Morgunblaðið - 25.03.2011, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2011
✝ Hörður AlbertG. Albertsson
forstjóri fæddist í
Reykjavík 28. maí
1928. Hann and-
aðist á líknardeild
Landakotsspítala
15. mars 2011.
Foreldrar Harð-
ar voru: Guð-
mundur Alberts-
son, forstjóri
útflutningsversl-
unar, fæddur í Leiðarhöfn á
Vopnafirði 2. júní 1883, dáinn í
Reykjavík 11. des. 1970, og kona
hans Guðný Jóna Guðmunds-
dóttir, fædd á Borgarfirði
eystra 12. febrúar 1902, dáin í
Reykjavík 8, des. 1994. Systkini
Harðar: Atli skipstjóri, (látinn),
Guðrún, búsett í Bandaríkj-
Ásgeir, f. 26. des. 1961, Hörður
Þór, f. 12. ágúst 1967, Þórdís
Rós, f. 9. des. 1970. Guðmundur
Albert, f. 18. okt 1972, og Inga
Rósa, f. 1. mars 1977. Synir
Harðar og Helgu Lárusdóttur í
Reykjavík: Hörður, f. 20. mars
1952, og Haukur, f. 20. mars
1952.
Hörður varð stúdent frá MR
1948 og tók embættispróf í lög-
fræði í HÍ 1954. Hann starfaði
við útflutningsfyrirtæki föður
síns, G. Albertsson & Co., síðar
meir sem meðeigandi og for-
stjóri þess. Hörður var mikill
áhugamaður um íþróttir, æfði
fimleika og keppti í þeim á
yngri árum. Hann var í úrvals-
flokki KR sem sýndi m.a. á lýð-
veldishátíðinni á Þingvöllum
1944. Hann var og mikill hesta-
maður og átti mikið af keppn-
ishestum og gæðingum. Afkom-
endur Harðar eru nú 66.
Hörður verður jarðsunginn
frá Háteigskirkju í dag, 25.
mars 2011, og hefst athöfnin kl.
15.
unum, Auður, bú-
sett í Reykjavík.
Fyrri kona: Herdís
María, f. 26. okt.
1925, Jóhanns-
dóttir arkitekts
Kristjánssonar og
konu hans, Mat-
hilde Victoria Gön-
dahl, norskrar ætt-
ar, Hörður og
María skildu. Börn
þeirra Guðný, f. 11.
júní 1951, Mathilde Viktoria, f.
20. mars 1954 (látin), Guðrún
Auður, f. 4. júlí 1957, Erla Ruth,
f. 4. júní 1961. Seinni kona: Sess-
elja Þórdís, f. 16. jan. 1941, Ás-
geirsdóttir, forstjóra í Reykja-
vík Bjarnasonar, og konu hans,
Rósu Jórunnar Finnbogadóttur.
Börn Harðar og Þórdísar: Helgi
Með neistann í grænum aug-
um, kvikur á fæti og fullur af orku
og framkvæmdagleði. Frum-
kvöðull sem lét ekki deigan síga,
en ruddi á braut þeim hindrunum
er urðu á hans vegi. Hann útskrif-
aðist með embættispróf í lögfræði
frá Háskóla Íslands en rak út-
flutningsfyrirtækið G. Albertsson
& Co. um árabil eftir fráfall föður
síns. Hann státaði af svarta belt-
inu í júdó, hafði unun af laxveiði
og rósarækt og var um tíma með-
al hinna umsvifamestu hérlendis
á sviði hestaíþrótta. Hann hefur
ferðast víða um heiminn og bjó að
ríkulegum tungumálaforða. Hann
var einstakur og engum öðrum
líkur.
Hvernig er hægt að kveðja for-
eldri, sem hefur verið hluti af líf-
inu frá fyrstu minningu? Hversu
vel sem við teljum okkur vera
undirbúin verðum við alltaf börn
foreldra okkar og grátum sárt
missi þeirra. Á tímum sem þess-
um fara tilfinningar á flug, hug-
urinn reikar aftur til æskuára og
kallar fram minningar er umvefja
og eru sem plástur á sárin. Mig
langar að deila örfáum minninga-
brotum með þeim sem þetta lesa.
