Morgunblaðið - 25.03.2011, Side 36
Flytjandi Elfa Rún Kristinsdóttir.
Ný tónlistarhátíð verður haldin í
Selinu á Stokkalæk um helgina, 25.
til 27. mars. Hátíðin nefnist Podium
festival en þar kemur ungt fólk víðs-
vegar að úr Evrópu saman og leikur
fjölbreytilega kammertónlist.
Markmiðið er að skapa nýjan vett-
vang fyrir nýja kynslóð flytjenda, til
að leika fáheyrð og ný verk í bland
við þekktar perlur í persónulegu
umhverfi stofunnar í Selinu.
Opnunartónleikar hátíðarinnar
eru kl. 18.30 í kvöld, miðvikudag, og
verða flutt verk eftir Hugo Wolf,
Anton Arensky og E.W. Korngold.
Meðal flytjenda er Elfa Rún Krist-
insdóttir fiðluleikari.
Kvöldtónleikar verða síðan kl.
21.15 með flutningi verka eftir Moz-
art, Milhaud og Sjostakovitsj.
Á laugardag eru tónleikar kl.
15.30 og 19.00, og á sunnudag eru
barnatónleikar klukkan 14.00 og
lokatónleikar kl. 19.00.
Miðapantanir á tónleikana eru í
síma 4875512 eða 8645870.
Hátíð á Stokkalæk
Ungt tónlistarfólk víða að úr Evrópu
www.podiumfestival.com
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2011
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Sýning Steinunnar Þórarinsdóttur
myndhöggvara, Borders, var opnuð
á torginu Dag Hammarskjöld Plaza
á Manhattan í New York í gær. Sýn-
ingin er innsetning með 26 skúlptúr-
um, eftirmyndum fólks í raunstærð;
helmingurinn er steyptur í ál en
helmingurinn í seigjárn. Fólk Stein-
unnar ýmist situr á bekkjum í garð-
inum, stendur eða krýpur.
Torg þetta er milli fyrstu og ann-
arrar breiðgötu, gegnt höfuð-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna.
Verkin eru því staðsett á afar fjöl-
förnu svæði en sýningin mun standa
í sex mánuði. Það var skrifstofa
garðyrkju- og garðastjóra New
York-borgar sem bauð Steinunni að
sýna. Í tilkynningu frá skrifstofunni
segir að þetta sé stærsta listsýning
sem hefur verið sett upp á Dag
Hammarskjöld Plaza og sú fyrsta
sem virkjar allt torgið.
„Þetta kemur mjög vel út. Verkin
virka á torginu eins og ég vonaðist
til og miðaði allt við. Ég er mjög
ánægð með það,“ sagði Steinunn í
gær áður en sýningin var formlega
opnuð. Eftir opnunina í garðinum
var móttaka í Scandinavia House við
Park Avenue.
„Það er mjög mikill áhugi á verk-
unum,“ segir Steinunn. „Við vorum
tvo daga að setja
þau upp enda er
það talsvert mál
og fyrri dagurinn
var erfiður, það
rigndi svo mikið.
En seinni daginn
skein sól, þá fyllt-
ist torgið lífi og
ég fékk margar
ánægjulegar at-
hugasemdir.
Enda myndaðist fínt samband milli
fólks sem fór þar um og verkanna.
Endi torgsins er við byggingu
Sameinuðu þjóðanna og torgið er
mjög alþjóðlegt, þarna fer um fólk
alls staðar að,“ segir hún.
Þetta er mjög langt torg sem verk
Steinunnar dreifast um, en hún set-
ur verkin þanig upp að persónurnar
tengjast.
„Ég var beðin um að gera tillögu
um stað í borginni til að koma verk-
um fyrir. Ég valdi þetta torg og kom
með tillögu um þessa uppsetningu.
Hún var alveg frá upphafi hugsuð
fyrir torgið,“ segir hún.
Millifyrirsögn
Verk Steinunnar hafa vakið sívax-
andi athygli erlendis, til að mynda
hefur sýning með verkum hennar,
sem kallast Horizon, verið á ferða-
lagi milli safna í Bandaríkjunum síð-
ustu misserin og er nú í Georgia Mu-
seum of Art í Georgíu-ríki. Óhætt er
þó að fullyrða að Borders á Dag
Hammerskjöld Plaza verði lang-
fjölsóttasta sýning hennar til þessa.
„Já, án efa,“ segir hún. „Þarna
streymir fólk í gegn og sýningin
mun standa lengi.“
Steinunn segir að Bandaríkja-
menn hafi sýnt verkum sínum mik-
inn áhuga. „Það gengur almennt vel
hjá mér en ekki síst hérna. Það er
mjög ánægjulegt en ég veit ekki
hver skýringin getur verið. Fígúratíf
myndlist á oft upp á pallborðið hér,
fólk er opið fyrir henni. Það sést að
minnsta kosti vel á torginu að fólk
tengist þessum verkum vel.“
Eftir opnunina heldur Steinunn til
Georgíu-ríkis og heldur fyrirlestur í
safninu sem sýnir Horizons.
