Morgunblaðið - 25.03.2011, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 5. M A R S 2 0 1 1
Stofnað 1913 71. tölublað 99. árgangur
MÚSÍKTILRAUNIR
HEFJAST Í
TJARNARBÍÓI
SÝNING STEIN-
UNNAR OPNUÐ
Í NEW YORK
HALDA SKVÍSU-
FATAMARKAÐ
Á PRIKINU
SKÚLPTÚRAR Á TORGI 36 FATASJÚKAR VINKONUR 1030 ÁR AF TILRAUNUM 40
Morgunblaðið/Golli
Glitnir Steinunn Guðbjartsdóttir, formað-
ur slitastjórnar, kynnir stöðu mála í gær.
Slitastjórn Glitnis telur í hæsta
máta ólíklegt að ráðist verði í gerð
nauðasamninga á þessu ári. Enn
séu of margir endar lausir í upp-
gjöri þrotabúsins. Við gerð nauða-
samninga þrotabús fjármálafyrir-
tækja leggja skilanefndir og slita-
stjórnir niður störf og kröfuhafar
taka við félaginu. Fram kom á
kynningarfundi Glitnis í gær að
slitastjórnin hygðist freista þess að
hefja útgreiðslur til kröfuhafa á
þessu ári. Útgreiðslur úr þrotabú-
um íslensku bankanna verða einna
stærstu aðgerðir sinnar tegundar,
að mati slitastjórnarinnar. Hanna
þarf nýjan hugbúnað frá grunni til
að geta ráðist í það verkefni að
greiða hundruð milljarða til kröfu-
hafa gömlu bankanna. »16
Engir nauðasamn-
ingar hjá Glitni
á næstunni
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Til stóð að aðilar vinnumarkaðarins,
SA og ASÍ, funduðu með ríkisstjórn-
inni fyrir hádegi í fyrradag, en sá
fundur var sleginn af vegna þess að
SA og ASÍ töldu að ekki lægi nógu
skýrt fyrir hvaða stefnu ríkisstjórnin
hyggst taka í sjávarútvegsmálum og
framkvæmdum á vegum ríkisstjórn-
arinnar. Þetta staðfesti Vilmundur
Jósefsson, formaður Samtaka at-
vinnulífsins, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Það var búið að ákveða fund kl.
11 í gærmorgun, en það var talið að
það væri verið að vinna á svo mörg-
um stöðum að ýmsum málefnum að
slíkur fundur hefði lítinn tilgang og
við töldum ekki tímabært að setja á
slíkan fund, sem yrði í besta falli eitt-
hvert snakk. Þetta var bæði mat
okkar hjá SA og ASÍ og ákveðinna
embættismanna,“ sagði Vilmundur.
Vilmundur segir að nú bíði SA eft-
ir svörum frá ríkisstjórninni um það
hvort hún er reiðubúin að setjast nið-
ur með þeim og ræða um sjávarút-
vegsmál. „Slíkur fundur hefur enn
ekki fengist og við bíðum bara eftir
tímasetningu hans og gerum okkur
vonir um að hann verði haldinn á
morgun (í dag – innsk. blaða-
manns),“ sagði Vilmundur.
Hefja þarf viðræður af alvöru
Vilmundur segir að verið sé að
ræða ýmis mál við ríkisvaldið sem sé
góður gangur í en önnur mál standi
út af svo til órædd.
Vilmundur segir að aðilar vinnu-
markaðarins séu mjög stífir á því að
nú þurfi að fara að ræða við ríkis-
stjórnina af fullri alvöru um sjávar-
útvegsmál, framkvæmdir á vegum
ríkisins og lífeyrismál, svo stór mál
séu nefnd. „Við þurfum að fá ákveðin
svör núna. Við getum ekki verið að
dunda okkur við þetta langt fram-
eftir vori,“ sagði Vilmundur Jósefs-
son.