Í fanginu á pabba á Smáragötu
5. Pabbi er að lesa teiknimynda-
sögu fyrir okkur Maddýju systur,
en við eigum sitt hvort hné hans
og sitjum í fangi hans á kvöldin
meðan hann les fyrir okkur sögur
með leikrænum hætti. Dagur er
að kveldi kominn, hann hefur
komið við í sjoppu á leið heim og
keypt fyrir okkur kókósbollur. Í
útvarpinu kveður við hlátur hlust-
enda í þætti Svavars Gestssonar
og mamma brosir við. Hún er að
prjóna agnarlitla peysu, enda er
von á þriðja barninu, Auði. Ekki
leið þó á löngu þar til við syst-
urnar vorum orðnar fjórar og
fluttar í stærðarhús, pabbi var
stórhuga og hugsaði vel um sína.
Yngsta systirin, Erla Ruth, fædd-
ist aðeins fjórum dögum eftir
flutninginn í Litlagerði 4. Sama
árið kynnti pabbi mig fyrir tví-
burabræðrum mínum og mér
fannst mikið til koma, loksins átt-
um við líka bræður. Árin liðu
nokkur og leiðir pabba og
mömmu skildi er hann kvæntist
síðari eiginkonu sinni Þórdísi og
stofnaði með henni fjölskyldu.
Okkur systkinum fjölgaði óðum
og pabbi átti orðið „fótboltalið“
enda var fjörugt í jólaboðum fjöl-
skyldunnar. Í áranna rás óx ætt-
artré pabba, held hann hafi verið
hættur að telja ört fjölgandi af-
komendur en barnabarnabörnin
eru jafnframt ófá.
Skin og skúrir verða á lífsbraut
okkar allra og stærsta áfallið í
ævi pabba var sorglegur missir
næstelstu dóttur hans, en Maddý
lést á sviplegan hátt í Viðeyjar-
slysinu hinn 10. september 2005
ásamt sambýlismanni sínum.
Pabbi hlúði alúðlega að leiði
þeirra fram á hinsta dag.
Hann greindist með krabba-
mein fyrir rúmlega þremur árum
og ætlaði sannarlega ekki að gefa
eftir heldur barðist af hörku þar
til yfir lauk. Hann taldi sig eiga
einhver árin eftir og var ekki
tilbúinn að láta í minni pokann
þótt þjáður væri. En skæður
sjúkdómurinn lagði að lokum
hraustmennið að velli.
Ástkær faðir minn skilur eftir
sig auð á jörðu, hann lifir áfram í
okkur öllum sem hann elskum og
í minningu þeirra sem hann
þekkja. Elsku pabbi, ég sendi þér
koss, Guð veri með þér.
Guðný Harðardóttir.
Elsku pabbi minn, ætla ég að
fá að segja nokkur orð áður en ég
kveð þig í hinsta sinn. Þú ert al-
veg einstakur maður og held ég
að það séu fáir eins og þú eftir í
þessum heimi, og varst þú svo
sannarlega gerður úr stáli með
þitt svarta blóð. Situr mér fast í
minni á yngri árum þegar ég gat
alltaf toppað hina krakkana í met-
ingnum og sagt stolt að pabbi
minn ætti sko tvö sverð og væri
með svarta beltið í júdói, og trúðu
mér, elsku pabbi, ég notaði það
óspart.
