Morgunblaðið - 26.07.2011, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 26.07.2011, Qupperneq 17
BAKSVIÐ Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Æskuvinur Anders Behring Breivik, sem vefútgáfa norska blaðsins Dagbladet tók viðtal við í gær, segist finna til mikils haturs í garð vinar síns fyrrverandi. Vinurinn, sem ekki vill láta nafns síns getið, flutti í hverfið Hoff í Ósló sem ungur strákur á níunda áratugn- um og var Breivik þá einn fyrsti vin- urinn sem hann eignaðist. Hann segir að Breivik hafi verið góður í sér en nokkuð feiminn. Þegar þeir kynntust bjó Breivik í íbúð í Hoff með móður sinni og systrum, en foreldrar hans höfðu þá skilið. „Það var alltaf mjög notalegt að koma þangað. Það var hlýlegt og indælt heimili,“ segir hann. „Já, ég á margar góðar minningar, en … þetta er bara of sjúkt,“ segir hann og tárast við tilhugsunina. Varð útundan sem unglingur Sem unglingar missstu þeir tengslin að nokkru leyti. Undir lok sjötta bekkjar varð Breivik útundan og varð fyrir einelti. „Það gerðist aldrei þegar ég var nálægt. Ég stríddi honum heldur aldrei,“ segir hann. Vinir hans komu í veg fyrir að honum væri mikið strítt. Engu að síður segist þeim svo frá að hann hafi verið nokk- uð harður af sér. Um tíma var Breivik í félagsskap með veggjakroturum, en var síðar útskúfaður úr félagsskapn- um fyrir að klaga þá. Um þetta leyti byrjaði hann að lyfta lóðum og að sögn vinarins byrjaði hann líka að taka stera. Eftir grunnskóla hittust þeir sjaldnar en vinurinn segir að Breivik hafi orðið æ meiri einfari og telur að hann hafi strítt við minni- máttarkennd. Hann kveðst hafa hitt hann síðast fyrir um ári, og þá hafi hann sagt með bros á vör að hann ynni að verkefni sem hann vildi ekk- ert segja frá. Eftir árásirnar hefur verið sagt frá Breivik sem fullkomnunarsinna. Æskuvinur hans segir að hann hafi farið í nokkrar lýtaaðgerðir í Banda- ríkjunum fyrir nokkrum árum. „Ég hitti hann í strætó og hann var gríð- arlega ánægður. Hann hafði látið breyta á sér enninu, nefinu og hök- unni,“ segir æskuvinurinn. Vinum hans segist svo frá að Breivik hafi nánast aldrei verið við kvenmann kenndur og að árið 2004 hafi þeir séð mynd af honum frá Gaypride- göngunni í Oslo, dans- andi á vörubílspalli. Þeir hafi spurt hann hvort hann væri sam- kynhneigður en hann hafi neitað því. ,,Hann var alltaf að segja frá einhverjum dömum, en við hittum þær aldrei. Hann hefur aldrei átt kærustu svo ég viti til,“ segir æskuvinur hans. Feiminn og góð- ur en svo einfari  Æskuvinur Breiviks segir hann hafa farið í lýtaaðgerðir BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Framan af tuttugustu öld var hlut- fall innflytjenda í Noregi lágt. Á síðustu áratugum aldarinnar tók þetta að breytast og voru margir fylgjandi þeirri breytingu, meðal annars með þeim rökum að það væri mannúðarstefna í verki að gera fólki brotnu af erlendu bergi kleift að setjast að í landinu. Noregur hefur, líkt og Ísland, verið einsleitt og samheldið þjóð- félag þar sem þorri íbúanna er nor- rænn í útliti. Þótt trúfrelsi ríki hafa flestir Norðmenn játað kristna trú og kristin kirkja verið lykilstofnun í þjóðlífinu. Sjá ógn í breytingunum Eftir því sem innflytjendum af öðrum menningarsvæðum, sem að- hyllast