Morgunblaðið - 22.01.2011, Síða 39

Morgunblaðið - 22.01.2011, Síða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 ✝ Magnea Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 22. sept- ember 1945. Hún lést á hjúkr- unarheimili Hrafn- istu í Boðaþingi eftir erfiða sjúk- dómslegu 6. janúar 2011. Foreldrar henn- ar voru Jón Jóns- son, f. 11.10. 1909, d. 13.10. 1980, og Guðný B. Jóakims- dóttir, f. 8.5. 1914, d. 29.6. 1996. Systkini hennar voru Sólveig, f. 1936, d. 1995, Rósa (Dídí), f. 1937, Jóna Björg, f. 1938, d. 1994, óskírður, f. 1939, d. 1940, Brynhildur Ásta, f. 1942, Álfheiður Erna, f. 1947, Jón, f. 1949, og Anna Margrét, f. 1952. Magnea kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum, Guðmundi Jó- hannssyni (Gúnda), f. 13.11. 1943, árið 1960. Foreldrar hans voru Hulda Guðmundsdóttir, f. 4.2. 1911, d. 5.4.1984, og Jóhann Hannesson, f. 30.10. 1916, d. 11.8. 2002. Systkini hans eru Hulda Hanna, f. 1945, og Hannes Einar, f. 1946. Magga og Gúndi gengu í hjónaband árið 1968. Börn þeirra eru Hulda, f. 24.1. 1965, og Jón, f. 13.8. 1968. Hulda er í sambúð með Jóhanni O. Guð- mundssyni, f. 22.3. 1960, og eiga þau tvo syni, Guðmund, f. 4.11. 1988, og Óttar, f. 23.6. 1991. Jón er ókvæntur en dóttir hans og Ír- isar Ívarsdóttur, f. 14.5. 1972, er Magnea Björg, f. 14.11. 1994. Magga og Gúndi bjuggu á Sel- tjarnarnesinu frá því 1977. Þau voru einnig mikið í sveitinni en árið 1995 keyptu þau jörðina Ketilsstaði í Holta- og Landsveit og þar var þeirra sælureitur. Útför Magneu hefur farið fram í kyrrþey. Elsku mamma mín. Ég sakna þín svo mikið. Þú varst mín besta vin- kona. Við erum búnar að vera svo mikið saman að það er skrítið að hafa þig ekki lengur, viðbrigðin eru mikil. Að sama skapi er ég svo þakklát fyrir að þú þjáist ekki lengur. Það var svo erfitt að horfa upp á veikindin ágerast dag frá degi og geta ekkert gert nema að vera til staðar fyrir þig. Að hafa enga von um byltingu í læknaheim- inum til að geta læknað þig. Og oft fannst okkur áhugi læknanna á sjúk- dóminum takmarkaður. Það er svo sorglegt. En hvernig þú tókst á við þessi veikindi var ótrúlegt. Æðru- leysið og þrautseigjan var með ólík- indum. Alltaf stutt í brosið og hlát- urinn og það létti okkur lífið. Eftir að þú gast ekki verið lengur heima og þú lagðist inn á B2 – taugalækningadeild – þann 1. desember 2009 þá hófst eignlega nýr kafli í lífi þínu. Þú varst inni á spítalanum til 31. mars 2010 en þá fékkstu úthlutað hjúkrunarrými hjá Hrafnistu í Boðaþingi. Það var erfitt að fá þig ekki heim aftur og þurfa að sjá þig í umsjá fagfólks sem þurfti að aðstoða þig við allar þínar þarfir. Það tók þig svolítinn tíma að aðlagast enda ekkert skrítið þar sem þetta var nýtt hjúkrunarheimili og ekkert óeðlilegt að það væru byrjun- arörðugleikar þar eins og hjá okkur líka. En það besta við þetta allt var að það var svo stutt fyrir mig að koma í heimsókn til þín, miklu styttra en að fara út á Seltjarnarnes. Við höfum átt margar góðar og mjög skemmtilegar stundir í Boða- þingi. Starfsfókið þar hefur verið al- veg einstakt og vinskapur þess við okkur er ómetanlegur og gerði okkur lífið léttara. Einnig hafa vistmennirn- ir þar verið skemmtilegir og gefið líf- inu lit og oft mikið hlegið. Gott að eiga þá minningu. Systur þínar og fjöl- skyldur þeirra hafa verið yndislegar og heimsótt þig mikið og ég veit að þú varst óendanlega þakklát fyrir það. Ég veit ekki hvernig við hefðum farið að ef við hefðum ekki átt þessa frá- bæru fjölskyldu sem við eigum. Þeg- ar þú