Biðin í tröppunum á Hring-
braut á mánudagskvöldum eftir
því að þú kæmir heim með
danska Andrésblaðið skilur líka
eftir góðar minningar. Gleði-
stundin að fá að fara með þér í
Blóm og ávexti á hverjum laug-
ardegi og kaupa rósir handa
mömmu og ég og Þórdís systir
fengum alltaf sína rósina hvor
sem ég mátti velja. Þú varst
strangur og ákveðinn í uppeldinu
og þakka ég þér kærlega fyrir
það, ég skil það í dag þó að ég hafi
ekki skilið það í æsku. Þú og
mamma hafið sýnt fram á það að
það er ekki í boði að gefast upp,
þrjóskan í þér að halda áfram að
vinna þinn harða bransa er aðdá-
unarverð, sérstaklega þegar þú
sýndir manni sölurnar þínar bros-
andi hringinn og tókst þinn ein-
staka gleðidans.
Þú sýndir þinn mjúka mann í
ræktun á fallegustu rósum sem
maður hefur séð og að næra elsku
smáfuglana úti í garði í Meðal-
holti. Ég, Elva og Loki munum
passa að þeir fái áfram að borða,
elsku pabbi, þegar við heimsækj-
um mömmu. Ég veit að það skipt-
ir þig miklu máli. Mig langar að
þakka þér fyrir að hafa síðustu
mánuðina sýnt fram á þann mann
sem þú hefur alltaf haft að geyma
þarna innst inni í hjarta þínu og
leyft börnunum þínum og barna-
börnum að njóta þess og minnast
þín sem afskaplega hjartahlýs og
glettins manns.
Það er sagt að börn velji sér
foreldra sína áður en þau koma í
heiminn og er ég mjög þakklát
fyrir að hafa valið þig og mömmu.
Nú mun ég segja fyrir þig bænina
sem þú kenndir mér þegar ég var
lítil stelpa og svo þú vitir það að
þá er Elva að læra hana hugsandi
til þín og er hún núna kölluð afa-
bæn.
Trúðu á tvennt í heimi
tign sem æðsta ber:
Guð í alheimsgeimi,
Guð í sjálfum þér.
(Steingr. Thorsteinsson.)
Góða nótt, elsku pabbi minn,
og Guð veri með þér.
Þín dóttir,
Ingibjörg Rósa.
Elsku pabbi minn, í minning-
unni varstu strangur, ákveðinn en
sanngjarn faðir. Þú lagðir mikið í
að kenna okkur strax frá upphafi
almenna mannasiði svo sem borð-
siði og annað sem gott er að búa
að. Ég man þegar ég var lítill
drengur og þú barst á mig smyrsl
vegna exems, hvernig þú hvattir
okkur til að naga ekki neglurnar
og bauðst okkur tíkall fyrir
hverja nögl sem fékk að vera,
hvernig þú greiddir hárið á mér
fast og ákveðið með fína brúna
hárburstanum þínum og settir
jafnvel „hairtonic“ í hárið, mér til
lítillar ánægju. Þú varst alltaf
mikill greifi í öllu sem þú gerðir
og mér er alltaf minnisstæð ferð-
in til London þar sem ég fékk að
fara með þér í „bisnessferð“ og þú
fórst með mig á Casino sem þú
hafðir einhvern tímann farið á
með Tony ( Mr. Murphy). Þegar í
anddyrið kom sagðist þú vera
meðlimur en enginn kannaðist við
Mr. Albertsson, en þú gafst þig
ekki og á endanum kom yfirþjónn
staðarins með gamla skruddu og
þar var því flett upp að þú varst
ekki aðeins meðlimur heldur
varst þú heiðursfélagi sem hafðir
verið við opnun spilavítisins. Ég
man fyrstu kynni þín af Sollu
minni þar sem ég kom með hana
upp á loft á Hringbrautinni og
Þórdís systir hafði sýnt ykkur
eintak af Löggulífi og þú sagðist
nú hafa séð töluvert meira af
henni og glottir. Ég man hvernig
þú skikkaðir vini mína til þess að
fara úr úlpunum þegar þeir voru
niðri í herberginu mínu og ekki
varstu hrifinn af hávaðasamri eig-
hties-músíkinni. Einu sinni skildir
þú eftir skilaboð til mín á blaði
sem þú settir í bjórkassa sem ég
var gjarn á að heimsækja niðri í
búri en þau sögðu: „Hörður Þór,
þú átt ekki þennan bjór.“ Eftir
það bað ég um leyfi fyrir bjór. Þú
varst góður tengdafaðir og ég
man hvað ég var stoltur af að
standa með þér upp við altarið
þegar ég giftist Sollu. Þú varst
alltaf svo flottur, svo þráðbeinn í
baki og teinréttur, hnipptir í mig
þar sem ég var farinn að háskæla
í kirkjunni við hliðina á þér og
sagðir á þinn hátt: „Svona.“ Þú
kenndir mér líka að vera herra-
maður og ég held jafnvel að ég
hafi erft sjarmann þinn. Þú varst
líka góður afi og Snædís elskar
þig mikið. Hún kveikti á kerti
daginn sem þú kvaddir þennan
heim og setti við hliðina á mynd-
inni sem ég á af þér þar sem þú
heldur á mér um það bil eins árs.
