Morgunblaðið - 02.04.2011, Page 34

Morgunblaðið - 02.04.2011, Page 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2011 Hvort er betra að komast lífs af úr um- ferðarslysi, undan bíl sem braut á þér, heldur en vera dauður, en í rétti? Einhvernveginn þannig blasa valkost- irnir í Icesave-málinu við mér. Sú frestun málsins og sú óvissa sem við köllum yfir okkur, með því að hafna Icesave, kemur einungis sjálfum okkur í koll. Mögu- legur ávinningur er fljótur að tapast, standi óvissan áfram, þó ekki verði nema fáein misseri. Bretar og Hol- lendingar hafa það í hendi sér hvort óvissunni lýkur eða ekki. Um það höf- um við ekkert að segja, ef við höfnum samningum. Við getum aftur á móti lokið óvissunni ef við samþykkjum samninginn. Sjálfsblekking er óheppilegur förunautur Minn góði félagi frá árunum á Dagblaðinu sáluga, Hallur Hallson, kvað mig, hér á síðum Morgunblaðsins, fara með fleipur í grein sem ég skrifaði nýlega í Fréttablaðið þar sem ég lýsti stuðningi mínum við Icesave. Því til sann- indamerkis vitnaði hann í símtal íslenska og breska fjármálaráðherrans frá fyrstu dögum hrunsins þar sem Íslendingar telja sér ekki skylt að borga Icesave. Ég ber ekki brigður á það símtal, en það var aðeins hluti þeirra samskipta sem fram fóru um málið og því miður ekki sú niðurstaða sem við hefðum kosið að sjá. Því get ég enn, með góðri samvisku, fullyrt að allir íslenskir ráðherrar og embættismenn, sem að Icesave málinu hafa komið, hafa lofað Bretum og Hollendingum því að um málið yrði samið, sama hvernig reynt er að rýna í símtöl ráðamanna frá þessum tíma og fá annað út. Eins mikið og ég vildi trúa því að málin standi eins og Hallur lýsir þeim þá er það einfaldlega ekki rétt. Það sem fram fór í símtali á fyrri stigum máls- ins, varð ekki niðurstaðan, heldur urðu þessi sömu ráðamenn á seinni stigum sammála um að réttast væri að semja. Við þá niðurstöðu hefur síð- an verið glímt og farsælast að við- urkenna það sem miður fór í stað þess að lifa í sjálfsblekkingu. Bretar og Hollendingar ráða óvissu- tímanum – ef við höfnum Icesave Eftir Bolla Héðinsson Bolli Héðinsson »Eins mikið og ég vildi trúa því að mál- in standi eins og Hallur lýsir þeim þá er það ein- faldlega ekki rétt. Höfundur er hagfræðingur. Um er að ræða húsnæði í eigu Orkuveitu Reykjavíkur Mosfellsdal. Húsnæðið er alls um 560 fm. og stendur á 830 fm. leigulóð. Húsið er í góðu ásigkomulagi og er í dag nýtt sem geymsla fyrir ýmsar deildir Orkuveitu Reykjavíkur. Krafa er um snyrtilega umgengni á svæðinu. Nánari upplýsingar gefa eftirfarandi starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur: Hannes Frímann Sigurðsson, sími 516-6690 Ólafur Þór Leifsson sími, 516-6334 Kauptilboðsblað og sölulýsingu er hægt að sækja á vefsíðu Orkuveitu Reykjavíkur. Kauptilboðum skal skila til Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík fyrir kl. 13.00 fimmtudaginn 14. apríl 2011. Orkuveita Reykjavíkur áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Ef viðunandi tilboð fæst: Geymsluhúsnæði í Mosfellsdal TIL SÖLU Í grein í Morg- unblaðinu þriðjudag- inn 29. mars setur Ármann Kr. Ólafsson, bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, fram túlkun á fund- arsköpum bæj- arstjórnar Kópavogs sem hann veit að er ekki í samræmi við bæjarmálasamþykkt. Ármann er reynslu- bolti í bæjarmálum í Kópavogi, hefur verið bæjarfulltrúi í 13 ár og hluta af þeim tíma hefur hann gegnt embætti forseta bæj- arstjórnar. Hann þekkir gjörla þær reglur sem unnið er eftir. Í bæjarmálasamþykkt segir að sé mál samþykkt