Morgunblaðið - 02.04.2011, Síða 1
L A U G A R D A G U R 2. A P R Í L 2 0 1 1
Stofnað 1913 78. tölublað 99. árgangur
ÚRSLIT MÚSÍK-
TILRAUNA
Í KVÖLD
UNGIR
LEIKARAR
LJÓÐ GYRÐIS
UPPLIFÐI FRELSI
Í FYRSTA SINN
Á ÍSLANDI
SUNNUDAGSMOGGINN FLÝÐI FRÁ LÍBÍU 6ELLEFU HLJÓMSVEITIR 50
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Í úrskurðum Héraðsdóms Reykja-
víkur frá því í gær í málum varð-
andi heildsöluinnlán í Landsbank-
anum og Glitni felst að dómurinn
staðfestir gildi
neyðarlag-
anna, að sögn
Herdísar Hall-
marsdóttur,
sem situr í
slitastjórn
Landsbankans.
Breyta úr-
skurðirnir
engu varðandi
áætlaðar end-
urheimtur úr
þrotabúi
Landsbankans.
Þær áætlanir gerðu ráð fyrir því að
heildsöluinnlán væru tryggðar inn-
stæður.
Ólíkt Landsbankanum hafði
Glitnir hafnað kröfum heildsöluinn-
lánseigenda um forgang í þrotabú-
ið. Steinunn Guðbjartsdóttir, for-
maður slitastjórnar Glitnis, segir
þessar kröfur nema um 60 millj-
örðum króna í tilviki Glitnis. Hún
segist telja ástæðu til að kæra mál-
ið til Hæstaréttar.
bjarni@mbl.is »26
Neyðar-
lögin
staðfest
Heildsöluinnlán
eru forgangskröfur
Lið Norðurþings sigraði í Útsvari, spurningakeppni
Sjónvarpsins í ár, vann Akureyringa í ótrúlegri rimmu
í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gærkvöldi, 75:73.
Rúmlega 500 manns voru í salnum, stemningin geysi-
góð og fjölmargir stuðningsmenn sigurliðsins fögnuðu
að vonum kröftuglega. Hér er sigurliðið: Kristveig Sig-
urðardóttir, Stefán Þórsson, sem heldur á Andra Þóri
Sigþórssyni, bróður sínum, og Þorgeir Tryggvason.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Norðurþing vann æsispennandi Útsvar
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Framsóknarmenn telja mögulegt að
mótframboð komi fram á flokksþingi
Framsóknar eftir viku, gegn Birki
Jóni Jónssyni, varaformanni flokks-
ins. Helst er rætt um Vigdísi Hauks-
dóttur í þeim efnum. Ýmsum fram-
sóknarmönnum finnst sem Birkir
Jón sé ekki nógu einarður í afstöðu
sinni gegn ESB-aðild. Ekki er búist
við því að neinn bjóði sig fram gegn
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, for-
manni Framsóknarflokksins. Hann
þykir hafa treyst stöðu sína.
Þetta kemur fram í fréttaskýringu
um Framsóknarflokkinn í Sunnu-
dagsmogganum í dag.
Siv Friðleifsdóttir sagði þegar
Morgunblaðið spurði hana hvort hún
teldi að flokksþingið yrði átakaþing:
„Ef það verður tekist á um varafor-
mennskuna, þá verður vitanlega
aukin spenna á þinginu.“
Flestir viðmælendur telja að
nauðsynlegt sé að Framsóknarflokk-
urinn marki sér skýra og ákveðna
stefnu gegn öllum hugmyndum um
aðild Íslands að ESB. Framsóknar-
menn gera sér vonir um að þannig
geti þeir náð til sín óánægjufylgi frá
VG og Sjálfstæðisflokknum.
Mótframboð gegn Birki Jóni rætt
Framsóknarmenn vilja herða og skýra stefnu sína gegn aðild Íslands að ESB
Birkir Jón
Jónsson
Vigdís
Hauksdóttir
Árið 2010 voru skráðar 864
komur í Kvennaathvarfið sem er
mun meira en nokkru sinni áður í
29 ára sögu athvarfsins.