Ég á eftir að sakna þín, elsku
pabbi minn, nú ertu farinn en ég
mun alltaf muna þær stundir sem
við áttum saman í lokin þar sem
við sátum saman, ræddum um
heima og geima eða horfðum
saman á spænska fótboltann á
spítalanum og hvað þér þótti gott
að fá roastbeef og bernaisesósu
með. Þú kenndir mér að fara með
bænir á kvöldin sem barn og sú
bæn sem mér er minnisstæðust
er:
Trúðu á tvennt í heimi
tign sem æðsta ber:
Guð í alheimsgeimi,
Guð í sjálfum þér.
(Steingr. Thorsteinsson)
Guð gefi þér góða nótt.
Hörður.
Pabbi minn sem var fallegur
maður. Pabbi minn sem var með
svarta beltið í júdó og talaði að
mínu áliti ensku betur en inn-
fæddir. Pabbi minn sem átti ell-
efu börn. Pabbi minn sem hlýtur
að hafa verið hefðarmaður í fyrra
lífi svo tamir voru honum þeirra
siðir. Pabbi minn sem hafði áhuga
á að ráða krossgátur og átti ekki
erfitt með það. Pabbi minn sem
var strangur en samt svo blíður.
Pabbi minn sem fannst að konur
ættu að klæðast pilsum. Pabbi
minn sem þoldi ekki tyggjó.
Pabbi minn sem var í einhvers
konar ástarsambandi við Móður
jörð, svo grænir voru hans fingur.
Pabbi minn sem hnerraði hæst
allra, svo hátt að sumum varð um
og ó. Pabbi minn sem gaf mér
pening fyrir hverja ónagaða nögl
á mínum fingrum. Pabbi minn og
amma Dúný. Pabbi minn og Auja
frænka og Atli frændi. Pabbi
minn og ísbjarnastytturnar hans.
Pabbi minn sem hafði unun af því
að veiða lax. Pabbi minn sem
færði mér hest á tröppur heimilis
míns á fermingardaginn minn,
hest með slaufu í faxi.
Pabbi minn sem lagaði besta
kaffi í heimi. Pabbi minn sem
færði mér fallegt safn af nælum
sem veittu mér gleði í æsku og
hafa nú öðlast enn veglegri sess í
hjarta mínu. Pabbi minn sem
hyglaði mér ekki sem dóttur sinni
í vinnu hjá G. Albertsson heldur
kenndi mér mest með því að láta
mig vinna mig upp í starfi. Pabbi
minn sem lánaði mér fyrir flug-
fari til Ameríku, samdi við mig
um afborgarnir sem lagðar voru
inn á sér bók og þegar ég hafði
greitt lokagreiðsluna, mörgum
mánuðum seinna, rétti pabbi
minn mér bókina góðu sem gjöf.
Já,hann pabbi minn kenndi mér
margt.
Pabbi minn gat, mögulega
vegna áðurnefnds sambands við
Móður jörð, galdrað fram fjög-
urra laufa smára sem hann deildi
af gjafmildi með sér. Pabbi minn
sem ég kynntist hvað mest á
námsárum mínum úti í Englandi.
