Morgunblaðið - 02.04.2011, Blaðsíða 10
PRUFUTÍMINN
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Ég elska súkkulaði íhvaða formi sem það er –konfekt, súkkulaðikökur,súkkulaðistykki; já eða
páskaegg. Þetta er allt jafn gott og
ekki kallað fæða guðanna að ástæðu-
lausu. Ég er því dálítið spennt að fá
að prófa að búa til mitt eigið egg og
um leið smástressuð yfir því að mér
muni takast að klúðra þessu.
Guðmundur Finnbogason
páskaeggjagerðarmaður tekur á
móti mér með lítinn hjálparkokk í
fanginu. Guðmundur hefur haldið
námskeið bæði í konfekt- og páska-
eggjagerð en að aðalstarfi er hann
heimilisfræðikennari í Laugarnes-
skóla. Þar kennir hann krökkunum
að elda fjölbreyttan mat og leggur
sig fram við að auka fiskáhuga
þeirra. En af einhverjum ástæðum
veldur orðið fiskur því enn að kalt
vatn rennur mörgum krökkum milli
skinns og hörunds. Hann segir að al-
mennt hafi krakkarnir gaman af
heimilisfræðinni og það sama eigi
við um páskaeggjagerðina. Hún
henti öllum enda þyki flestum
súkkulaði gott. Á námskeiði í páska-
eggjagerð kennir Guðmundur fólki
að búa til páskaegg og brjóstsykur
inn í eggið.
Brætt í rólegheitum
Eggin eru gerð úr hjúpsúkku-
laði og notar Guðmundur danskt
Odense-súkkulaði við gerðina. Það
er bæði auðveldara og fljótlegra þar
sem slíkt súkkulaði þarf ekki að
tempra. Súkkulaðið er fyrst brætt í
skál í vatnsbaði en best er að það
bráðni í sem mestum rólegheitum.
Óbrotið meistaraverk
Blaðamaður ákvað að
prófa að gerast páskahéri
um stund og búa til
páskaegg. Það er alveg á
hreinu að þetta ljúffenga
súkkulaðiegg verður búið
löngu fyrir páska. Enda
erfitt að standast flest það
sem gert er úr súkkulaði!
Vandaverk Mikilvægt er að byrja á
því að pússa mótin vel og vandlega.
Páskaeggjagerð Vænni ausu af girnilegu súkkulaði er dembt í páska-
eggjamótið. Þetta þarf að endurtaka og láta súkkulaðið storkna á milli.
Mótun Skafið af forminu eftir að
búið er að þekja það með súkkulaði.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2011
Laugardagur er hinn fullkomni dagur
fyrir brunch. Sumir eru kannski smá
ryðgaðir eftir föstudagskvöldið og þá
er fátt gómsætara en fullur diskur af
beikoni, eggjum og öllu tilheyrandi.
Aðrir byrja kannski daginn á að fara í
ræktina eða út að ganga og eftir á er
tilvalið að fá sér gott í gogginn. Víða
um bæinn má fá góðan brunch og oft
má velja sér að fá jógúrt og ávexti og
aðra hollustu í bland við annað.
Heimabrunch er líka tilvalið að halda
með góðu brauði, eggjahræru og
heimabökuðum skonsum eða pönnu-
kökum. Njóttu þess að sofa út, fá þér
góðan brunch og lesa helgarblöðin.
Endilega …
… fáið ykkur
brunch
Morgunblaðið/Arnaldur
Namm Pönnukökur með sírópi eru
ómissandi í góðan brunch.
Komdu á Lækjartorg kl. 12:00 á hádegi í dag og fylgstu með
Skrautreið Fjallkonu og 200 hesta hennar upp Bankastræti og Laugaveg.
Harmonikkuleikarar, peysufatafreyjur og búandsveinar, fornbílar
og glimrandi stemning á löngum laugardegi.
Kaupmenn og veitingakonur klæða sig upp og bjóða sitthvað
á „gamla góða verðinu“ hér og þar.