Morgunblaðið - 02.04.2011, Blaðsíða 53
Spennumyndin Limitless erbyggð á skáldsögu írskarithöfundarins Alan Glynnog kom hún út fyrir 10 ár-
um. Það var síðan Leslie Dixon
sem byggði handrit Limitless á
bókinni, en bók Glynn verður hins
vegar endurútgefin á næstunni
undir sama heiti og kvikmyndin.
En upphaflega hét sagan The Dark
Fields.
Í kvikmyndinni Limitless er sagt
frá textahöfundinum Eddie Morra
(Cooper). Morra þessi er misheppn-
aður rithöfundur, sem hefur engu
að síður náð að gera útgáfusamn-
ing. Samninginn virðist hann þó
ætla að missa, þar sem ekkert
gengur að skrifa. Strax í upphafi
sögunnar sparkar unnustan (Corn-
ish) honum að auki. Úrkula vonar,
starandi í hyldýpið, kemst okkar
maður í kynni við tilraunalyf sem
kallast NZT. Oft er sagt að mann-
eskjan noti aðeins 20% heilans.
Sagan í Limitless byggist nokkuð á
þeirri fullyrðingu, þar sem NZT
hefur þau áhrif að neytandanum,
tekst að nýta 100% heilans við inn-
töku lyfsins. Eftir að Morra kemur
höndum yfir birgðir af þessu mikla
töfralyfi tekst honum að ljúka
skáldsögunni á nokkrum dögum,
við mikla ánægju útgefandans. Áð-
ur en langt um líður er Morra orð-
inn snillingur á sviði viðskipta og
fjármála og auðgast hratt. Fljótt
kemst hann í kynni við auðkýfing-
inn Carl Van Loon (De Niro) sem
ræður söguhetjuna sem aðal-
ráðgjafa sinn í stórum viðskipta-
samningi.
Ásamt því að auka gáfnafar þess
er neytir til mikilla munda, virðist
NZT líka breyta smekk manna. Við
upphaf myndarinnar er Morra frek-
ar tættur og hakkaður – óklipptur,
ógreiddur og klæddur í hálfgerða
larfa. Eftir nokkrar vikur á NZT
eru klæðskerasniðin jakkaföt og
óaðfinnanleg hárgreiðsla skyndilega
málið. Ásamt því að ná hröðum ár-
angri í lífinu þarf aðalpersóna
Limitless að lifa með ýmsum auka-
verkunum. Ekki bara líkamlegum
vegna inntöku lífsins, heldur flækist
okkar maður í ýmiss konar vand-
ræði. Er þar ýmist um að ræða úti-
stöður við okurlánara og önnur ill-
menni eða óþægilegar uppákomur á
hótelherbergjum.
Í rauninni er söguþráður mynd-
arinnar ekki sérstaklega bitastæður
og allnokkrir lausir endar fyrir
hendi. Samtöl eru ágætlega útfærð,
en ef ekki væri fyrir fyrstu-
persónulýsingu Eddie Morra á því
sem fyrir augu ber gætu áhorf-
endur lent í vandræðum með að
skilja hvað væri að gerast hverju
sinni. Hins vegar hélt kvikmyndin
athygli þess er þetta ritar nokkuð
vel allan tímann, enda er öll
myndataka og myndvinnsla oft á
tíðum skemmtileg. NZT hefur of-
skynjunaráhrif í för með sér fyrir
Eddie Morra, sem er skemmtilega
komið til skila. Í myndinni eru
nokkur skot sem sýna hraða för
eftir strætum New York. Ekki al-
veg augljóst hvað á að vera að ger-
ast þar, en svínlúkkar.
Fínasta mynd!
Háskólabíó
Limitless
bbbnn
Leikstjóri: Neil Burger Handrit: Leslie
Dixon & Alan Glynn
Aðalleikarar: Bradley Cooper, Anna
Friel, Abbie Cornish og Robert De Niro.
105 mínútur. Bandaríkin, 2011.
ÞÓRÐUR
GUNNARSSON
KVIKMYNDIR
Karlar í krapinu „Áður en langt um líður er Morra orðinn snillingur á sviði
viðskipta og fjármála og auðgast hratt.“ Cooper og De Niro í rullum sínum.