í bæjarráði án mótatkvæða teljist það afgreitt og því greiðir bæjarstjórn ekki atkvæði um það, gildir einu hversu margir greiddu málinu atkvæði í bæjarráði. Á bæjarstjórnarfundi um daginn lagði bæj- arfulltrúi nokkur, ný- liði í bæjarstjórn, til að bæjarstjórn greiddi at- kvæði um mál sem hafði verið afgreitt í bæjarráði án mót- atkvæða. Gert var fundarhlé til að fara yfir ákvæði bæj- armálasamþykktar hvað þetta varðar og sagði téður bæjarfulltrúi þá að hann ætlaði að sleppa tillög- unni. Forseti bæjarstjórnar beitti ekki fyrir sig bæjarmálasamþykkt, né hafnaði ósk bæjarfulltrúans, eins og Ármann fullyrðir í grein sinni. Málflutningur Ármanns kemur mér í opna skjöldu í ljósi þess að hann hafði samband við mig fyrir téðan fund og við fórum yfir þetta ákvæði bæjarmálasamþykktar saman. Þá var túlkun okkar ná- kvæmlega sú sama, enda hefur áð- ur reynt á þetta ákvæði og æv- inlega hefur afgreiðsla bæjarráðs verið úrskurðuð endanleg. Ármann og bæjarmála- samþykkt Kópavogs Eftir Hafstein Karlsson Hafsteinn Karlsson » Forseti bæjarstjórn- ar beitti ekki fyrir sig bæjarmálasam- þykkt, né hafnaði ósk bæjarfulltrúans, eins og Ármann fullyrðir í grein sinni. Höfundur er skólastjóri og er forseti bæjarstjórnar Kópavogs. Rétt eftir að þingið samþykkti að skatt- greiðendur skyldu borga Icesave, spurði fréttamaður RUV for- sætisráðherra, hvað honum fyndist um, að þjóðaratkvæða- greiðslan hefði verið felld með þremur at- kvæðum. Jóhanna svaraði á þá leið, að það truflaði hana ekkert. Hún sjálf hefði talað mikið fyrir þjóðaratkvæða- greiðslum, en ekki mætti blanda þeim saman við peninga. Nokkrum kvöld- um síðar endurtók Steingrímur þetta sama í sjónvarpinu. Ég verð að segja að ég er furðulostinn yfir fáfræði æðstu stjórnenda landsins. Í 7 ár átti ég heima í Sviss og fylgdist með, að þar snúast kosningarnar í allflestum, ef ekki öllum tilfellum um peninga. Rétt og skylt er að upplýsa ráð- herra um, hvernig þetta er í Sviss. Í stuttu máli er það þannig að aðilum er gefinn ákveðin frestur til að kynna kosti og lesti þess, sem kjósa skal um. Vel fyrir kosningar upplýsa yfirvöld hvað framkvæmdin muni kosta og hversu mikið þurfi að hækka skatta til að greiða fyrir hana. Þannig eru kjós- endur vel upplýstir áður en gengið er til kosninga. Í Sviss hefði almenn- ingur haft vit fyrir stjórnvöldum og valið 2 + 1 í stað 2 + 2 til Selfoss. Hjá okkur eru nokkrir dagar þar til kosið verður um sjálfan Icesave og samningurinn lítið sem ekkert verið kynntur. Helsta röksemd fyrir sam- þykkt hans er að hann sé 10x betri en Svavars-samningurinn, sem stjórn- völd ætluðu að nauðga óséðum í gegn- um þingið, en segja nú ekki hafa verið góðan. Önnur röksemd er, að við getum ekki lengur haft þetta hang- andi yfir okkur. Líkt og þegar Svavar nennti ekki að hanga lengur úti í London. Kostnaður við Ice- save er mjög á reiki. Eftir því, sem ég kemst næst er hann 40 til 400 miljarðar, sem á manna- máli heitir fjörutíu þús- und til fjögur hundruð þúsund milljónir króna. Ekki neinir smáaurar það á sama tíma og stjórn- völd rembast við að skera niður sjúkrahús og skóla. Niðurskurður sem nú er deilt um í skólum og dag- heimilum er brotabrotabrot af Ice- save. Samt gæti Icesave bara verið skiptimynt í viðskiptum stjórnarand- stöðu og stjórnar með kvótann og ESB. Nú er bara að vona, að sjálfur samningurinn verði kynntur fyrir þjóðinni, þannig að hún geti í kosn- ingum tekið vel upplýsta ákvörðun. Með eða á móti. Þeir sem ætla að kjósa af þeirri ástæðu einni, að þeir nenni ekki að hafa þetta lengur hang- andi