gast ekki keyrt lengur þá komu Dídí og Halli og buðu þér í bíltúr og oft var farið í búðir. Þér leiddist nú ekki að fara í búðir og var Deben- hams í sértöku uppáhaldi. Ég held að það sé ekki hallað á neinn að minnast á hvað Dídí og Halli hafa verið þér einstaklega góð. Þau komu til þín á hverjum einasta degi og alltaf varst þú jafn ánægð að sjá þau birtast í dyrunum. Svo beiðstu spennt eftir að Ásta birtist til að laga hárið, lakka neglurnar eða lita auga- brýrnar, þá brostirðu breitt. Ekki má gleyma Önnu sem var alltaf að kaupa einhver krem handa þér og Öllu sem kom og nuddaði fæturna. Já, þú varst sko ánægð með systur þínar og fjöl- skyldur þeirra. Ég veit að Gúndi, Ótt- ar og Magnea Björg hafa átt erfitt og sakna þín mikið enda varstu einstök amma. Elsku mamma. Ég sakna þín svo sárt. Vitundin um að þú sért á stað þar sem þú getur gert allt án hjálpar, léttir mér lífið. Takk fyrir allt. Við sjáumst síðar, elsku mamma. Þín dóttir, Hulda Guðmundsdóttir. Elsku amma mín. Ég minnist þín alltaf brosandi þegar þú komst og heimsóttir okkur bræðurna þegar við vorum litlir. Náðir í okkur og keyrðir okkur niður í búð og gafst okkur það sem okkur langaði í að borða. Þótt það hafi ekki verið nema 200 metrar niður í búð þá keyrðirðu ekki af stað fyrr en við vorum komnir í belti. Allt- af rifumst við um það hvað það væri stutt og enginn tilgangur að fara í belti. En ég launaði þér þann greiða þegar ég var að keyra þig á seinustu árum út í búð eða í klippingu, þá neit- aðir þú að fara í belti og ekki fór ég af stað fyrr en þú loksins sagðir já og ég hjálpaði þér í belti. Og gleymi aldrei þegar ég spurði þig alltaf sömu spurningarinnar þegar ég hitti þig! Ertu ekki í stuði? Og alltaf var svarið já eða þumalputtinn upp þegar þú gast ekki talað. Varst alltaf brosandi og hlæjandi. Hláturinn þinn var það besta sem ég veit um, svo smitandi og kom manni alltaf í gott skap. Lífið verður erfitt án þín, en ég veit að þú ert komin á betri stað og þér líður betur núna. En það líður ekki dagur þar sem ég hugsa ekki um þig. Þú varst best. Hvíldu í friði elsku amma mín. Óttar Jóhannsson. Það eina vísa í þessu jarðlífi er að því lýkur fyrr eða síðar, en þegar kall- ið kemur þá erum við oftar en ekki óviðbúin. Það á við um andlát Möggu systur okkar sem lést aðeins 65 ára 6. janúar sl. Magga lést eftir harða og hetjulega baráttu við MSA-sjúkdóminn sem hún glímdi við sl. 10 ár. Í veikindun- um sýndi hún ótrúlegan kjark og ærðuleysi eins og hún gerði ávallt er hún tókst á við erfiðleika í lífinu. Með sínu fallega brosi tókst hún á við allt sem lífið bauð upp á, hvort sem það var sorg eða gleði. Við systkinin ólumst upp á Skúla- götunni og eru margar góðar minn- ingar þaðan. Þar var oft glatt á hjalla og ýmislegt brallað enda stór syst- kinahópur samankominn. Þú varst mjög söngelsk, Magga, og minnumst við systkinin þess hvað mikið dálæti þú hafðir á ljóðum Dav- íðs Stefánssonar, og voru ófá skiptin sem ljóðasafn Davíðs, Svartar fjaðr- ir, var tekið fram og ljóðin sungin. Þar varst þú fremst í flokki og hafðir nú ekki mikið fyrir að semja laglínu við ljóðin og allur hópurinn söng með. Allar minningar um þig, elsku Magga, eru vel geymdar í hjörtum okkar. Nýr kafli tók við í lífi þínu þegar þú kynntist ung og falleg ástinni þinni, honum Gúnda, þá blómstraðir þú, Magga. Þú og Gúndi stiguð ham- ingjusporin ykkar inn í framtíðina og eignuðust börnin ykkar tvö, Huldu og Nonna. Saman byggðuð þið húsið ykkar á Miðbrautinni af miklum stór- hug og myndarskap, eins