Töfrapillur sem auka viðskiptavit
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2011
Skannaðu kóðann
til að sjá stiklu úr
myndinni
700 kr.. á allar sýningar merktar með appelsínugulu
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
FRÁBÆR SKEMMTUN
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SPARBÍÓ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
HVERNIG VARÐ SAKLAUS
STRÁKUR FRÁ KANADA EINN
ÁSTÆLASTI TÓNLISTARMAÐUR
Í HEIMINUM Í DAG?
HE
IMI
LD
AR
MY
ND
UM
LÍF
JU
ST
IN
BIE
BE
RS
, ST
ÚT
FU
LL
AF
TÓ
NL
IST
I I
Í
I
I
,
I
ANTHONY HOPKINS SÝNIR
STJÖRNULEIK Í ÞESSARI
ÓGNVÆNLEGU SPENNUMYND
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
ATH! MYNDIN ER
ÓTEXTUÐ Í 3D
SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND SEM Á
EFTIR AÐ FÁ ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI
FRÁ FARRELLY BRÆÐRUM, ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SOMETHING ABOUT MARY OG DUMB AND DUMBER!
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI
FÓR BEINT Á TO
PPINN Í USA
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í EGILSHÖLL
EKKERT GETUR UNDIRBÚIÐ ÞIG
FYRIR ÞAÐ SEM GERIST NÆST
MÖGNUÐ STÓRMYND SEM
BEÐIÐ HEFUR VERIÐ EFTIR
MEÐ EFTIRVÆNTINGU
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG SELFOSSI
ATH. NÚMERUÐ SÆ
TI
Í KRINGLUNNI
STÓRKOSTLEG NÝ ÞRÍVÍDDAR
TEIKNIMYND FRÁ DISNEY
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
MYND SEM GAGNRÝNENDUR
HAFA SAGT AÐ SÉ SAMBLANDA AF
BOURNE MYNDUNUM OG TAKEN
HARÐJAXLINN LIAM NEESON ER
MÆTTUR Í MAGNAÐRI HASARMYND
“THE BEST ACTION
THRILLER IN YEARS!”
Stuart Lee, WNYX-TV
“
EXHILARATING.
UNKNOWN IS THE
FIRST GREAT MOVIE
OF THE YEAR!”
Shawn Edwards, FOX-TV
“LIAM NEESON
IS INTENSE!”
Bill Bregoli, CBS RADIO NEWS
“IT’S TAKEN
MEETS THE
BOURNE
IDENTITY.”
Rick Warner, BLOOMBERG NEWS
SÝND Í EGILSHÖLL
„DÚNDURSKEMMTILEGT TRIPP
SEM HELDUR ATHYGLI ÞINNI
FRÁ BYRJUN TIL ENDA“
-T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHH
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
/ KRINGLUNNI
SUCKER PUNCH kl. 8 - 10:20 12
HOP ísl. tal kl. 2 - 4 - 6 L
KURTEIST FÓLK kl. 8 - 10:10 L
MÖMMUR VANTAR Á MARS kl. 2 - 4 - 6 ísl. tal L
/ KEFLAVÍK
HOP ísl. tal kl. 2 - 4 -6 - 8 L
KURTEIST FÓLK kl. 5:50 - 8 - 10:10 7
SEASON OF THE WITCH kl. 10:10 14
MÖMMUR VANTAR Á MARS kl. 1:30 ísl. tal L
RANGO ísl. tal kl. 3:40
/ SELFOSSI
SUCKER PUNCH kl. 8 - 10:20 12
THE ADJUSTMENT BUREAU kl. 6 10
UNKNOWN kl. 8 - 10:20 16
HALL PASS kl. 6 12
MÖMMUR VANTAR Á MARS 3D kl. 2 - 4 ísl. tal L
YOGI BEAR ísl. tal kl. 4 L
GEIMAPAR 2 ísl. tal kl. 2 L
/ AKUREYRI
SUCKER PUNCH kl. 1:40 - 5:40 - 8 - 10:20 12
THE ADJUSTMENT BUREAU kl. 6 - 8:20 - 10:30 10
UNKNOWN kl. 10:20 16
MÖMMUR VANTAR Á MARS 3D ísl. tal kl. 2 - 3:50 L
ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI ísl. tal kl. 1:20 - 3:30 L
YOGI BEAR 3D ísl. tal kl. 4 L
THE KING'S SPEECH kl. 5:40 L TRUE GRIT kl. 8 16