Verði nýtt frumvarp að lögum
geta fórnarlömb kynferðisofbeld-
is krafist þess að ofbeldismaður-
inn verði látinn víkja af heimilinu.
»30
Aldrei fleiri komið
í Kvennaathvarfið
158
milljarðar var
heildarupphæð
heildsöluinnlána
hjá gamla Lands-
bankanum
‹ HEILDSÖLU-
INNLÁN ›
Skannaðu kóðann
til að skoða
myndasyrpu frá
keppninni.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samtök atvinnulífsins kynntu
sjávarútvegsráðherra í gær tillögur
að útfærslu samningaleiðar í sjávar-
útvegi. Eru tillögurnar hugsaðar
sem málamiðlun SA í deilu útvegs-
manna og stjórnvalda um breytingar
á kvótakerfinu. Jón Bjarnason sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra
hefur jafnframt opnað á að áfanga-
skipta framkvæmd breytinganna.
ASÍ fékk í gær vilyrði fyrir breyt-
ingum á yfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar um aðgerðir í þeim tilgangi að
liðka fyrir kjarasamningum og munu
samningamenn ASÍ og SA fara sam-
an yfir plaggið í dag ásamt því að
undirbúa áframhaldandi kjaravið-
ræður. Í yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar er ekki minnst á sjávarútvegs-
mál sem þó er vitað að Samtök
atvinnulífsins gera að úrslitaatriði
við lokafrágang nýrra kjarasamn-
inga til þriggja ára.
Forystumenn SA fóru í gær á fund
sjávarútvegsráðherra til að kynna
tillögur sínar að málamiðlun í deil-
unni. Þær fela í sér nokkra tilslökun
frá fyrri afstöðu útvegsmanna, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Sjávarútvegsráðherra svaraði tillög-
unum ekki efnislega á fundinum og
ekkert var ákveðið um framhaldið.
Jón sagði í samtali við Morgunblaðið
að áform um breytingar á stjórn-
kerfinu stæðu „en við getum þurft að
skoða í hvaða áföngum þau nást
fram.“
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, sagði að þau hefðu
átt ágætis fund með ráðherra. „Það
mun reyna á þetta mál fyrr eða síðar
enda verður það hluti af lausninni,“
sagði hann.
MÓleystur hnútur »4
Nálgun í útvegsmálum
Samtök atvinnulífsins leggja fram tillögur um útfærslu samningaleiðar
Sjávarútvegsráðherra opnar á áfangaskiptingu breytinga á fiskveiðistjórn
Sjávarútvegsmálin
» Tillögur SA fela í sér út-
færslu á samningaleiðinni sem
grundvallast á skýrslu sátta-
nefndar frá síðasta hausti.
» Þær taka til samningstíma
og endurnýjunarákvæða, til
þess hversu stór hluti afla-
heimildanna verði utan afla-
hlutdeildar og til veiðileyfa-
gjalds.
Minnst fjórir týndu lífi og tugir
slösuðust þegar mótmælendum og
öryggissveitum lenti saman á göt-
um Damaskus, höfuðborgar Sýr-
lands, eftir kvöldbænir í gær.
Efnt var til fjöldamótmæla víða
um landið og bárust fregnir af því
að mótmælandi hefði fallið og um
tugur særst í bænum Al Sanameen.
Lögreglan og herinn voru með
mikinn viðbúnað og stóðu um
1.000 lögreglumenn vörð í Al
Sanameen þar sem um 25.000 mót-
mælendur kröfðust umbóta á
stjórnarfari landsins. Þykir mót-
mælendum Bashar al-Assad, for-
seti landsins, hafa daufheyrst við
kröfum um umbætur og að neyð-
arlögum verði aflétt.
Allt á suðupunkti
í Sýrlandi