Morgunblaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 31
DAGBÓK 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2011 Sudoku Frumstig 1 5 6 9 1 2 6 8 4 7 7 8 5 6 9 2 7 4 1 5 7 9 9 4 6 1 5 3 9 7 8 6 5 8 5 1 9 6 4 3 6 1 5 9 4 8 6 5 7 8 3 4 1 2 5 9 2 3 6 9 8 2 4 7 3 4 6 4 8 7 6 5 3 2 4 3 9 1 8 6 5 2 4 7 7 2 6 4 1 9 3 5 8 4 5 8 2 3 7 6 1 9 5 7 2 1 8 6 9 3 4 8 3 4 9 7 2 5 6 1 1 6 9 5 4 3 7 8 2 9 4 7 3 5 8 1 2 6 6 8 5 7 2 1 4 9 3 2 1 3 6 9 4 8 7 5 8 1 4 7 6 3 5 2 9 6 9 3 4 2 5 8 7 1 5 2 7 8 9 1 6 4 3 4 5 6 9 1 8 2 3 7 2 8 1 3 7 6 9 5 4 3 7 9 2 5 4 1 8 6 7 6 5 1 3 2 4 9 8 1 3 8 5 4 9 7 6 2 9 4 2 6 8 7 3 1 5 7 3 9 1 5 2 8 4 6 5 6 8 3 9 4 2 1 7 4 1 2 8 6 7 5 3 9 6 9 4 5 7 3 1 8 2 1 7 3 2 8 9 6 5 4 2 8 5 6 4 1 7 9 3 9 4 1 7 2 8 3 6 5 8 2 6 4 3 5 9 7 1 3 5 7 9 1 6 4 2 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 1. september, 244. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu og mig hólpinn leiða inn í sitt himneska ríki. Honum sé dýrð um aldir alda! Amen. (Tím. 4, 18.) Það fer ekki á milli mála að skól-arnir eru byrjaðir. Það sést á umferðinni á morgnana. Þar sem fyrir nokkrum dögum var greið leið og hindrunarlaus eru nú teppur og umferðin eins og seigfljótandi kvoða. x x x Og að sjálfsögðu situr yfirleitteinn í hverjum bíl og mjakast áfram á meðan bensínið fuðrar upp. Hátt eldsneytisverð er farið að hafa áhrif á ökumenn. Þau áhrif koma reyndar aðallega fram í erg- elsi yfir því hvað sé dýrt að komast á milli. Veðrið virðist jafnvel vera farið að víkja fyrir þessu umræðuefni og menn kvarta sáran yfir því hvað það kostar mikið að fylla tankinn í ferð- um um landið og hvernig það sé orð- ið ofviða venjulegu fólki að reka bíl í þessu árferði. x x x Víkverji getur hæglega tekið und-ir þennan grátkór, en hann furðar sig á því hvað þessi sársauki í umræðunni hefur lítil áhrif á hegðun ökumanna. Ljóst er að bensín- eyðslan rýkur upp þegar stöðugt er gefið í og bremsað á meðan jafn akstur sparar bensín. Samt keyra sumir eins og þeir eigi lífið að leysa þegar þeir fá grænt ljós þótt þeir viti að á næstu gatnamótum bíður rautt ljós, sem hefta mun för þeirra, í stað þess að sigla rólega og hitta alltaf á grænt. Víkverji verður líka alltaf jafn hissa þegar ökumenn stórra jeppa, sem örugglega eyða hátt í tuttugu lítrum á hundraðið, gefa í þegar þeir fara upp brattar brekkur. x x x Iðulega eru þetta bílar, sem keypt-ir voru rétt fyrir hrun, silfurlitir með glansandi leðursætum, og þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá fyrir sér að afborganir af þeim séu ekkert grín, hvað þá að fylla á tank- inn. Auðvitað ræður fólk því hvernig það brennir upp peningana sína, en það er frekar öfugsnúið að kvarta og kveina undan háu bensínverði og keyra síðan eins og maður sé með ol- íulind í garðinum hjá sér. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 ástæða, 4 beiskur, 7 klínir, 8 trylltan, 9 gegn- sær, 11 kná, 13 vegur, 14 spilið, 15 autt, 17 kvísl, 20 beita, 22 vænn, 23 ilmur, 24 ýlfrar, 25 kliður. Lóðrétt | 1 maðkur, 2 poka, 3 landabréf, 4 öl, 5 aga, 6 stokk- ur, 10 iðkun, 12 glöð, 13 gyðja, 15 munnbita, 16 þreytt- ur, 18 sagt ósatt, 19 hófdýr, 20 ránfuglar, 21 heiti. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 grafkyrra, 8 lætur, 9 gáfan, 10 kol, 11 geims, 13 an- aði, 15 storm, 18 ótrúr, 21 ung, 22 lýkur, 23 neiti, 24 endurmeta. Lóðrétt | 2 rætni, 3 forks, 4 yggla, 5 rofna, 6 flog, 7 knái, 12 mær, 14 net, 15 sálm, 16 orkan, 17 murtu, 18 ógnum, 19 reitt, 20 róin. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Aukamöguleiki. Norður ♠ÁKG102 ♥ÁG10 ♦753 ♣G2 Vestur Austur ♠9753 ♠864 ♥74 ♥6532 ♦KG6 ♦109 ♣KD74 ♣8653 Suður ♠D ♥KD98 ♦ÁD842 ♣Á109 Suður spilar 6G. Sagnhafi á ellefu toppslagi og getur reynt við þann tólfta með svíningu í tígli (50%) eða tvísvíningu í laufi (76%). Hvorugt heppnast, eins og lesandinn sér mæta vel, og því reynir á að finna þriðju leiðina. Útspilið er ♥7. Nákvæmur sagnhafi spilar þannig: Tekur á ♥K, leggur niður ♠D, fer inn í borð á ♥Á, tekur þrjá slagi á spaða og hendir þremur tíglum heima. Prófar svo ♣G. Ef gosinn laðar fram háspil í austur er drepið með ás, farið inn í borð á hjarta, slagur tekinn á fimmta spaðann og ♦D hent heima. Lauf- slagur loks fríaður. Eins og legan er í raun fær vestur hins vegar slaginn á hálauf og neyðist til að spila láglit til baka upp í gaffal – þökk sé tvíspilinu í hjarta. 1. september 1910 Kveikt var á gasljósum í fyrsta sinn á götum bæjarins. „Marg- ir bæjarbúar þustu út á götu með blað og bók í hendi. Þeir vildu reyna hvort lesbjart yrði við ljóskerin,“ segir í end- urminningum Knuds Zimsens borgarstjóra. 1. september 1930 Kvikmyndahúsin í Reykjavík hófu sýningar talmynda.Í Morgunblaðinu var sagt að mikil eftirvænting hafi ríkt en „fæstir hafi skilið hvað sagt var“. 1. september 1932 Jóhann Jónsson skáld lést, 35 ára. Eitt þekktasta ljóð hans er Söknuður. „Öll hugsun hans og líf snerist um íslensk efni, fyrst og síðast. Hann lifði ekki á Íslandi, en hann lifði Ís- land,“ sagði Kristinn E. Andr- ésson. 1. september 1971 Bann við hundahaldi í Reykja- vík tók gildi. Hundahald var leyft með skilyrðum þrettán árum síðar. 1. september 1972 Bobby Fischer, 29 ára Banda- ríkjamaður, sigraði Rússann Boris Spassky í heimsmeist- araeinvíginu í skák í Reykja- vík með 12,5 vinningum gegn 8,5 vinningum. 1. september 2001 Landslið Íslands í knattspyrnu vann Tékka, eitt sterkasta lið heims, á Laugardalsvelli með 3 mörkum gegn 1. „Þetta er stærsti sigur landsliðsins til þessa,“ sagði í fréttum Stöðv- ar 2. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … „Það er nú ekkert á stefnuskránni í tilefni dagsins annað en það að fara út að borða. Það verður látið duga að þessu sinni en stefnt á heljarinnar hátíð við næsta stórafmæli,“ segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, en hann fagnar 45 ára afmæli í dag. Spurður um áfangann segir Óm- ar að þetta sé mjög góður aldur. „Þetta er bara rétt að byrja.“ Lífið er annars gott í Súðavíkurhreppi að sögn Ómars. „Jú jú, það fer afskaplega vel um okkur hér á Vestfjörðum og í Súðavíkurhreppi. Um síð- ustu helgi var til að mynda allsherjarhátíð hjá okkur, svonefndir Bláberjadagar, og maður er bara að jafna sig eftir þá miklu hátíð sem var þá haldin í fyrsta skipti og tókst bara með ein- dæmum vel.“ Þá hafi sumarið verið gott veðurfarslega og fjölmargir ferðamenn heimsótt bæði Súðavík og Vestfirði sem slíka. Spurður að því hvort hann hafi ferðast eitthvað í sumar segist Óm- ar hafa farið á tvö ættarmót. Annað í eigin föðurætt á Reykjanesi en hitt í föðurætt eiginkonunnar í Reykjadal í Suður-Þingeyjasýslu. „Ég er sem sagt hér norðvestast á landinu og svo fórum við nánast sitt á hvorn endann á landinu,“ segir hann og hlær. hjorturjg@mbl.is Ómar Már Jónsson er 45 ára í dag „Þetta er bara rétt að byrja“ Hlutavelta  Baldur Ein- arsson, Egill Orri Elvarsson og Leó Ernir Reynisson héldu tombólu og söfnuðu 10.000 kr. sem þeir gáfu Rauða krossi Íslands. Flóðogfjara 1. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 2.09 -0,1 8.17 4,2 14.30 0,1 20.37 4,2 6.10 20.47 Ísafjörður 4.17 0,0 10.15 2,4 16.38 0,1 22.31 2,4 6.08 20.59 Siglufjörður 0.29 1,5 6.37 0,0 12.58 1,4 18.50 0,1 5.50 20.42 Djúpivogur 5.25 2,4 11.43 0,1 17.47 2,3 23.57 0,2 5.38 20.18 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Svo getur farið að nýjar skyldur minni þig á eitthvað sem þú átt ólokið úr for- tíðinni. Forgangsraðaðu verkefnum. (20. apríl - 20. maí)  Naut Tilfinningar þínar sýna þér að hverju þarf að vinna, en ekki sýna tilfinningar við vinnuna. Enginn er fullkominn og öll leit að slíkri persónu er dæmd til þess að mistak- ast. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Nú reynir aldeilis á þig í starfi og eins gott að þú sért með þitt á hreinu. Ein- hver er of yfirgangssamur/söm og útkoman því fyrirsjáanleg. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Hreinskilni er aðdáunarverð, en veltu því samt fyrir þér hvernig þú átt að bera þig að á mikilvægum augnablikum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Einhver atburður sem gerist í nágrenni þínu snertir þig dýpra en aðrir. Dramb er falli næst. Nú er rétti tíminn til þess að gera al- vöru úr draumum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Framvindan er oft hröð og þú nýtur þess að hafa mikið fyrir stafni. Láttu það ekki stíga þér til höfuðs þótt fólk hrósi þér. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Hæfni þín í að komast til botns í málum kemur sér vel í dag. Varastu að festast í gömlum gildum sem eiga ekki lengur við og eru bara til trafala. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það er gaman að taka fulla ábyrgð á litlu hlutunum í lífinu. Þú ert klárari en þú heldur. Einhver vill hjálpa þér en viltu hjálp? (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Gerðu það sem þú hefur látið sitja á hakanum undanfarnar vikur. Fyrir alla muni ekki byrgja tilfinningar inni. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú verður að láta reyna á dóm- greind þína því það hefur ekkert upp á sig að láta aðra stjórna lífi þínu á öllum sviðum. Teldu upp fimm kosti sem þú telur þig búa yfir – á hverju kvöldi í viku. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það er í góðu lagi að gera sér glaðan dag ef þú gætir þess bara að það bitni hvorki á vinum þínum né vinnu. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú sýnir fram á að oft duga engin vettlingatök í uppeldinu. Hugmynd sem þú hefur haft lengi þykir þunnur þrettándi. Stjörnuspá 1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. d4 Bg7 4. g3 0-0 5. Bg2 c6 6. Rc3 d5 7. cxd5 cxd5 8. Re5 e6 9. 0-0 Rfd7 10. Rf3 Rc6 11. e4 dxe4 12. Rxe4 h6 13. Be3 Rb6 14. Hc1 Rd5 15. Rc3 Rce7 16. Rxd5 Rxd5 17. Bd2 Db6 18. Da4 Hd8 19. Re5 Dxb2 20. Bxd5 exd5 21. Hc2 Db6 22. Hfc1 Bh3 23. Hc7 Hf8 24. Bf4 g5 25. Be3 Had8 26. Rd7 Staðan kom upp á franska meist- aramótinu í opnum flokki sem lauk fyr- ir skömmu í Caen. Hicham Hamdouchi (2.628) hafði svart gegn Jean-Pierre Le Roux (2.517). 26. … Hxd7! 27. Hxd7 De6 og hvítur gafst upp enda getur hann ekki varist máti með góðu móti, t.d. eftir 28. Hdc7 De4. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.