Morgunblaðið - 02.04.2011, Blaðsíða 6
VIÐTAL
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Ég átti ekki von á því að fólkið myndi gera upp-
reisn, svo fyrir mér er þetta eins og draumur. Ég er
mjög stoltur af Líbíumönnum og þótt ég sé á Ís-
landi þá er ég með þeim í hjarta mér,“ segir Muha-
med Ali Almabruk Birjam, íbúi á Akranesi.
Muhamed kom til Íslands sem flóttamaður frá
Líbíu fyrir áratug. Hann á hins vegar stóra fjöl-
skyldu í Líbíu, 6 bræður, 4 systur og móður á lífi og
er því vakinn og sofinn yfir ástandinu í föður-
landinu. „Ég hef miklar áhyggjur af þeim. Þetta
hefur gengið á núna í mánuð og ég hef varla verið
fær um að gera nokkurn hlut annan en að fylgjast
með fréttum og hringja heim til að heyra í fólkinu
mínu. En það er erfitt vegna þess að þau hafa auð-
vitað ekkert net og símatengingin er stopul, stund-
um næ ég sambandi en stundum ekki.“
Fjölskylda Muhameds býr í um 40 km fjar-
lægð frá borginni Zawiya þar sem harðir bardagar
hafa geisað og um 60 km frá höfuðborginni Tripoli,
sem er höfuðvígi Muammars Gaddafis.
„Daglegt líf er mjög erfitt hjá þeim út af stríð-
inu. Það er erfitt að verða sér úti um mat, margar
búðir eru lokaðar og það sem fæst hefur fjórfaldast
í verði. Mörg lönd senda hjálpargögn til Líbíu, en
þar sem Tripoli og svæðin þar í vesturhluta lands-
ins eru enn undir stjórn Gaddafis þá berast engin
hjálpargögn þangað,“ segir Muhamed.
Ætla ekki að deyja fyrir Gaddafi
Síðustu tvær vikur hefur Muhamed vart getað
sofið fyrir áhyggjum af bræðrum sínum tveimur,
sem voru í haldi stjórnarhermanna. Þegar átökin
tóku að harðna fyrir um hálfum mánuði var bræðr-
unum meinað að fara heim úr vinnunni dag einn en
var smalað ásamt vinnufélögum í hálfgert stofu-
fangelsi. Um langt skeið heyrðist ekkert frá bræðr-
unum og óttaðist Muhamed að þeir hefðu verið
þvingaðir til að taka upp vopn og berjast fyrir
stjórnarherinn, eða verið skotnir sem land-
ráðamenn ef þeir neituðu. Fjölskyldunni var því
mjög létt þegar bræðrunum var sleppt í vikunni.
Muhamed segir að þeir ætli nú í felur þar sem
þeir óttist enn að vera kvaddir í herinn. „Þeir segja
að ef eitthvað gerist ætli þeir að berjast fyrir frels-
inu og ef þeir deyja þannig þá deyja þeir þó fyrir
föðurlandið. Þeir ætla ekki að deyja fyrir
Gaddafi.“
Spurður hvernig hann sér framtíð Líb-
íu fyrir sér segist Muhamed sannfærður
um að nú hilli undir nýja tíð lýðræðis og
frelsis í Líbíu. Þegar
stríðinu lýkur langar
hann til að heimsækja
fjölskyldu sína þar við
fyrsta tækifæri. „Ég
held að þegar Líbía öðlast
frelsi undan Gaddafi bíði
fólksins betri tíð og um leið
og ég heyri að ástandið
hafi batnað þá vil ég
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2011
snúa aftur til að sjá það með eigin augum og hitta
móður mína, systkin og frændfólk. Ég á 10 litlar
frænkur sem ég hef aldrei séð. En nú á ég líka fjöl-
skyldu hér á Íslandi.“
Ekkert líf án frelsis
Muhamed er nú í sambúð á Akranesi með
Linu Falah Ameen Mazar, sem kom hingað í hópi
palestínskra flóttamanna 2008. Þau kynntust í
gegnum Félag múslíma á Íslandi og eiga nú saman
rúmlega ársgamla dóttur.
„Þegar ég kom til Íslands þekkti ég ekki frelsi.
Ég hafði heyrt af því og lesið um það en aldrei upp-
lifað það, frelsi til að segja hug þinn og gera það
sem þú vilt. Ég vil að fólkið mitt í Líbíu fái að búa
við sama frelsi og ég geri nú því frelsi er mikilvæg-
ara en allt annað, mikilvægara en peningar og mat-
ur. Ef þú getur ekki tjáð þig af ótta við að vera
drepinn, ef þú verður að lifa í ótta við ríkisstjórnina,
þá skiptir ekki máli þótt þú hafir mat að borða og
rúm að sofa í, það er ekkert líf ef þú ert ekki frjáls.“
Hafði aldrei upplifað
frelsi fyrr en á Íslandi
Flýði til Íslands frá Líbíu fyrir 10 árum Óttast um fjölskyldu sína í Líbíu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stoltur Muhamed Ali Birgam segir erfitt að vera svo langt frá föðurlandi sínu á þessum átakatímum.
