Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011
✝ Hafsteinn Sig-tryggsson fæddist
á Mosfelli í Ólafsvík
21. september 1933.
Hann lést á Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands
á Akranesi 11. janúar
2011. Foreldrar hans
voru Sigtryggur Sig-
tryggsson, f. 6.8. 1898
á Ríp í Skagafirði, d.
16.4. 1978, og Guð-
björg Jenný Vigfús-
dóttir, f. 11.10. 1902 á
Kálfárvöllum í Stað-
arsveit, d. 10.8. 1982.
Systkini Hafsteins eru: Haukur, f.
1.9. 1924, d. 21.2. 1998, Sverrir, f.
30.8. 1925, d. 26.9. 1992, Þráinn, f.
1.9. 1928, d. 7.3. 2008, Sveinbjörn, f.
3.10. 1930, Vigfús, f. 29.4. 1932, d.
5.3. 2009, og Bjarný, f. 15.11. 1941.
Hafsteinn var ókvæntur og barn-
laus. Hann ólst upp í föðurhúsum á
Mosfelli í Ólafsvík og lauk hefð-
bundinni skólagöngu í Barnaskóla
Ólafsvíkur. Eftir það lá leið hans í
Laugarvatnsskóla og lauk hann
þaðan landsprófi árið 1952. Að
námi loknu starfaði Hafsteinn m.a.
við smíðavinnu hjá
Sveinbirni bróður sín-
um og var liðtækur í
smíðavinnu þegar á
þurfti að halda innan
fjölskyldunnar. Allan
sinn starfsaldur starf-
aði Hafsteinn hjá
Hraðfrystihúsi Ólafs-
víkur samhliða því
sem hann sinnti
fjárbúskap, sem var
algengt á þeim árum,
ásamt föður sínum og
bræðrum. Á sumrin
tók hann sér frí frá
störfum við Hraðfrystihús Ólafs-
víkur og sinnti þá eingöngu bú-
störfum, bæði heyvinnu og slátrun,
og kom svo aftur til starfa að
hausti. Þá hafði hann gaman af
bókalestri og var víðlesinn og vel
að sér í mörgu enda áhugasamur
um hvers kyns málefni. Hafsteinn
bjó á Mosfelli alla tíð ásamt bræðr-
um sínum Sverri og Vigfúsi sem
báðir eru látnir.
Hafsteinn verður jarðsunginn frá
Ólafsvíkurkirkju í dag, 22. janúar
2011, og hefst athöfnin kl. 14.
Í dag kveð ég föðurbróður minn
Hafstein Sigtryggsson frá Mosfelli í
Ólafsvík. Það er tómlegt um að litast
á Mosfelli en þar hafði frændi minn
búið í 77 ár. Hann bjó þar á uppvaxt-
arárum sínum en síðar ásamt
bræðrum sínum Sverri og Vigfúsi.
Margar góðar minningar koma upp í
hugann. Það var gott að koma á
Mosfell og alltaf tekið vel á móti
manni með kaffi og meðlæti. Það var
eins og skarkali hversdagslífsins
hyrfi og maður fann fyrir svo miklu
öryggi í þessu gamla húsi þar sem
gamli tíminn frá ömmu og afa var í
fyrirrúmi. Allt var á sínum stað og
skapaði þetta rólega andrúmsloft.
Það er margs að minnast frá barn-
æskunni og eitt er mér ofarlega í
huga. Það var alltaf mikil eftirvænt-
ing þegar Hafsteinn fór í sumarfrí
og gerði sláttinn kláran og náði í
græna traktorinn í skemmuna úti á
bökkum. Þá fengum við ýmist að
keyra hring uppi á túni eða sitja aft-
an á kerrunni. Þetta var tími sem
beðið var eftir á hverju ári. Haf-
steinn var einstaklega ljúfur og góð-
ur maður. Hann var rólegur og yf-
irvegaður og hafði hlýlegt viðmót,
var fastheldinn og hafði ákveðnar
skoðanir á hlutunum á sinn hógværa
hátt. Oft var setið við eldhúsborðið
og rætt um málefni líðandi stundar
eða liðna tíð. Eldhúsglugginn var oft
notaður til að fylgjast með afla-
brögðum annarra báta. Þá kom fyrir
að dregnar voru fram gamlar ljós-
myndir af bæjarlífinu, ættingjum
eða vinum og þar var frændi minn
hafsjór af fróðleik.
