Morgunblaðið - 02.04.2011, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2011
Fjárfestar
- góð fjárfesting
Íslenskt fyrirtæki með umboð fyrir einstaka vöru á öllum
norðurlöndum vill selja 20% hlut (20 milljónir).
Hluturinn selst í einu lagi eða í hlutum. Hlutverk
fyrirtækisins er að gera umboðssamninga við öfluga
dreifingaraðila í viðkomandi landi.
Varan er einstök og fellur fullkomlega inn í vörulínu
væntanlegra umboðsaðila.
Ávinningurinn er verulegur þar sem hluti veltunar í hverju
landi fyrir sig rennur til fyrirtækisins.
Áhugasamir eru beðnir um að senda nafn og síma
til auglýsingdeildar Morgunblaðsins: merkt:
ávinningur 2012 fyrir 9. apríl.
Öllum fyrirspurnum verður svarað.
Fjárfestir
Ertu með gott fyrirtæki,
en vantar nýtt fjármagn í resturinn?
Veitingahús og sjoppur kom ekki til greina.
Upplýsingar sendist á auglýsingadeild Morgunblaðsins
merkt: Fjárfestir 24471
Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Nokkrir af nánustu samstarfsmönn-
um einræðisherrans Muammars
Gaddafis áttu í gær í viðræðum við
fulltrúa franskra, breskra og banda-
rískra stjórnvalda um leiðir að
vopnahléssamkomulagi til að binda
enda á átökin í Líbíu.
Abdul Ati al-Obeidi, fyrrverandi
forsætisráðherra Líbíu, staðfesti
þetta í samtali við bresku sjónvarps-
stöðina Channel 4 en þar sagði hann
orðrétt: „Við eigum í viðræðum við
Breta, Frakka og Bandaríkjamenn
um að reyna að stöðva manndrápin.
Við erum að reyna að finna gagn-
kvæma lausn,“ sagði hann en frum-
skilyrði breskra stjórnvalda í samn-
ingaviðræðunum er að Gaddafi víki.
Svo getur farið að bardögunum í
Líbíu linni senn, að minnsta kosti
tímabundið, því uppreisnarmenn
hafa einnig lagt fram vopnahlésskil-
mála þaðan sem þeir ráða ráðum sín-
um frá helsta vígi sínu, Benghazi.
Þreyta við víglínuna
Túlkar breska blaðið Guardian
vopnahlésþreifingarnar svo að þær
séu til vitnis um að fylkingarnar
tvær séu orðnar vígmóðar, nú þegar
um einn og hálfur mánuður er liðinn
síðan skriða mótmæla fór af stað og
vopnuð uppreisn braust út í landinu.
Þá hefur bandaríska sjónvarps-
stöðin CNN eftir samverkamönnum
Gaddafis að hann sé aðeins reiðubú-
inn að stíga til hliðar ef tryggt er að
bandamaður hans taki við völdunum.
Bandaríkjastjórn virðist vera
orðin afhuga þeim möguleika að
leggja uppreisnarmönnum til vopn
en Robert Gates varnarmálaráð-
herra og Hillary Clinton utanríkis-
ráðherra virtust taka af öll tvímæli í
því efni á fimmtudag. Nefndi Clinton
skort á upplýsingum um uppreisnar-
mennina sem eina af ástæðunum.
Reuters
Vopnabræður Uppreisnarmenn syrgja fallinn félaga á sjúkrahúsi í borginni Ajdabiyah í gær.
Bandamenn Gaddafis
vilja semja um vopnahlé
Leyniskyttur burt
» Mustafa Abdul Jalil, leið-
togi uppreisnarmanna, gerir
það m.a. að skilyrði vopna-
hléssamninga að Gaddafi kalli
leyniskyttur sínar heim.
» Þá skuli málaliðum og
vígamönnum á bandi einræðis-
herrans gert að yfirgefa um-
setnar borgir.
Skannaðu kóðann
til að lesa það nýj-
asta um Líbíu
Dæmi eru um að verð á notuðum bíl-
um í Bandaríkjunum hafi hækkað
um allt að 11% á síðustu tveimur vik-
um og er skýringin fyrst og fremst
rakin til hamfaranna í Japan.
Fjallað er um málið á vef USA
Today en þar segir að bandarískir
kaupendur leiti í notaða bíla, enda sé
skortur á nýjum bifreiðum fyrir-
séður vegna þeirrar röskunar sem
japanskar bílaverksmiðjur hafa orð-
ið fyrir vegna risaskjálftans 11. mars
og flóðbylgjunnar sem honum fylgdi.
Hækkunin er mest á 3 til 5 ára
gömlum bílum í millistærð, á borð
við Toyota Corolla og Ford Focus,
en Toyota- og Nissan-bílasmiðjur-
nar áætla að það taki minnst mánuð
að koma framleiðslunni í samt horf.
Blaðið ræðir við bílasala í Los
Angeles sem segir kaupendur forð-
ast eyðslufrekustu bílanna vegna
mikilla hækkana á olíuverðinu.
Reuters
Tjón Ónýtar bifreiðar í Japan.
Hamfarirnar
hækka verð
notaðra bíla