26 skúlptúrar
á torginu
Viðamikil sýning Steinunnar Þór-
arinsdóttur opnuð á torgi í New York
Á bekk Mannvera úr áli, ein af þrettán, horfir til himins af bekk á torginu.
Steinunn
Þórarinsdóttir
Ljósmynd/James Ewing
Járnfólk Helmingur skúlptúra Steinunnar á Hammarskjöld Plaza eru úr járni. Verunum er dreift um torgið.
Miðasala » www.sinfonia.is » Sími 545 2500 » Miðasala í Háskólabíói frá kl. 9-17
Fös. 25.03. » 21:00
Sænski slagverkshópurinn Kroumata og slagverks-
sveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands flytja eitt helsta
meistaraverk Steve Reich á tónleikum í Háskólabíói.
Miðaverð er aðeins 1.500 kr.
Við gerð skúlptúra sinnasækir Brynhildur Þor-geirsdóttir innblástur tillífríkis, forma og efna
náttúrunnar. Á sýningunni „Hug-
arlundur“ í Listasafni ASÍ getur að
líta 38 ný verk sem unnin eru úr
gleri, sandi, ösku og steinsteypu og
bera þau heiti með náttúruskírskot-
unum á borð við Vatnalúra, Sand-
lúra, Hryggla og Glitra. Fantasían
er undirstrikuð með nöfnum eins og
Óra og Hygla – enda einkennast líf-
rænir skúlptúrarnir af formrænum
leik þar sem ímyndunaraflinu er gef-
inn laus taumurinn.
Blendingsskúlptúrar listamanns-
ins eiga sem sagt kirfilegar rætur í
náttúruformum: annarleg vera á
gólfi í Ásmundarsal minnir í senn á
jurtarót og liðdýr; þar hjá stirnir á
massífan, sandhúðaðan stein sem
gæti allt eins verið einhvers konar
hryggdýr með steingerða ásjónu. Í
skúlptúrunum er sem renni saman
steingervingar, skeldýr, þörungar
eða önnur sjávarfyrirbæri, grýlu-
kerti, ískristallar, rætur, grjót,
sandar, fjöll, gosaska og jafnvel
hraunstrókar. Þessi blendingsfyr-
irbæri eru skynrænar verur sem
teygja út anga sína, tilbúnar að
hörfa en búa sumar yfir leynivopn-
um. Frásagnarheimur listamannsins
er ríkulegur og vel mótaður – og
hann byggist á sjálfum töfrum nátt-
úrunnar.
Brynhildur hefur gott vald á
spuna en um leið býr hún yfir agaðri
formhugsun sem ljær verkum henn-
ar sterk höfundareinkenni. Með
ólíkum efnum eins og gleri og stein-
steypu nær hún fram samspili
gagnsæis, léttleika og þyngdar,
mýktar og hörku, sem aukið er á
með blæbrigðaauðgi í áferð og lit. Í
Arinstofu eru smærri verk sem bera
fáguðum vinnubrögðum listamanns-
ins vitni. Þar hvíla verur, ættaðar úr
vatni eða sjó, á nokkurs konar eyjum
sem komið hefur verið fyrir á gólfi,
og sumar skríða upp eftir veggjum.
Skúlptúrarnir njóta sín vel í
björtu rýminu á efri hæðinni. Stöpl-
ar eru víðs fjarri og verurnar spóka
sig á gólfinu í skemmtilegri sam-
ræðu sín á milli. Aðrar hafa „sogað“
sig fastar á veggi og sumar þær fín-
legustu, sem minna á marglyttur,
eru afmarkaðar á plötu sem liggur á
gólfinu rétt eins og í Arinstofunni
niðri. En á neðri hæðinni ná verkin
ekki sama rýmislega fluginu og fyrir
vikið njóta verkin sín síður þar en í
Ásmundarsal. Engu að síður er hér
á ferðinni fallega unnin sýning þar
sem má gera sér ævintýralegan hug-
arlund.
Ævintýri í sandi og ösku
Morgunblaðið/RAX
Brynhildur Þorgeirsdóttir Listakonan við eitt verka sinna.
Listasafn ASÍ
Brynhildur Þorgeirsdóttir –
Hugarlundur
bbbmn
Til 3. apríl 2011. Opið þri. til su. kl. 13-
17. Aðgangur ókeypis.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Gler Eitt blásnu glerverkanna.