Pabbi minn sem bauð mér þar út
að borða á veitingastöðum sem ég
hélt að tilheyrðu einungis bíó-
myndum. Pabbi minn sem lét út-
búa sérstaklega handa mér köku,
stútfulla af ferskum jarðarberjum
sem voru mitt uppáhald. Pabbi
minn sem söng með enskum þjón-
um: „Hún á afmæli í dag“ þegar
kakan góða með nafninu mínu á,
var borin fram á bíómynda-veit-
ingastað þar sem ég átti allt eins
von á að rekast á drottninguna.
Pabbi minn sem missti flest sín
veraldlegu gæði og reyndar
marga „vini“ þar með. Pabbi
minn sem gafst ekki upp, naut
stuðnings þeirra sem hann elsk-
uðu og virtu. Pabbi minn sem stóð
við sitt. Pabbi minn algjörlega
niðurbrotinn maður við fráfall
Maddýjar systur. Pabbi minn
með sinn sérstaka hósta og ræsk-
ingar. Pabbi minn með sín fallegu
augu og uppbrettu augnhár.
Pabbi minn með nefið mitt … eða
er það öfugt er ég með nefið þitt,
pabbi minn? Hvíl í friði elsku,
besti. Ég er heppin að hafa átt
þig.
Þín elskandi,
Erla Ruth Harðardóttir.
Þegar mér barst andlátsfregn
Harðar setti mig hljóðan, hugur-
inn reikaði aftur til unglingsár-
anna þegar ég kynntist Herði og
fjölskyldunni 1967. Þá vann ég
með skólanum við þrif á bílum.
Eins og margt örlagatengt voru
það hestar sem voru undirrótin
að tengslunum. Ég var hesta-
sveinn hjá Guðbjarti Pálssyni
(Batta rauða) sá hann um að láta
þrífa bíla fjölskyldunnar og fyr-
irtækisins, kom sú vinna í minn
hlut.
Upp frá þessu mynduðust náin
tengsl við fjölskyldu Harðar.
Hörður var reistur maður kná-
lega vaxinn, léttbyggður, gekk
þannig að eftir var tekið, ekki
mannblendinn, sérlundaður og
ekki allra, Hörður var barnmarg-
ur.
Stundaði júdó á árum áður,
náði góðum árangri, studdi dyggi-
lega við greinina, greiddi fyrir
komu heimsþekktra þjálfara af
sinni alkunnu hóværð. Honum
var umhugað um heilsuna, rækt-
aði sinn líkama vel og bar þess
merki.
Við nánari kynni kom í ljós
hversu góðan dreng hann hafði að
geyma. Hann var efnaður, margir
fengu að njóta þess, oftar þeir
sem minna máttu sín, styrkti góð
málefni og runnu ófáar krónur til
góðgerðarmála sem hvergi kom
fram, það var ekki hans háttur að
hreykja sér.
Hörður hafði mikinn áhuga
fyrir kappreiðum, deildum við
þeim áhuga saman, hófst með
okkur langt og farsælt samstarf á
þeim vettvangi.
Eignaðist hann mörg fljótustu
keppnishross landsins. Hann lyfti
hestamennskunni á hærra plan
með aðkomu sinni.
Máttarstólpar Harðar voru
innviðirnir í liðsheildinni, Þórdís
seinni kona Harðar var hans föru-
nautur þann tíma sem okkar leið-
ir lágu saman. Stóð hún sem
klettur með honum og steig öld-
una hvort heldur byrlega eða
móti blés.
Félagsmiðstöð okkar hesta-
krakkanna voru hesthús Fáks við
Elliðaárnar. Oft var mikill galsi í
kringum okkur eins og gerist en í
návist Harðar voum við eins og
kórdrengir og létum lítið fara fyr-
ir okkur.