og allt sem þú og Gúndi tókuð ykkur fyrir hend- ur. Á Miðbrautinni sköpuðuð þið fjöl- skyldan ykkur mjög fallegt og nota- legt heimili, enda þið Gúndi fagurkerar miklir. Miklir gleðitímar tóku við í lífi ykk- ar allra þegar Hulda og Jói eignuðust Guðmund og Óttar og Nonni og Íris eignuðust Magneu Björg. Barna- börnin eru ykkur Gúnda miklir gleði- gjafar og nutuð þið þess að hafa þau öll nálægt ykkur. Ferðalög voru ykkur Gúnda ofar- lega í huga og ferðuðust þið vítt og breitt um heiminn sem þið bæði nut- uð. Ófá voru skiptin sem þið fjöl- skyldan dvölduð á Spáni í húsinu ykkar og nutuð samverustundar þar og áttuð þar góða tíma. Eins eftir að þið eignuðust Ketilsstaði í Holtum, þá voru brettar upp ermar og byggt upp af miklum myndarskap svo af bar. Síðustu mánuði ævi þinnar dvald- ist þú á hjúkrunarheimili DAS að Boðaþingi í Kópavogi. Þar varst þú umvafin fólkinu þínu sem stóð eins og klettur við hlið þína og þú umvafðir til baka með þínum einstaka kærleik og brosi. Jólin hafa ávallt verið þér kær, enda varstu svo mikið jólabarn alla tíð. Um miðjan nóvember var herbergi þitt alskreytt jólaljósum. Á táknrænan hátt kvaddir þú þetta líf 6. janúar sl. með jólunum. Þú kvaddir ekki baráttulaust, þú varst alltaf sú sterka, elskaðir lífið, vildir ekki yf- irgefa ástkæra fjölskyldu sem vék ekki frá þér og stóð með þér eins og klettur þar til yfir lauk. Nú er þinni löngu þrautagöngu lokið og þú komin í faðm látinna ástvina. Þakkir sendum við starfsfólki og hjúkrunarfólki Boðaþings fyrir að annast Möggu okkar. Elsku fjölskylda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð við missi Möggu okkar. Megi Guð styrkja Möggu og alla ástvini hennar. Hvíl í friði, elsku systir. Rósa, Ásta, Álfheiður, Jón, Anna Margrét. Okkur langar til að minnast henn- ar Möggu móðursystur okkar með nokkrum orðum. Magga var stórglæsileg, falleg og glaðlynd kona. Það var alltaf stutt í hláturinn hennar og hún hafði ein- staklega góða nærveru. Það var alltaf vel tekið á móti okkur á Miðbrautinni og munum við vel eftir jólaboðunum sem voru alveg stórglæsileg. Þar svignuðu borðin undan kræsingun- um, eins og henni og systrunum hennar er einum lagið þá töfruðu þær fram veisluborð á einu augabragði. Magga var alltaf til staðar þegar á reyndi og er okkur þar m.a efst í minni þegar mamma okkar lá veik og við systurnar bjuggum í Svíþjóð , og var kallað eftir okkur heim. Þá kom Magga og Hulda dóttir hennar og sóttu okkur upp á flugvöll og það dugði ekki að bíða við útganginn heldur var komið inn fyrir tollsvæðið og beðið við stigann með tárin í aug- unum og við látnar fá fréttir af líðan mömmu okkar sem allra fyrst, þar sem talið var að ekki væri aftur snúið og hún gæti farið á hverri stundu. Magga ætlaði að sjá til þess að við næðum að komast til mömmu okkar áður en það væri of seint. Hennar nærvera á spítalanum þá var ómet- anleg eins og allra þeirra systranna og fjölskyldum þeirra. Hún passaði upp á að það væri nóg til að borða og nóg með kaffinu, það mátti ekkert skorta á þessum mjög svo erfiðum tímum. Magga er búin að eiga við erf- ið veikindi að stríða í nokkur ár og hefur tekist á við þau af miklum styrk og æðruleysi. Fjölskylda hennar hef- ur staðið þétt við bakið hennar og hef- ur það verið aðdáunarvert hversu ná- in og samheldin þau hafa verið í gegnum veikindi hennar. Við systkinin og fjölskyldur þökk- um elsku Möggu okkar fyrir sam- fylgdina og biðjum góðan Guð að blessa hana og veita Gúnda, Huldu, Nonna og fjölskyldum þeirra og ást- vinum styrk