Morgunblaðið - 25.03.2011, Qupperneq 10
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjólabrjálæði Þær voru búnar að draga fram ótal kjóla og fínerí vinkonurnar Anna Kristín, Hildur og Þórunn.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við ætlum að losa okkur viðþað sem við erum hættarað nota í fataskápunumokkar,“ segir Þórunn Ant-
onía Magnúsdóttir tónlistarkona, en
hún og vinkonur hennar Hildur
Selma Sigbertsdóttir og Anna Krist-
ín Jensdóttir verða með skvísufata-
markað á Prikinu á morgun, laug-
ardag milli klukkan 14 og 18. „Við
erum allar fatafrík og ein okkar er
fatahönnuður, Anna Kristín hannar
undir nafninu Starstruck design og
hún ætlar bæði að vera með föt úr
eigin hönnunarlínu og úr sínum
einkafataskáp.“
Þórunn Antonía segist hafa
sankað að sér allskonar gullmolum í
fataskápana á ferðalögum sínum.
„Og nú er svo komið að þetta er orðið
allt of mikið og veitir ekki af að létta
eitthvað á þessu. Við ætlum að láta
frá okkur það sem við erum orðnar
þreyttar á og gefa einhverjum öðrum
tækifæri til að nota það. Maður fær
nóg af sínum eigin fötum en öðrum
finnst þau kannski fjársjóður og það
er frábært ef þau öðlast nýtt líf hjá
nýju fólki.“
Ég er alæta á föt og fylgi ekki
sérstaklega tískunni
Þórunn Antonía hefur farið víða
um veröldina í tengslum við sönginn
og tónlistina og á flakki sínu hefur
hún keypt mikið af fötum. „Ég hef
búið í Bandaríkjunum, Bretlandi og
Írlandi og líka varið góðum tíma í
Danmörku og Japan. Ég játa fúslega
að hafa komið við í allnokkrum fata-
búðum á þessum ferðalögum mínum.
Ég er mikil alæta á föt, ég fylgi ekki
neitt sérstaklega tískunni, ég klæði
mig bara í það sem mér finnst fallegt.
Ég er mikið fyrir vintage-föt eða
gömul föt, mér finnst þau skemmtileg
og það verður nóg af þeim á mark-
aðinum á morgun. Við verðum líka
með eitthvað af skóm en þetta verða
aðallega flíkur og þær eru frá löngu
tímabili. Ég held að elstu flíkurnar
hafi ég keypt í London þegar ég var
átján ára eða fyrir um tíu árum,“ seg-
ir Þórunn Antonía og hlær. „Reyndar
verða þarna vintage-flíkur frá því ég
vann í kílóamarkaðinum í Spútnik
þegar ég var sextán ára. En vintage-
föt fara ekkert úr tísku, því öll tímabil
koma alltaf aftur.“
Erfitt að láta frá sér
uppáhaldsflík
Þórunn Antonía segist ekki vera
mikið fyrir að henda hlutum og það
sé ástæðan fyrir því að hlaðist hefur
upp í fatahirslunum hjá henni sem
raun ber vitni. „En nú er kominn tími
til að endurnýja. Þó það geti vissu-
lega verið erfitt að láta frá sér mikla
uppáhaldsflík þá kemur alltaf ný flík í
staðinn. Og það er alltaf mjög gaman
að endurnýja,“ segir Þórunn Antonía
sem lofar góðu úrvali af frumlegum
og fjölbreyttum fötum á skvísumark-
aðinum og allir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi og verðinu er
stillt í hóf. „Allt verður á góðu og
kreppuvænu verði,“ segir Þórunn
Antonía sem var að semja lag í stof-
unni heima hjá sér þegar blaðamaður
náði tali af henni.
Skvísur tæta föt úr
skápunum og selja
Þær eru allar þokkalega fatasjúkar og hafa viðað að sér allskonar fötum á flakki
sínu um heiminn og ein þeirra hannar sjálf föt. En nú flæðir úr yfirfullum fata-
skápum þeirra og þær ætla að skunda með helling af fötum á Prikið og halda þar
skvísufatamarkað á morgun, leyfa flíkum að öðlast nýtt líf hjá nýjum eigendum.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2011
Það er óneitanlega gaman að klæð-
ast fötum sem hafa sál og sögu frá
fyrri tíð, en það er líka einstaklega
umhverfisvænt. Og veitir ekki af á
krepputímum að sem flestir tileinki
sér þann sparandi lífsstíl að endur-
nýta hluti. Á vefsíðunni vintage-
trends.com er ótrúlegt úrval vintage-
fatnaðar, eða gamalla notaðra klæða
eins og það er kallað á íslensku, en
vintage á við um föt sem eru frá ár-
unum 1920 til 1980. Vintagetrends-
.com er vefverslun og því er hægt að
kaupa sér klæðin fín ef fólk vill og
getur, en það er ekki síður gaman að
vafra um og skoða sér til ánægju.
Þarna eru vintage-föt fyrir karla, kon-
ur og börn en einnig fylgihlutir, hand-
klæði, gardínur, koddaver o.fl. Fyrir
þá sem hafa áhuga á herklæðum (Mi-
litary Clothing), þá er nóg af þeim á
þessari síðu og líka glás af „Hippie“-
fötum og „Retro“.
Vefsíðan www.vintagetrends.com
Með sál Þetta dásamlega útsaumaða veski er hægt að sjá á síðunni.
Gamalt með sál og sögu
Það er alltaf gaman að sjá ungt og
upprennandi fólk á leiksviði og nú er
tækifæri til að skella sér í Stúdenta-
leikhúsið í kvöld, annað kvöld eða
sunnudagskvöld og sjá verkið DNA
eftir Dennis Kelly. Tvö verk eftir
Dennis hafa verið sýnd á Íslandi,
Munaðarlaus og Elsku barn. Í tilkynn-
ingu segir að Dennis takist í verkum
sínum á við siðferðilegar spurningar
og oft birtist þar sterkar konur, of-
beldi og sveigjanleg persónu-
einkenni. Í þessu verki er m.a. fjallað
um afleiðingar eineltis. Leikstjóri er
Sara Marti Guðmundsdóttir og miða-
pantanir á www.studentaleikhusid.is
og í síma 869-0326.
Lokasýning verður 9. apríl.
Endilega …
… farið í Stúd-
entaleikhúsið
Morgunblaðið/Kristinn
Ung og upprennandi Frá samlestri á
DNA áður en æfingar hófust.
Ljósmynd/Bernhard Kristinn Ingimundarson
Sjökross Krossinn er þemað í nýrri ICON línu Gling Gló skartgripa, en eitt menið verður selt til styrktar Lífi.
Til sölu Laugavegur 77
Landsbankinn óskar eftir tilboðum í fasteignina
Laugaveg 77 í Reykjavík.
Fasteignin er alls 4.729 m2 að stærð og er skrifstofu-
og þjónustuhúsnæði. Nóg af bílastæðum þar sem
umtalsverður byggingaréttur er fyrir bílageymslu og
skrifstofuhúsnæði.
Tilboð skulu berast fyrir kl. 17:00 þann 31. mars í
móttöku Landsbankans Hafnarstræti 5 merkt:
Eignadeild Landsbankinn – L77
Hafnarstræti 5 Reykjavík
b/t Valgeir Valgeirsson
Nánari upplýsingar veita:
- Valgeir Valgeirsson sími 410 7840
- Þorsteinn Egilson í síma 899 5254 eða í
thorsteinn.egilson@landsbankinn.is
Skannaðu kóðann
til að fara á
vintagetrends.com