Minnisstæður er aðburður á
árshátíð Hestamannafélagsins
Fáks kringum 1970, þau hjónin
ákváðu að mæta. Þetta var stór-
viðburður ár hvert, haldinn á
Hótel Borg.
Þarna sátum við til borðs 12
krakkar saman með þeim hjónum
og fór lítið fyrir galgopahættinum
hjá okkur, þegar nærveru Harðar
gætti var óttablandin virðing.
Með aðdáun fylgdist ég með
hvernig hann gaf stutta bend-
ingu, á augabragði birtist þjónn-
inn, þannig gekk kveldið fyrir sig.
Lágmark tveir þjónar að þjón-
usta borðið. Alltaf glasið hjá okk-
ur krökkunum fullt af Coca Cola.
Vá, ekki minnkaði virðingin hjá
okkur um miðnættið, yfirgáfu þau
hjón gleðskapinn sá ég hvar
Hörður gaukaði samanvöndluðu
peningabúnti að þjónunum tveim-
ur sem önnuðust borðið, þeim var
umbunað. Auðsjáanlega þekktu
þeir sinn mann og vissu að þar
var heimsmaður á ferð.
Nú þegar að kveðjustund er
komið, langt og strangt lífshlaup
á enda, er minningin um góðan
dreng efst í huga. Mann sem
sigldi með mikinn byr í seglum og
tókst jafnframt á við storma og
stórsjó en stóð alltaf reistur sama
hvað á dundi, þannig var Hörður.
Sendum við Þórdísi, börnum
og öðrum aðstandendum samúð-
arkveðjur.
Sigurbjörn Bárðarson og
Fríða H. Steinarsdóttir.
Hörður minn, eftir sjötíu ára
kynni þekktum við hvort annað
mæta vel. Okkar kynni hófust í
sveitinni í Dýrafirði. Þar áttum
við ljúfar stundir í þrjú til fjögur
sumur.
Kynnin héldust, við héldum
alltaf sambandi á förnum vegi.
Svo kom að því að þú fluttist til
Hafnarfjarðar og kvæntist Þór-
dísi þinni. Þá urðum við, þú og ég,
Þórdís og Ingimundur bestu vinir
og áttum við saman margar
stundir í leik og gleði. Fórum oft
til London og Norður-Englands á
þínum vegum og skemmtum okk-
ur dásamlega. Í veiðitúra fórum
við með þér oft á sumrin og höfð-
um gaman af. Og svo þegar
hægðist um spiluðum við brids
við öll tækifæri, helst ekki sjaldn-
ar en einu sinni í viku. Allt þetta
og margt, margt fleira gerðum
við saman og höfðum gaman.
Hafðu þökk fyrir allt og allt,
Hörður minn. Þórdís var það
besta sem þú áttir og þú hafðir
áhyggjur af hvað yrði um hana
eftir þinn dag. Ég og Ingimundur
lítum til með henni, hún er okkur
mjög kær.
Hjartans kveðjur,
Sjöfn.
Hörður G.
Albertsson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
BIRNA MATTHILDUR EIRÍKSDÓTTIR,
áður til heimilis í Lindarsíðu 4,
Akureyri,
andaðist á dvalarheimilinu Hlíð að kvöldi
þriðjudagsins 22. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Reynir Viðarsson, Anna Margrét Björnsdóttir,
Björk Viðarsdóttir, Valdimar Freysson,
Gígja Viðarsdóttir,
Harpa Viðarsdóttir, Þorvaldur Jónsson,
Ruth Viðarsdóttir, Teitur Birgisson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar, systir, mágkona og
frænka,
JÓNÍNA HALLDÓRSDÓTTIR,
Birkihlíð 5,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 20. mars.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 30. mars kl. 13.00.
Halldór Axelsson,
Sigurður Axelsson,
Garðar Halldórsson, Lovísa Ölversdóttir,
Dagbjört Halldórsdóttir,
Brynja Kristinsdóttir,
Garðar Kristinsson,
Haraldur Kristinsson.