í sorginni. Ómar, Jón, Hulda, Guðný og Svala. Það er sorg í hjarta okkar vin- kvenna úr saumaklúbb er við komum saman til að minnast Möggu eins og við kölluðum Magneu alltaf. Það má segja að Magga hafi komið bakdyramegin inn í saumaklúbbinn, þar sem hún kom ekki úr Langholts- skóla eins og við hinar. Hún féll strax vel inn í hópinn, enda einstaklega ljúf manneskja. Við stöllur höfum ýmislegt brallað gegnum árin, bæði innanlands sem utan. Klúbburinn var okkar leið til að halda hópinn og umfram allt til að missa ekki hver af annarri. Magga mat samveru okkar mikils, sást það best á því, að hún lét sig ekki vanta þótt óvæginn sjúkdómur væri farinn að segja illilega til sín. Það er sárara en orð fá lýst að kveðja svona fljótt, en Magga tókst á við erfiðan sjúkdóm af þvílíku æðru- leysi að með ólíkindum má telja. Við kveðjum kæra vinkonu með söknuði og virðingu, elsku Gúndi, Hulda, Nonni, barnabörn, vinir og vandamenn, innilegar samúðarkveðj- ur frá okkur vinkonum Möggu. Guð gefi ykkur styrk með von um að tíminn lini þraut. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Saumaklúbburinn, Anna Kristín, Birna, Guðrún, Karen, Marta og Soffía. Magnea Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma mín. Takk fyrir allar góðu stundirnar okkar saman. Það er gott að geta hugsað til þeirra og rifjað upp skemmtilegan tíma saman. Það var svo gaman þegar ég var að segja þér brandara og fá þig til að hlæja og hvað þú gast hlegið innilega, það var svo frábært. Ég sakna þín elsku amma mín. Þinn Guðmundur. Þegar ég kveð þig kæra frænka er það efst í huga að þakka fyrir þá ást og umyggju sem þú gafst okkur öllum. Strax í æsku var það okkur dýr- mætt að eiga þig og Sigga að og all- ar götur síðan hefur þú fylgt okkur eftir í gegnum lífið. Þú tókst þátt í gleði okkar og sorg, hvattir okkur, hrósaðir og studdir. Það ber að þakka þegar komið er að leiðarlok- um. Minning þín mun lifa í hjörtum Vigdís Valgerður Eiríksdóttir ✝ Vigdís ValgerðurEiríksdóttir fædd- ist í Gunnarshólma, Eyrarbakka 1. janúar 1926. Hún lést á Landspítala í Foss- vogi 11. janúar 2011. Útför Vigdísar fór fram frá Fossvogs- kirkju 21. janúar 2011. okkar alla tíð. Í skógi lækur leynist og lautin geymir blóm. Í mannsins hjarta er minning með mildan endur- óm. Og þó að lækur þorni og þó að deyi blóm, þá miðlar hjartans minning þeim milda enduróm. (A. Hedenstjerna/ Þórarinn Hjartarson þýddi) Elsku Ásta, Matti, Eiríkur og fjöl- skyldur. Ég veit að minningin um ástkæra móður og atorkusama ætt- móður mun ætíð fylgja ykkur. Megi algóður Guð styrkja ykkur og styðja á sorgartímum. Erla, Loftur, börn og tengdabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÓLAFS BERGMANNS ÁSMUNDSSONAR, Geislalind 4, Kópavogi. Sérstakar þakkir fá Stella, Sóley og annað starfs- fólk lungnadeildar Landspítala, Fossvogi, fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Málfríður Ólína Viggósdóttir, Aðalbjörg Ólafsdóttir, Halldóra Ólafsdóttir, Heiðrún Ólafsdóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir, Ólafur Már Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem heiðruðu minningu og sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KARINAR WAAG HJÁLMARSDÓTTUR, Gullsmára 10, Kópavogi. Hjálmar W. Hannesson, Anna Birgis, María Inga Hannesdóttir, Ólafur Georgsson, Guðrún Andrésdóttir, Jakob Bragi Hannesson, Kristín Hanna Hannesdóttir, Páll Torfi Önundarson, Glódís Karin E. Hannesdóttir, Guðmundur Hannes Hannesson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.