Hafsteinn hafði gaman af því að
safna og halda utan um gamla muni.
Mér er minnisstætt er ég var í heim-
sókn ein jólin ásamt fjölskyldu minni
og umræðan snerist um púsl. Þá dró
Hafsteinn fram gamalt púsl sem
hann hafði límt á stórt pappaspjald
vandlega pakkað inn og sýndi börn-
unum mínum. Þau skynjuðu strax
hvað minningin um þessa gömlu gjöf
var honum mikils virði en voru líka
jafnundrandi hvað hann hafði varð-
veitt hana vel. Þannig er Hafsteini
rétt lýst en hann bar virðingu fyrir
hlutunum og umhugað um að hafa
allt hreint og snyrtilegt í kringum
sig.
Hafsteinn hafði gaman af því að
ferðast innanlands og fór margar
ferðir í Skorradalinn en þar áttu þeir
bræður sumarbústað. Þá lögðu hann
og Fúsi oft leið sína á Laugarvatn en
þaðan átti Hafsteinn góðar minning-
ar frá námsárunum og bar ávallt
hlýjan hug til skólans.
Hafsteinn fylgdist vel með því
sem fjölskyldan tók sér fyrir hendur
og spurði frétta og sýndi unga fólk-
inu alltaf áhuga. Að lokum kveð ég
kæran frænda með þakklæti fyrir
allar samverustundirnar og hlýju og
vinsemd sem hann sýndi mér og fjöl-
skyldu minni.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Blessuð sé minning hans.
Sigtryggur S. Þráinsson.
Þegar að veglokum er komið er
margs að minnast frá okkar vegferð
saman í þessu lífi. Sem barn var ég
mikið ömmubarn og ekki bara það,
heldur hafði ég allt á Mosfelli sem ég
þurfti, ömmu, afa og þrjá móður-
bræður sem snerust í kringum þessa
litlu stelpu sem gat verið baldin, frek
og uppátektasöm.
Lífið á Mosfelli snerist um þetta
daglega strit sem allir tóku þátt í og
fékk þessi atorkusami krakki hlut-
verk í því og ábyrgð með fullorðna
fólkinu. Margt var að gera bæði
heima við og eins við að sinna fénu
sem þeir bræður voru með langt
fram eftir mínum ungdómsárum og
var það mitt yndi að fá að vera með
þeim í öllu sem að því sneri.
Hafsteinn sem ég kveð nú síðastan
af þessu fólki var leikfélagi minn,
vinur og bakland. Sárt er að kveðja
sína og minnast í fátæklegum orðum.
Hafsteinn var rólyndur og vel gerð-
ur maður sem gaf mikið af sér til
sinna nánustu. Hann vann lengst af
við fiskvinnslu í Ólafsvík en heima
undi hann sér best við ýmislegt
dundur. Ömmu var hann stoð og
stytta við allt sem heimilinu við kom
og var það stórt hlutverk, því í þá
daga var ekki farið út í búð eftir öll-
um hlutum.
Amma, Hafsteinn og „ég“ vorum
þríeyki í eldhúsinu við allar stærri
athafnir eins og kæfu- og sláturgerð
og var þá oft glatt á hjalla og margir
komu við til að hjálpa eða bara segja
sögur og hlæja. Eftir ömmu daga sá
hann um allt sem laut að heimilis-
haldi fyrir bræður sína og fór honum
það afskaplega vel úr hendi því
snyrtimennska var honum í blóð bor-
in. Vinátta og bræðralag þriggja
manna er það fallegasta samband
sem ég hef upplifað, þó að ýmislegt
hafi verið nöldrað og tuðað voru
böndin sterkari en stál og var mér
mikils virði að vera hluti af því allt til
síðasta dags.