Þurfum ákveðin svör núna
Aðilar vinnumarkaðar eru orðnir langeygir eftir svörum ríkisstjórnarinnar
SA vilja ræða fiskveiðistjórnun og framkvæmdir á vegum ríkisins
Morgunblaðið/Golli
Gagnrýnd Jóhanna Sigurðar-
dóttir í stjórnarráðinu.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Deilt er hart á Jóhönnu Sigurð-
ardóttur forsætisráðherra vegna úr-
skurðar kærunefndar jafnréttismála
sem telur ráðherra hafa brotið lög í
fyrra þegar karlmaður var skipaður
í nýtt embætti skrifstofustjóra í for-
sætisráðuneyti. Meðal fimm efstu í
hæfnismati voru fjórar konur.
Ein þeirra, Anna Kristín Ólafs-
dóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður
umhverfisráðherra og þar áður að-
stoðarmaður borgarstjóra, kærði
niðurstöðuna. Álítur kærunefndin
að hún hafi verið að minnsta kosti
jafnhæf og sá sem var ráðinn.
„Í rauninni var gengið enn frekar
á rétt þeirra þriggja kvenna sem
voru fyrir ofan mig ef gengið er út
frá því að röðunin hafi verið mark-
tæk sem kærunefndin gerir reyndar
ekki,“ segir Anna Kristín.
Jóhanna segist ekki hafa viljað
ganga gegn niðurstöðu ráðgjafa
sem hafi lagt faglegt mat á umsókn-
ir. Vill ráðherra að „hlutlaus rýni-
hópur“ fari yfir störf kærunefnd-
arinnar. »2, 12
Fjórar konur og einn karl
Jóhanna vill að rýnihópur fari yfir störf kærunefndar
HönnunarMars hófst í höfuðborginni í gær og
stendur í fjóra daga en um er að ræða hönn-
unarhátíð þar sem boðið er upp á fjölda sýninga
og fyrirlestra sem endurspegla fjölbreytta flóru
íslenskrar hönnunar. Hátíðin setur sannarlega
svip á mannlífið enda eru yfir hundrað viðburðir
á dagskránni um alla borg, meðal annars í Lista-
safni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu þar sem gestir
virtu fyrir sér íslenska tískuhönnun í gær.
Hátíð íslenskrar hönnunar hafin í Reykjavík
Morgunblaðið/Ómar
Greiðendur
fjármagns-
tekjuskatts
greiða 18% skatt
af öllum sölu-
hagnaði verð-
bréfa samkvæmt
skattframtali í
ár. Um er að
ræða breytingu
frá því í fyrra,
þegar skattlagn-
ing miðaðist við hvenær hagnaður
eða vaxtatekjur mynduðust, en
fjármagnstekjuskattur hefur hækk-
að þrisvar frá því um mitt sumar
2009. »16
Ólík skattlagning
milli ára á fjármagn
Skattheimtan
breytist.
„Ég nenni varla að taka þátt í þess-
ari umræðu lengur. Það þarf að
standa faglega að þessu og byggja
sérhannað fangelsi. Ekki
taka í notkun gamla ís-
brjóta, gáma eða annað hús-
næði langt frá höfuðborg-
arsvæðinu,“ segir Páll E.
Winkel, forstjóri Fangels-
ismálastofnunar, um þá
hugmynd að nota Sjafn-
arhúsið á Akureyri sem
fangelsi.
Í nýlegu minnisblaði til
innanríkisráðherra, vegna
hugmyndar um fangelsi í gáma-
byggð í Reyðarfirði, kemur skýrt
fram að Páll er algjörlega andvígur
slíkum hugmyndum. Slíkt
yrði afar óhagkvæmt og
bryti gegn mannréttindum.
Hann bendir m.a. á að fang-
ar fái sumir börn sín reglu-
lega í heimsókn og það yrði
tímafrekt og dýrt fyrir
barnaverndaryfirvöld að
flytja börn út á land til að
hitta foreldra sína undir eft-
irliti. Fangar verði ekki vist-
aðir sem búpeningur. »4
Verksmiðjur, gámar
og ísbrjótar duga ekki