arnbjörnsson,
Kristín Ó. Muller, Phil Muller,
Örn Sævar Júlíusson,
Pétur Viðar Júlíusson, Kristín Þ. Guðmundsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓNAS HELGASON,
Æðey,
sem lést fimmtudaginn 20. janúar, verður jarð-
sunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn
28. janúar kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Hjarta-
heill.
Katrín S. Alexíusdóttir,
Alexíus Jónasson, Edda María Hagalín,
Magnús Helgi Jónasson, Sigrún Helgadóttir,
Jónas Kristján Jónasson
og barnabörn.
✝
Ástkæri eiginmaðurinn minn,
HELGI EINÞÓRSSON,
lést fimmtudaginn 30. desember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þakka auðsýnda samúð.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Sigríður Magnúsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
SIGURBJARGAR PÁLSDÓTTUR
frá Laufskálum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis
aldraðra Borgarnesi fyrir góða umönnun.
Símon Aðalsteinsson, Þuríður Jóhannsdóttir,
Erlingur Aðalsteinsson,
Kári Aðalsteinsson, Eydís Sigvaldadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800