Hann segir Líbíumenn berjast fyrir frelsi og er stoltur af byltingunni en jafnframt áhyggjufullur.
Lítið framboð var á mjólkurkvóta á
tilboðsmarkaði í gær og verð á
greiðslumarki hækkaði um 5 krón-
ur frá síðasta markaðsdegi. „Miðað
við það hvað mikið varð eftir af því
sem boðið var til sölu um áramótin
átti ég von á meira framboði núna,“
segir Sigurður Loftsson, formaður
Landssambands kúabænda.
Mikið ójafnvægi var á milli fram-
boðs og eftirspurnar á fyrra mark-
aðsdegi þessa árs. Matvælastofnun
fékk tíu tilboð um sölu greiðslu-
marks mjólkur og voru boðnir fram
liðlega 400 þúsund lítrar. Er það
aðeins helmingur af þeim kvóta
sem var til sölu á síðasta tilboðs-
markaði. 62 óskuðu eftir að kaupa
samtals 1,6 milljónir lítra. Er það
83% meiri eftirspurn en í desember,
samkvæmt yfirliti Matvælastofn-
unar. Niðurstaða markaðarins var
að 230 lítrar seldust á svokölluðu
jafnvægisverði sem reyndist vera
285 krónur á lítra. Er þetta heldur
meiri sala en á markaðsdegi í des-
ember og verðið hækkaði um 5
krónur. helgi@mbl.is
Minna framboð á kvóta
Morgunblaðið/Frikki
Mjólk Rétturinn til að framleiða mjólk gengur kaupum og sölum.
Bændur vildu kaupa fjórfalt það magn sem kom á tilboðs-
markað með mjólkurkvóta Verðið hækkaði um 5 krónur
Muhamed segist styðja hernaðaraðgerðir NATO
og telur að þær hafi forðað miklu mannfalli
meðal almennra borgara. „Ég held að aðgerð-
irnar hafi komið á hárréttum tíma og hefðu ekki
mátt vera degi seinna. Þetta hjálpar uppreisnar-
mönnum mikið því her Gaddafis verður sífellt
veikari.“ Sjálfur er hann einn helsti heimildar-
maður fjölskyldu sinnar um ástandið í landinu,
svo kaldhæðnislega sem það hljómar. „Þau
hafa bara aðgang að fjölmiðlum Gaddafis
og þar eru tómar lygar. Í
gær sagði ég þeim
t.d. frá því að utanrík-
isráð- herrann (Mo-
ussa Ko-
ussa) hefði
sótt um hæli í
Bretlandi. Þau
vissu ekki að hann
væri flúinn.“
Fjölskyldan fær
fréttir frá honum
STYÐUR HERNAÐARAÐGERÐIR NATO
Uppreisnarmenn í Líbíu fagna
Breytt
áskriftarverð
Áskriftarverð Morgunblaðsins
hækkaði 1. apríl og kostar nú mán-
aðaráskrift 4.390 kr. Helgaráskrift
að Morgunblaðinu kostar nú 2.750
kr. Lausasöluverð virka daga verður
399 kr. Lausasöluverð um helgar
verður 649 kr. Netáskrift Morgun-
blaðsins kostar 2.550 kr.
Skannaðu kóðann til að lesa
nýjustu fréttirnar um stríðs-
átökin í Líbíu.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt 36 ára gamlan karlmann,
Ingvar Árna Ingvarsson, í tveggja
ára fangelsi fyrir sérstaklega hættu-
lega líkamsárás á fyrrverandi sam-
býliskonu sína auk hótana og fjár-
kúgunar. Hann var einnig dæmdur
til að greiða konunni 861 þúsund
krónur í skaðabætur auk málskostn-
aðar.
Maðurinn var fundinn sekur um
að hafa dregið konuna inn í íbúð
sína, haldið henni þar nauðugri veist
að henni, rifið í hár hennar, slegið
hana margsinnis í andlit og líkama,
sparkað í fætur hennar og hótað
henni lífláti og líkamsmeiðingum.
Féll fram af svölum á flótta
Þegar konan ætlaði að flýja úr
íbúðinni með því að fara fram af
svölum reif maðurinn í hár hennar
og sló hana með þeim afleiðingum
að hún féll 4 metra fram af svöl-
unum og niður á verönd íbúðar á
jarðhæð. Konan handleggsbrotnaði
og mjaðmarbeinsbrotnaði og skarst
á andliti og víðar um líkamann.
Maðurinn var einnig fundinn sek-
ur um hótanir og tilraun til fjárkúg-
unar, með því að hafa sent konunni
skilaboð á Facebook þar sem hann
hótaði henni og bróður hennar lík-
amsmeiðingum eða lífláti ef hún
greiddi ekki tvær milljónir króna
inn á bankareikning hans.
Fram kemur í dómnum, að Ingv-
ar Árni hefur áður hlotið dóma, þar
á meðal 3 ára fangelsisdóm árið
2001.
Tveggja ára
fangelsi fyrir
líkamsárás
Morgunblaðið/Ernir
ÁN PARABEN EFNA
SJAMPÓ, HÁRNAERING
OG STURTUGEL
890.-verd
500 ML