Stutt var stórra högga á milli hjá
þeim bræðrum, Fúsi frændi dó í
mars 2009 og stóð þá Hafsteinn einn
eftir heima á Mosfelli og við þau
endalok urðum við enn nánari og var
mér ljóst hvað ég átti mikið að hafa
alla tíð haft þessa góðu menn mér við
hlið.
Hafsteinn dvaldi mikið hér í
Reykjavík síðasta vetur vegna veik-
inda sinna og undir vor þegar allt leit
betur út áttum við góðar stundir
saman. Fallegt vor, sól og við úti að
borða á Borginni, fara á rúntinn til
dóttur minnar sem var honum
einkar kær að skoða litla nýfædda
krílið hennar, hann að borða þar sinn
fyrsta grillmat og hann naut þess að
vera til og hér í borginni, labbaði á
kaffihús og skoðaði lífið í bænum.
Við hittumst nær daglega þennan
tíma sem hann var hér í höfuðborg-
inni og fórum saman yfir atburði
dagsins hjá hvort öðru. Ræddum við
það bæði í gamni og alvöru að hann
kæmi suður eftir sumarið til vetur-
setu en öðruvísi fór það nú allt.
Eftir yndislegt sumar þar sem við
frændsystkinin vorum svo glöð að
hafa getað farið með honum í styttri
og lengri ferðir tóku veikindin sig
upp aftur og undir jól var ljóst hvert
stefndi. Hann tók sínum örlögum
með þeirri rósemd sem við mátti bú-
ast og var heima þar sem hann vildi
helst vera til síðasta dags.
Kveð ég þig nú, ástkæri frændi, og
þakka þér það góða sem þú lagðir
inn í líf mitt.
Þín frænka,
Bylgja.
Hann Hafsteinn frændi á Mosfelli
er fallinn frá, fastur punktur tilver-
unnar horfinn með honum. Þvílík
forréttindi að hafa getað kíkt inn til
hans hvenær sem var og drukkið
kaffi og ekki skorti meðlætið, notið
þess að hafa allt þetta sem er eins og
þegar maður var barn og átti sitt
annað heimili hjá ömmu afa og
bræðrunum Sverri Fúsa og Haf-
steini. Nú stendur Mosfell autt,
þetta litla fallega hús, Grundarbraut
15 Ólafsvík, sem er höll í hugum okk-
ar ættingjanna, allir fallegu og vel
með förnu hlutirnir sem eru okkur
svo kærir, allar minningarnar. Haf-
steinn frændi var ekki maður marg-
mennis eða fyrirgangs, gekk hægt
um lífsins veg. Hann hafði gaman af
ferðalögum og var fróður um landið
sitt og heimabyggð. Hefur hann
frætt mig um nöfn og kennileiti á
nesinu og í Ólafsvíkinni okkar kæru.
Í bíltúrunum okkar var fastur liður
að fara túnhringinn og rifja upp árin
sem þeir bræður voru með kindur og
fjárhús og allt stússið í kringum það.
Ég sakna hans sárt og minning hans
lifir með mér og okkur sem unnum
honum.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæll á ljóssins friðarströnd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Hvíl í guðs friði.
Þín systurdóttir,
Jenný.
Mig langar að kveðja hann Haf-
stein frænda minn með þessu fallega
ljóði:
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku Hafsteinn hafðu þökk fyrir
allt.
Soffía Elín.
Kveðja.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Löng þá sjúkdómsleiðin verður,
lífið hvergi vægir þér,
þrautir magnast, þrjóta kraftar,
þungt og sárt hvert sporið er,
honum treystu, hjálpin kemur,
hann af raunum sigur ber.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald,
hinum megin birtan er.
Höndin, sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sigurður Kristófer Pétursson)
Með þessum sálmi kveð ég þig
kæri Hafsteinn með þökk fyrir allt
og bið góðan guð að geyma þig.
Sofðu rótt.
Berglind Sigrún Þráinsdóttir.
