Morgunblaðið - 02.04.2011, Page 38

Morgunblaðið - 02.04.2011, Page 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2011 Guð sá að þú varst þreyttur og þrótt var ekki að fá, því setti hann þig í faðm sér og sagði: „Dvel mér hjá“. (Þýð. Á. Kr. Þorsteinsson) Guð geymi þig, Mamma. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens) Þú varst ljúfur, yndislegur bróðir. Þín er sárt saknað. Kæri bróðir, elskum þig alltaf. Árný Bára systir og Gréta systir. Elsku Bergþór. Ég kynntist þér fyrst fyrir 12 árum og mín fyrsta minning um Bergþór Friðriksson ✝ Bergþór Frið-riksson frá Fá- skrúðsfirði fæddist 21. maí 1970. Hann lést 24. mars 2011. Foreldrar hans eru Friðrik Stef- ánsson, látinn, og Elín Aðalsteins- dóttir. Bergþór var yngstur tíu systk- ina. Systkini hans eru Bjarni Sigmar, Gréta, maki Ingvaldur Ásgeirs- son, Hanna Þóra, maki Ómar Bjarnþórsson, Frið- rik, maki Kristborg Ingibergsdóttir, Árný Bára, maki Ægir Kristmunds- son, Ingibjörg Mar- grét, Steinunn Guð- finna, Stefán, maki Berglind Hilm- arsdóttir, Að- alsteinn, maki Linda Þorvalds- dóttir. Bergþór var jarðsunginn frá Garðakirkju 1. apríl 2011. þig er þegar þú komst að heim- sækja mig í Breiðholtið að sjá nýfæddan son okkar Aðalsteins bróður þíns. Þú fékkst litla frænda þinn í fangið og það var eins konar lotningarsvipur á andliti þínu, eins og þú ættir þennan strák líka. Þarna upp- hófst sérstök vinátta milli þín og litlu frændsystkina þinna. Svo fluttum við í Hlíðarnar og það var eins og annað heimili fyrir þig í nokkur ár. Ég og þú áttum oftar en ekki yndislegar eldhúsumræður við eldhúsborðið um lífið og tilveruna, hreyfingu og heilsu og gátum við spjallað út í eitt. Þú varst oft mættur snemma á morgnana og stund- um þurftum við að minna þig á að fara heim til þín á kvöldin. Það var alltaf gert ráð fyrir þér í mat eða þegar átti að fara í sumarbústað, þú komst með í heimsóknir og búðarferðir. Þú varst alltaf eins og þriðja barnið okkar Aðalsteins, unglingurinn á heimilinu. Síðustu ár hefur þín verið sárt saknað hér á heimilinu, mjög sárt saknað. Eiginlega get ég ekki sætt mig við að þú sért far- inn. Elsku Bergþór, við elskum þig svo mikið, hvíl í friði. Linda mágkona. Sólin skín, vorið er farið að minna á sig. Ég stend í miðborg Álaborgar, með innkaupapokann og dóttur mína mér við hlið. Annars hugar með klump í háls- inum, klökkur, því ég var að missa góðan vin. Það eru nokkrir staðir sem eru tengdir minni sál og Fá- skrúðsfjörður er einn af þeim stöðum. Litríkt samfélag, skrautlegir persónuleikar og bæjarstæði í fallegri náttúru. Mín kynni af Bergþóri byrjuðu á skólavellinum. Þar á malbikinu eyddi hann góðum tíma ásamt okkur pjökkum við að sparka í bolta. Ég sé Bergþór fyrir mér í gallabuxum þruma á markið af ákefð. Við hinir bárum virðingu fyrir skothörkunni, ásamt þeim ákafa og krafti sem Bergþór bjó yfir. Eftir því sem á leið átti hann fast sæti í byrjunarliði Leiknis og var þar góður lið- styrkur, vinnusamur, harður, lét aldrei deigan síga. Er ég rifja upp kynni mín af Bergþóri þá er margs að minn- ast og ekki laust við að stökkvi bros á vör er maður hugsar til baka og af mörgu að taka og minningarnar margar. Bergþór bar einstakan sjarma, sem var á yfirborðinu frekar grófur en inn við beinið var hann einstakt ljúf- menni. Hans framkoma varð þess valdandi að öllum líkaði vel við Bergþór og hann var alltaf vel liðinn og fólk hafði alltaf gott viðhorf gagnvart Bergþóri. Hann sagði hlutina með sínum grófa, kæruleysislega tón og hans góði húmor fékk oft að njóta sín. Táningsaldrinum var eytt í Volvo Turbo og tónlistin títt í efri mörkum og orkan ótak- mörkuð. Bergþór taldi það ekki eftir sér að taka upp haug af tónlist á kassettur, til að boða fagnaðarerindið, og naut maður góðs af. Tónlistina pantaði hann frá Reykjavík eða Norðfirði, þar eftir spiluð fram og til baka, textarnir grúskaðir og svo pælt í meðlimum hinna og þessara banda og bækur lesnar um með- limina. Öllum albúmum haldið vel til haga og allt snyrtilega sorterað í röð og reglu eins og ávallt – enda snyrtimenni. Þau eru ófá böndin sem Bergþór kom mér í kynni við. Hann var ekki mikið fyrir svokallað gleði- popp eins og hann orðaði það, Deep Purple er ábyggilega sú deild sem fleiri tengja Bergþór við. Reyndar hafði hann almennt smekk fyrir góðri tónlist og var þá ekki gerður greinarmunur á klassískri tónlist og annarri tón- list. Bergþór fór ekki troðnar slóð- ir og var hann sjálfmenntaður á ýmsum sviðum. Ef eitthvað hafði vakið áhuga hans, þá var gruflað og kafað í efnið. Bergþór hafði margt til brunns að bera ásamt að vera bæði hæfileikaríkur og skarpur. Almennt þegar ég hugsa til Bergþórs þá finnst mér líf hans hafa verið kaflaskipt, með tvo af- gerandi kafla, þann góða og þann verri. Ekki það að hinn góði hafi ekki átt eitthvað slæmt og hinn ekkert gott. Hann hafði ríka þörf fyrir að finna sína hillu í lífinu sem gekk illa að finna eða móta, því að hann átti við veik- indi að stríða. Ég ætla að kveðja góðan vin sem hefur veitt mér svo margt, mikla gleði og mótað mig sem manneskju. Ég kem til með að sakna hans mikið. Megi minning um góðan dreng lifa. Ég votta aðstandendum hans mína dýpstu samúð. Hilmar Þór Valsson. HINSTA KVEÐJA Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) Kveðja, Friðrik bróðir og fjölskylda. Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 38, sími 514 8000. erfidrykkjur@grand.is • grand.is Grand erfidrykkjur • Hlýlegt og gott viðmót á Grand hótel. • Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum. • Næg bílastæði og gott aðgengi.                                             HÓTEL SAGA, REYKJAVÍK P IP A R \T B W A • S ÍA Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 8284 / 551 3485 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim er sýndu virðingu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, GUÐRÚNAR ERLENDSDÓTTUR, Sæbóli, Blönduósi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Mörk, 5. hæð suður, fyrir hlýja og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Gísli Ófeigsson, Ester Garðarsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Ásgeir Axelsson, Þórarinn Baldursson, Guðrún Kristinsdóttir, Magnús E. Baldursson, Helga I. Sigurðardóttir, Þrándur Ó. Baldursson, Emilía M. Stefánsdóttir, Sigurbjörg H. Baldursdóttir, Hreiðar Margeirsson, Steinvör M. Baldursdóttir, Friðrik Steingrímsson, Sigurlaug B. Baldursdóttir, Eiríkur Garðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu og móður, JÓHÖNNU VÍGLUNDSDÓTTUR, Skólavegi 13, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heil- brigðisstofnunar Vestmannaeyja, starfsfólki dagdeildar blóð- og krabbameinslækninga 11B og starfsfólki lungnadeildar A6 fyrir einstaklega góða umönnun og umhyggju. Gústaf Sigurlásson, Ásta Gústafsdóttir, Sigurlás Gústafsson. ✝ Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KARENAR MARÍU EINARSDÓTTUR, Tjarnarbóli 17, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Ingibjörg St. Sigurðardóttir, Jóhann Sigurðsson, Sigurður K. Sigurðsson, Hallfríður G. Blöndal, Dagný M. Sigurðardóttir, Jón Garðar Hafsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS S. ÓLAFSSON, síðast til heimilis á Dvalarheimilinu Felli, Skipholti 21, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítala Landakoti fimmtudaginn 24. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir færum við öllu starfsfólki Dvalarheimilisins Fells í Skipholti, öldrunarlækningadeild B4 í Fossvogi sem og starfsfólki líknardeildar Landspítala Landakoti fyrir frábæra umönnun. Ólafur R. Magnússon, Ása Gíslason, Erla Magnúsdóttir, Benedikt E. Gunnarsson, Jakob Magnússon, Sigríður Jakobínudóttir, Hulda Magnúsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langa- langafa, PÁLS ÞORLEIFSSONAR fyrrum húsvarðar í Flensborgarskólanum. Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki og vinum hans á Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrir hlýtt og gott viðmót og umönnun. Karlakórnum Þröstum eru færðar þakkir fyrir fallegan söng við útförina. Kristín Ína Pálsdóttir, Magnús R. Aadnegard, Þóra Gréta Pálsdóttir, Magnús J. Sigbjörnsson og fjölskyldan. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSGERÐUR ÁGÚSTA PÉTURSDÓTTIR, Árskógum 8, Reykjavík, síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu Sóltúni, lést þriðjudaginn 29. mars. Útförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 7. apríl kl. 15.00. Pétur Vilhjálmsson, Auður Sjöfn Tryggvadóttir, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Örn Guðmarsson, Jóhann Sigurfinnur Vilhjálmsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR KJARTANSDÓTTIR, Hvassaleiti 18, Reykjavík, lést miðvikudaginn 23. mars. Útför hennar fer fram frá Grensáskirkju mánudaginn 4. apríl kl. 13.00. Hreinn V. Ágústsson, Dóra Jónsdóttir, Björn Á. Ágústsson, Þuríður Magnúsdóttir, Einar Ágústsson, Unnur H. Pétursdóttir, Kjartan Ágústsson, Þóra S. Ingimundardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG HALLBJÖRNSDÓTTIR, til heimilis á Reynimel 84, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju fimmtu- daginn 7. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Rauða kross Íslands. Hallbjörn Sævars, Hrönn Þormóðsdóttir, Magnús Þór Vilbergsson, Harpa Sæþórsdóttir, Sigurður Hallbjörnsson, Guðrún Andrésdóttir, Hilmar Kári Hallbjörnsson, Sjöfn Finnbjörnsdóttir, Guðlaug E. Hallbjörnsdóttir og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.