yfir sér, eins og t.d. borgarstjór- inn okkar, ættu að sjá sóma sinn í að hanga heima. Láta þá sem hafa kynnt sér málið um að kjósa. Icesave Eftir Sigurð Oddsson Sigurður Oddsson »Nú er bara að vona, að samningurinn verði kynntur fyrir þjóðinni, þannig að hún geti í kosningum tekið vel upplýsta ákvörðun. Höfundur er verkfræðingur. Hamfarir velja ekki fórnarlömb, hvort sem þær stafa af krafti náttúrunnar eða af mannavöldum. Hamfarirnar hitta hins vegar alla jafnt fyrir, hvort sem það eru karlmenn, konur, börn, gott fólk eða trúaðir. Við biðjum Guð alltaf að vernda okkur og fjölskyldur okkar en á sama tíma vit- um við að slæmir atburðir geta kom- ið fyrir hvern sem er. Guð verndar okkur ekki alltaf á þann hátt, að hann losi okkur við slæma atburði út úr lífi okkar. Jarðskjálftinn sem átti sér stað 11. mars sl. í Japan og flóðbylgjurnar sem fylgdu í kjölfarið, voru japönsku þjóð- inni gríðarlegt áfall og tjónið. Fleiri en tíu þúsund manns eru látnir og sautján þúsund manns er saknað. 150 þúsund íbúðir og byggingar eyðilögðust og um 200 þúsund manns neyðast til þess að dvelja í neyðarskjólum. Ég hef verið að fylgjast með frétt- um frá Japan þessa dagana á netinu. Það er alltaf skelfilegt og sorglegt að sjá fréttirnar, en samt sést falleg saga af og til. Í einu skjóli vantaði fólk mat. Þar var allt of lítill matur til að hundr- uð munnar yrðu mettaðir. Þá borðuðu þrír menn eina hrísgrjónakúlu sem var lítið stærri en sushi-stykki með því að deila henni. Það þýðir að hver maður fékk bara einn lítinn bita fyrir sig. En fólki gerði það þótt enginn hefði skipað því fyrir. Starfsfólk slökkviliða gegndi hættu- legum skyldum sínum til þess að hindra að hættan frá kjarnorkuver- unum yrði ekki meiri en nú er en fjöl- skyldur þess fólks grétu og grétu þeg- ar það fór til vinnu sinnar. Fréttir bárust einnig utan Japans. Hópur kóreskra kvenna sem höfðu mjög slæma reynslu af japönskum hermönnum í heimsstyrjöldinni síðari, safnast alltaf vikulega saman fyrir framan sendiráðs Japans í Seoul til að krefjast opinberlega afsökunar Jap- ans á meðferðinni. En eftir jarðskjálft- ann hafa þær komið saman og sent fyrirbæn til Japans. Í þessum hörmungum eru þau eins og blóm í eyðimörkinni, sem jafnvel „tsunami“ gat ekki tekið í burt. Þessi blóm birtast í hugrekki manna, sam- kennd, kærleika, skyldum og sam- stöðu en þau tákna einnig öll virðuleik okkar mannanna. Hvaðan fá blómin næringu sína? Ég giska á að næringin komi frá því að við erum manneskjur, hvar sem við búum, hver sem við er- um og hvers konar trú/lífsskoðun sem við aðhyllumst. Guð skapaði manneskjur. Hann skapaði ekki kristna menn. Að vera manneskja er ómetanleg blessun í sjálfu sér. Að sjálfsögðu ætla ég ekki að fara fram hjá mikilvægi þess að við geymum form ýmissa trúarbragða og umræðu á milli trúaðra og trúlausra. En í þessu samhengi er málið það að blómin í hörmungum eins og í jarð- skjálftanum í Japan ætt að minna okk- ur á grunngildi manneskja og virðu- leika sem er æðri ágreiningum og fjölbreytileika í veruleika manna í heiminum. Guð verndar okkur með því að láta okkur vera meðvituð um þetta í erfiðleikunum. Að lokum langar mig, sem jap- anskur einstaklingur á Íslandi, að þakka ykkur Íslendingum fyrir að sýna samstöðu með Japönum, um- hyggju og fyrir framlög ykkar til hjálparstarfsins í Japan. Guð sé með Japan, Íslandi og heim- inum öllum. TOSHIKI TOMA, prestur innflytjenda. Það sem „tsunami“ getur ekki tekið burt Frá Toshiki Toma Toshiki Toma Bréf til blaðsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.