Elsku Hafsteinn frændi. Mínar
fyrstu minningar um okkar samvist-
ir eru þegar ég kom í sveitina sem
barn, þá þótti mér gaman að koma til
þín og leika mér í því fallega um-
hverfi sem Mosfell var og er. Ég
fékk að leika mér með rokkinn og
saumavélina hennar langömmu og
einnig fannst mér mikið sport að fá
að hjálpa ykkur bræðrum við hús-
verkin, fara í búðina og kaupa í mat-
inn fyrir ykkur. Ég naut þess að fá
að koma til ykkar og undi mér vel á
Mosfelli.
Mér þótti þú mikill töframaður í
spilum og gleymi ég því ekki þegar
þú gerðir galdurinn 21 fyrir mig í
fyrsta skipti. Ég var agndofa og
reyndi í hvert skipti að fá upp úr þér
hver galdurinn væri, en þá sagðir þú
að það væri ekki galdur ef þú segðir
mér hver hann væri. Við áttum
margar góðar stundir saman í eldús-
inu þar sem þú spilaðir við mig og
sýndir mér galdra.
Það verður skrítið að fara til
Ólafsvíkur núna þar sem það var
fastur liður að stoppa alltaf á Mos-
felli og kíkja í kaffi áður en haldið var
aftur til Reykjavíkur. Það var alltaf
svo notalegt að koma í heimsókn á
Mosfell í rólegheitin og gamla tíð-
arandann, það var eins og að ferðast
aftur í tímann. Þar sem rokkurinn
hennar langömmu stendur enn og
allt er með kyrrum kjörum.
Mér er þó eftirminnilegastur sein-
asti vetur þegar þú komst til Reykja-
víkur og varst hér í nokkrar vikur.
Gaman var að kynnast nýrri hlið á
þér og sjá þig í öðru umhverfi. Við
spjölluðum um allt milli himins og
jarðar, við ræddum hvað það væri nú
gaman fyrir þig að prufa að fara til
útlanda, fara í leikhús og út að borða
og fleiri skemmtilega hluti sem þú
hafðir ekki gert í langan tíma.
Mikið er ég glöð að hafa fengið þig
til að koma til mín í grill í sumar og
trúði ég varla mínum eigin eyrum
þegar þú sagðir mér að þetta hefði
verið í fyrsta skipti sem þú smakk-
aðir grillmat. Það er svo margt sem
þú lést ekki eftir þér og langaði mig
til að gera svo margt með þér.
Takk fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum saman. Þú munt alltaf
hafa sérstakan stað í hjarta mínu.
Hvíldu í friði elsku Hafsteinn.
Þín frænka,
Alma Ösp.
Hafsteinn
Sigtryggsson
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
heiðruðu minningu og sýndu okkur samúð og
stuðning við andlát og útför okkar ástkæru
AÐALHEIÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Skólastíg 14 A,
Stykkishólmi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Dvalar-
heimilis aldraðra í Stykkishólmi fyrir frábæra
umönnun.
Jófríður Sveinbjörnsdóttir,
Aðalheiður Sveinbjörnsdóttir,
Stefán Þór Sveinbjörnsson.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
GUÐMUNDAR JÓNSSONAR
píanóleikara,
Vatnsnesvegi 29,
Keflavík.
Sérstakar þakkir fyrir góða umönnun til starfsfólks
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, heimahjúkrunar,
dagdvalar Reykjanesbæjar og Sunnuhlíðar í Kópavogi.
Ingibjörg Þorbergs,
Auður Eir Guðmundsdóttir, Helgi Gestsson,
Guðmundur K. Guðmundsson, Vigdís Sigtryggsdóttir,
Helga K. Guðmundsdóttir, Stefán Sigurðsson,
Þórdís Guðmundsdóttir, Sigurður V. Guðmundsson,
afa- og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns,
föður og afa,
JÓNS LAXDAL ARNALDS,
Fjólugötu 11A,
Reykjavík.
Ellen Júlíusdóttir,
Eyþór Arnalds, Dagmar Una Ólafsdóttir,
Bergljót Arnalds, Páll Ásgeir Davíðsson,
Anna Stella Karlsdóttir, Arne Tronsen
og barnabörn.