önnur trúarbrögð, fjölgar tekur einsleitnin smátt og smátt að víkja fyrir flóknari og margbreyti- legri veruleika. Og eins og verða vill eiga sumir erfiðara með að fóta sig í nýjum veruleika en aðrir. Þeg- ar óttinn við hið óþekkta tekur völd líður ekki á löngu þar til fordómar, andúð og jafnvel hatur skýtur rót- um í hjörtum þeirra sem sjá ógn í hinu nýja samfélagsmynstri. Þessi þróun er ekki einskorðuð við Noreg. Mörg Evrópuríki hafa reynt sambærilega þróun. Skýran vitnisburð um það má e.t.v. finna í góðu gengi stjórnmálaflokka sem gera út á andúð gegn því sem þeir kalla innflytjendastraum og vanda- mál sem þeir segja að honum fylgi. Tekið skal fram að eftirtaldir Reuters Einsleitni á undanhaldi Tveir menn, annar af erlendu bergi brotinn, syrgja fórnarlömb ódæðanna við dómkirkjuna í Ósló. Þjóðarsorg er í Noregi. flokkar eru ólíkir innbyrðis og taka stefnumálin mið af aðstæðum í hverju landi. Þá fer því fjarri að hugtakið fjölmenningarsamfélag eigi við öll löndin í ýtrustu merk- ingu. (Til einföldunar má skilgreina fjölmenningarstefnu svo að hún feli í sér að ekki megi hampa einni sam- félagsgerð eða menningu á kostnað annarra.) Andstaða í einhverri mynd við óbreytta stefnu í innflytjenda- málum tengir þó eftirtalda flokka og réttlætir það e.t.v. að spyrða þá saman í stuttri yfirlitsgrein. Bylgjan tekur að rísa Skemmst er að minnast góðs gengis Sannra Finna í þingkosning- unum í Finnlandi í apríl. Flokk- urinn var ótvíræður sigurvegari kosninganna og stóð uppi sem þriðji stærsti flokkur landsins með um 19% atkvæða. Vildi flokkurinn meðal annars herða skilyrði fyrir ríkisborgararétti og að búið skyldi svo um hnútana að innflytjendum sem kæmust ítrekað í kast við lögin yrði vísað úr landi. Hinum megin við landamærin unnu Svíþjóðardemókratar góðan sigur í þingkosningunum í fyrra- haust. Flokkurinn á rætur að rekja til öfgahreyfingarinnar Svíþjóð fyr- ir Svía og var rifjað upp í kosninga- baráttunni að á tíunda áratug síð- ustu aldar hefðu félagar enn birst í nasistabúningum á flokksfundum. Liðsmenn flokksins líta svo á að svokölluð pólitísk rétthugsun hamli opinskárri umræðu um málefni inn- flytjenda. Ögrun er því hluti orð- ræðunnar og hikaði Jimmie Åkes- son, leiðtogi Svíþjóðardemókrata, ekki við að tengja glæpi við innflytj- endur í kosningabaráttunni. Sunnar í álfunni vann Þjóðfylk- ingin, þjóðernisflokkur Jean-Marie Le Pen í Frakklandi, góðan sigur í sveitarstjórnarkosningunum í fyrravor. Rætt var um upprisu flokksins eftir að hann fékk 12% greiddra atkvæða. Dóttir stofnand- ans, Marine Le Pen, hefur byr í seglin og mældist með jafnvel meiri stuðning en Nicolas Sarkozy Frakk- landsforseti þegar henni var stillt upp sem valkosti í könnun í tilefni forsetakosninga á næsta ári. Þessi bylgja hefur risið hvað hæst í Hollandi. Þar hefur Geert Wilders, einn umdeildasti stjórnmálamaður Evrópu á síðari tímum, verið feng- sæll á miðum andstöðunnar við inn- flytjendur. Andvígir íslömskum áhrifum Meint útbreiðsla íslamskrar menningar í Evrópu er rauður þráður í málflutningi Wilders, sem fer nú fyrir þriðja stærsta stjórn- málaflokki Hollands. Kosið var til þings í Hollandi í fyrra og varð út- koman sú að flokkur Wilders styður minnihlutastjórn hægriflokksins VVD og