Morgunblaðið - 25.03.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2011
Innlendir og erlendir ráðamennviðurkenna ekki opinberlega að
tengsl séu á milli Icesave og ESB-
aðildarumsóknar Íslands. Á bak við
luktar dyr dettur hins vegar engum í
hug að neita þessum tengslum.
Og tengslinkomu
glöggt í ljós
þegar Við-
skiptablaðið
lét kanna fyrir
sig afstöðu til ESB-aðildar og stuðn-
ing við Icesave-lögin.
Þrír af hverjum fjórum þeirrasem segja já við aðild að ESB
ætla að segja já við Icesave, sem er
þrefalt meiri stuðningur en hjá þeim
sem eru andvígir aðild að ESB.
Þetta er ekki aðeins af því að þessihópur segi já við öllu umhugs-
unarlaust, heldur miklu frekar
vegna þess að hann áttar sig á að
Icesave-samningarnir eru liður í því
að koma Íslandi inn í ESB.
Það er engin önnur ástæða fyrirþví að Samfylkingin leggur
slíkt ofurkapp á bæði þessi mál. For-
ysta þess flokks er einfaldlega tilbú-
in að greiða tugi eða hundruð millj-
arða fyrir aðgangsmiða að ESB.
Og nú er komin fram enn ein stað-festingin á þessum tengslum.
Myndaður hefur verið hópur undir
nafninu Áfram, sem berst fyrir því
að Íslendingar hengi á sig löglausan
skuldaklafann.
Í þessum hópi eru nánast eingönguyfirlýstir stuðningsmenn aðildar
Íslands að ESB.
Sumir telja öllu fórnandi til aðflytja fullveldið til Brussel.
Áfram gegn hags-
munum Íslands
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 24.3., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri -2 snjókoma
Egilsstaðir -3 snjókoma
Kirkjubæjarkl. 2 slydda
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 7 alskýjað
Ósló 5 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Stokkhólmur 5 heiðskírt
Helsinki -1 heiðskírt
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 16 heiðskírt
Dublin 12 heiðskírt
Glasgow 13 léttskýjað
London 13 heiðskírt
París 18 heiðskírt
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 12 léttskýjað
Berlín 15 léttskýjað
Vín 18 léttskýjað
Moskva -1 skafrenningur
Algarve 18 léttskýjað
Madríd 8 alskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 16 heiðskírt
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -6 heiðskírt
Montreal -2 snjókoma
New York 2 alskýjað
Chicago 0 alskýjað
Orlando 26 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:12 19:57
ÍSAFJÖRÐUR 7:14 20:04
SIGLUFJÖRÐUR 6:57 19:47
DJÚPIVOGUR 6:41 19:27
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ferðafólk getur kynnt sér lifn-
aðarhætti æðarfuglsins á sýningu
Æðarseturs Íslands sem opnuð
verður í Norska húsinu í Stykk-
ishólmi í vor, og keypt sér ekta
dúnsængur og listmuni sem tengj-
ast æðarfuglinum. Þá gefst gestum
svítunnar á Hótel Stykkishólmi
kostur á að kynnast gæðum afurð-
anna af eigin raun með því að sofa
undir dúnsæng.
Feðginin Friðrik Jónsson læknir
og Erla Friðriksdóttir, fyrrverandi
bæjarstjóri í Stykkishólmi, standa
fyrir uppbyggingunni en þau reka
dúnhreinsistöð og útflutningsfyr-
irtæki í Stykkishólmi.
„Ég kynntist þessu fyrst þegar
við fluttum í Stykkishólm en ég
var þá átta ára. Pabbi keypti í fé-
lagi við fleiri Bjarneyjar á Breiða-
firði. Ég fór alltaf með til að tína
dún og ólst upp við þetta,“ segir
Erla. Seinna vann hún við útflutn-
ing á dúni og rekstur
dúnhreinsunarstöðvar, með öðrum
störfum. „Í upphafi var markmið
okkar að fullvinna dúninn í sængur
og flytja þannig út. Ekki hefur
orðið úr því fyrr en nú,“ segir
Erla.
