Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 Á Myrkum músíkdögum verður fjölbreytt efnisskrá að vanda. Daníel Bjarnason stjórnar tónleikunum og semur auk þess nýtt hljómsveitarverk. Tveir nýir íslenskir konsertar hljóma og hinn heillandi hljóðmúr, Atmosphéres, eftir György Ligeti verður fluttur. Miðasala á www.sinfonia.is og 545 2500 „Mig langar sífellt að prófa nýja hluti“ György Ligeti Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Kristinn Sigmundsson bassasöngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari halda tvenna tón- leika í Salnum í Kópavogi nú um helgina. Þeir fyrri eru í dag, laugardag klukkan 20, og þeir síðari á morgun klukkan 17. Á efnisskránni eru sönglög eftir Mozart og Beethoven, lagaflokkur sem John Speight samdi fyrir þá félaga og tíu sönglög eftir Jónas sjálfan. Um leið er fagnað útkomu bókar með þessum lögum hans. Samstarf þeirra félaga, Kristins og Jónasar, er rómað og hafa þeir margoft komið fram saman. En hafa þeir áður flutt lög eftir Jónas? „Nei, eiginlega ekkert,“ svarar Kristinn. „Ég hef sungið eitt þeirra …“ „Þetta er ekkert til að tala um,“ skýtur Jón- as inn í, hógværðin uppmáluð. En hvaða lög eru þetta eftir hann? „Allt mögulegt,“ svarar hann. „Sum eru ófullgerð, við önnur verður ekki meira gert; þetta eru lög sitt af hvoru tagi. Ég finn stundum ljóð sem lætur mig ekki í friði og frekar en að horfa á fréttirnar sest ég og punkta eitthvað niður. Ég lít ekki á mig sem tónskáld,“ segir Jónas brosandi og bætir við: „Söngvararnir hafa kennt mér ýmislegt og ég er samgróinn hljóðfærinu. Þetta er ávöxtur þess. Ég hef verið í ævilöngu námi hjá söngv- urum.“ „Já,“ bætir Kristinn við og glottir. „Ætlar eggið nú að fara að kenna hænunni …“ Lögin hefur Jónas samið við ljóð ýmissa skálda, eins og Kristjáns frá Djúpalæk, Stef- áns Harðar Grímssonar, Snorra Hjartarsonar, Hannesar Péturssonar og Jóns úr Vör. Þá eru í bókinni útsetningar Jónasar við lög eftir Ing- unni Bjarnadóttur og Bjarna Þorsteinsson. Lagaflokkur við ljóð Þorsteins Á tónleikunum flytja þeir Jónas og Kristinn flokk sjö laga sem tónskáldið John Speight samdi sérstaklega fyrir þá árið 2002, við ljóð Þorsteins frá Hamri. Segjast þeir ekki hafa haft tíma til að flytja þau fyrr en nú og er þetta því frumflutningur á þeim, rétt eins og hluta laga Jónasar. „Hvað mig áhrærir þá er þrennt á þessum tónleikum sem ég hef sungið áður. Eitt lag eft- ir Jónas og tvær aríur eftir Mozart,“ segir Kristinn. „Við byrjum á fimm lögum eftir Beethoven sem öll eru við ítalska texta eftir Metastasio. Það er lítið til af lögum eftir hann við texta á ítölsku en það gefur þeim nokkuð annan svip, það er meiri lína, meira „legato“ í þeim, út af tungumálinu.“ Eftir Mozart flytja þeir þrjár aríur, eina úr Don Giovanni, aðra úr Brúðkaupi Figaros og loks eina konsertaríu. „Finn stundum ljóð sem lætur mig ekki í friði“  Kristinn og Jónas frumflytja lög eftir Jónas sjálfan og John Speight Morgunblaðið/Einar Falur Tónskáld og söngvari Jónas Ingimundarson, John Speight og Kristinn Sigmundsson í Salnum. Myndlistarkonurnar Ingi- björg Jónsdóttir og Hildi- gunnur Birgisdóttir spjalla á morgun, sunnudag klukkan 15, við gesti um sýningar þeirra sem nú standa yfir í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Ingibjörg sýnir sviðsett- an vefnað í Ásmundarsal og Arinstofu. Hildigunnur Birgisdóttir sýnir í Gryfjunni og myndgerir þar í innsetn- ingu jöfnu sem hún hefur unnið með undan- farin ár og kallar „Það verður þeim að list sem hann leikur“. Listamanna- spjall í Lista- safni ASÍ Ingibjörg Jónsdóttir Í dag klukkan 15 verður opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrsta sýningin af fimm í sýn- ingaröð þar sem verk Leifs Þor- steinssonar ljósmyndara verða sýnd, verk byggð á polaroid-tækni. Leifur er einn af brautryðj- endum iðnaðar- og auglýsinga- ljósmyndunar hér á landi. Hann fæddist í Reykjavík árið 1933 og nam í Kaupmannahöfn, fyrst eðlis- og efnafræði en sneri sér síðan að ljósmyndun. Leifur hefur haldið margar sýningar á myndum sín- um, innanlands og utan, og m.a. einkasýningar í Bogasal, Stöðla- koti og Ljósmyndasafni Reykjavík- ur. Leifur var einn af stofnendum Ljósmyndasafnsins sem síðar varð Ljósmyndasafn Reykjavíkur og verður þessi fyrsti hluti sýning- araðarinnar opnaður á 30 ára af- mælisári þess. Á sama tíma verður þar opnuð sýning Orra Jónssonar, Innviðir. Morgunblaðið/Einar Falur Ljósmyndarinn Leifur Þorsteinsson er brautryðjandi í iðnaðar- og auglýs- ingaljósmyndun, merkur fagmaður og listamaður í miðlinum. Sýningaröð með verk- um Leifs opnuð í dag Sýningarstjórinn Markús Þór Andrésson leiðir gesti um sýninguna Án áfangastaðar í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur á morgun, sunnudag, klukkan 15. Útgangspuntur sýningarinnar er ferðahugurinn og upplifun ferðamannsins á því umhverfi sem verður á vegi hans. Íslenskir og erlendir listamenn vinna út frá ólíkum tengslum við staði sem eru ýmist fjarlægir eða nálægir, hvort heldur er í tíma eða rúmi. Meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni eru Ein- ar Garibaldi, Húbert Nói, Ólafur Elíasson, Hamish Ful- ton, Kristinn E. Hrafnsson og Inga Þórey Jóhannsdóttir. Markús Þór með leiðsögn Markús Þór Andrésson Sýningunni Ný aðföng lýkur á Kjarvals- stöðum á morgun, sunnudag. Á undanförnum fimm árum hafa 711 lista- verk bæst í safneign Listasafns Reykjavíkur og hefur hluti þeirra verið til sýnis í Vest- ursal síðustu vikur. Á þessum tíma hafa 245 listaverk verið keypt í „almenna safneign“ en þar á meðal eru þrjú málverk eftir Jóhannes Kjarval. Einnig hafa safninu borist rausnarlegar gjaf- ir en sú stærsta er frá Erró, alls 366 verk. Aðrar stórar gjafir eru með verkum eftir Mel Ramos og Brian Griffin. Verkin eru ólík, allt frá fágætu Kjarvals- verki til hins einstaka Gullhúðaða potts eftir Jean-Pierre Raynaud sem Erró færði safninu nýlega að gjöf. Einnig eru stórar innsetn- ingar meðal nýrra verka safnsins, en þær krefjast stærri salarkynna en Kjarvalsstaðir bjóða upp á. Aðfangasýningu lýkur á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.