Kristilegra demókrata. Í þessari upptalningu verður ekki hjá því komist að geta góðs gengis Framfaraflokksins í Noregi í síð- ustu þingkosningum. Flokkurinn hlaut þá 22% atkvæða og jók fylgið frá kosningunum þar á undan. Málefni innflytjenda hafa einnig komið við sögu í dönskum stjórn- málum og hefur umræða um þau leitt til þess að eftirlit á landamær- unum hefur verið hert. Þessi upptalning er langt í frá tæmandi. Nefna mætti fleiri nýleg dæmi úr evrópskum stjórnmálum. Til höfuðs fjölmenningarstefnunni  Flokkar sem gera út á andúð gegn innflytjendum hafa sótt í sig veðrið í V-Evrópu undanfarin ár  Eru áhrifaafl í stjórnmálum á Norðurlöndum  Margir kjósendur sjá ógn í nýrri þjóðfélagsgerð 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011 Klukkan var 26 mínútur gengin í tvö eftir hádegi þegar sprengjan sem Breivik kom fyrir í Ósló sprakk með mannfalli og miklu eignatjóni. Rétt ríflega einni og hálfri klukkustund síðar berst tilkynning um að lög- reglumaður vilji láta ferja sig yfir í Utøya-eyju. Sem kunnugt er var Breivik þar á ferð. Hann beið ekki boðanna heldur greip til vopna. Til- kynnt var um skothríðina 26 mínútur yfir þrjú. Við tók löng klukku- stund á eyjunni. ÓDÆÐISVERKIN Í NOREGI Heimild: Reuters, fréttaskeyti. 13.26 Miðborg Óslóar Sprengja sem Breivik kom fyrir í bifreið fyrir utan skrifstofur Jens Stoltenbergs forsætisráðherra springur. Sjö bíða bana í ódæðinu. Breivik ekur síðan 45 km leið norðvestur til Utøya-eyju. 15.26 Hønefoss Lögreglan í norðurhluta Buskerud-fylkis fær tilkynningu um skothríð á Utøya-eyju og óskar svo liðsinnis frá Ósló. 15.52 Utøya-eyja Fyrsti lögreglumaðurinn vitjar svæðisins en þarf að bíða eftir bát. 16.09 Lögreglan í Ósló kemur á svæðið en vandræði með bát tefja för út í eyjuna. 14.57 Utøya-eyja Ferjumaður fær þau boð að lögreglumaður vilji láta ferja sig í Utøya-eyju. 16.25 Utøya-eyja Sérsveit lögreglunnar kemur á vettvang. 16.27 Breivik gefst upp án mótspyrnu eftir að hafa skotið tugi manna til bana með köldu blóði. Anders Behring Breivik hefur játað að hafa staðið á bak við árásirnar í Ósló og á Utøya-eyju. Atburðarásin er hér rakin lið fyrir lið þessar örlagaríku klukkustundir. 4 km 1 2 5 3 4 A ke rsg a ta Grensen Pilestredet Ring 1 Skrifstofur forsætis- ráðherrans N O R E G U R Ó S L Ó 200 m Klukkutími var eilífð Breivik var í nánum tengslum við and-íslömsku samtökin English Defence League í Bret- landi, að sögn Daily Telegraph. Forystumenn samtakanna við- urkenna að hafa verið í tengslum við hann og að hann hafi hitt fólk á vegum þeirra í London. Sjálfur heldur Breivik því fram að um 600 manns í samtökunum hafi verið vinir hans á Facebook. Einn forystu- manna English Defence League, sem vildi ekki láta nafns síns getið, segir Breivik hafa komið vel fyrir. Hann hafi haft einhver dáleiðandi áhrif eins og sagt hafi verið að Adolf Hitler hafi haft. Samtökin hafa lýst því yfir að þau hafi engin tengsl við Breivik en yf- irvöld í Bretlandi eru sögð taka ummæli Breiviks um tengsl sín við samtökin mjög alvarlega. Í tenglum við ensk samtök ENSKIR AND-ÍSLAMISTAR Breivik þjónaði ekki í norska hernum en á myndum sem hann setti á vefinn er hann í e.k. einkennisbúningi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.