Kynna fuglinn og
nýtingu hans
Hugmyndin komst á fram-
kvæmdastig eftir að Erla sat aðal-
fund Æðarræktarfélags Íslands í
fyrra og hafði hlustað á fyrirlestur
þar sem æðarbændur voru hvattir
til að gera meiri verðmæti úr dún-
inum með því að framleiða og selja
fullunnar vörur. Vitnað var til
reynslu íbúa norskrar eyjar sem
gert hafa veruleg verðmæti úr
þeim litla dúni sem þar fellur
til. „Ég hugsaði með mér: Ef
ekki í Stykkishólmi, þá hvar?“
Erla og Friðrik hafa nú komið
sér upp aðstöðu til að fullhreinsa
dún og framleiða sængur. Afurðin
verður seld undir vörumerkinu
Queen Eider. Jafnframt er unnið
að undirbúningi sýningar Æð-
arseturs Íslands í Norska húsinu í
samvinnu við Byggðasafn Snæfell-
inga. Sagt verður frá nýtingu æð-
arfuglsins og vinnubrögðum við
hreinsun dúnsins. Það verður gert
með myndum en einnig fengið fólk
til að sýna gömlu vinnubrögðin. Þá
er unnið að því í samvinnu við
Náttúrustofu Vesturlands og
Háskólasetur Snæfellsness að
fræða gesti um æðarfugl-
inn og lifnaðarhætti
hans. Minknum
verða einnig gerð skil enda er
hann einn helsti óvinur æðarfugls-
ins. Erla segir að reynt verði að
kynna það merkilega samspil
manns og fugls sem skapar verð-
mætin. Maðurinn verndi varpið og
fái dún í staðinn. Sýningin verður
opnuð í byrjun júní.
Listamenn að störfum
Í versluninni í Norska húsinu
verður ekki aðeins boðið upp á
sængur heldur einnig leitast við að
finna fleiri vörur sem tengjast
æðarfuglinum. Þannig eru þrjár
listakonur á staðnum að búa til
minjagripi sem tengjast fuglinum.
Þá hefur Erla áhuga á að fá til liðs
við sig hönnuði og framleiðendur á
fatnaði eða útivistarvörum sem
vildu nýta dún í vörur sínar.
Rúsínan í pylsuendanum er síð-
an samstarf við Hótel Stykk-
ishólm. Gestum svítunnar gefst
kostur á að kynnast þessari ein-
stöku og nánast séríslensku afurð
af eigin raun með því að sofa undir
dúnsæng frá Queen Eider.
Ferðafólki boðið að bregða
sér undir alvöru dúnsæng
Sýning Æðarseturs Íslands opnuð í Norska húsinu í Stykkishólmi í vor
Fræðsla um lifnaðarhætti æðarfugls Verslun með dúnsængur og listmuni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Æðardúnn Erla Friðriksdóttir og Friðrik Jónsson eru byrjuð að hreinsa
dún í sængur sem seldar verða í verslun í Norska húsinu í sumar.
„Það er svo gaman að vera úti í
náttúrunni og innan um fugl-
ana,“ segir Friðrik Jónsson
æðarbóndi. Friðrik starfaði um
árabil sem héraðslæknir í Stykk-
ishólmi en tók sér ávallt frí á
sumrin til að sinna æðarvarpinu,
fyrst í Bjarneyjum og síðar í
Hvallátrum þegar hann eignaðist
hlut í þeim. Nú er hann kominn á
eftirlaun og getur sinnt áhuga-
málinu af enn meiri krafti.
Friðrik segir að vegna
þess hversu lengi æðar-
fuglinn hafi verið friðaður
hér sé hann mun gæfari
en æðarfugl í öðrum
löndum.
Í náttúrunni
LÆKNIR Í EYJABÚSKAP
Æðarfugl
» Æðarfuglinn hefur verið al-
friðaður á Íslandi í meira en
150 ár.
» Um þrjú af þeim fjórum
tonnum af æðardúni sem
framleidd eru í heiminum ár-
lega verða til á Íslandi. Því má
með nokkrum sanni segja að
afurðin sé séríslensk.
» Eftirspurn eftir æðardúni
hefur vaxið á ný og verð hækk-
að, eftir samdrátt á heims-
markaði.
Æðarkollur
í Eyjafirði