Morgunblaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 6
BYGGINGARLIST
GLASGOW ER HEIMILI HINS RÓMAÐA
NÝLISTARARKITEKTS CHARLES RENNIE
MACKINTOSH. Hinn nýskapandi og
áhrifamikla stíl hans má sjá um alla borgina,
þ.m.t. Glasgow School of Art, House for an Art
Lover og innréttingar hinnar fallegu testofu
Willow Tearooms.
LIFANDI TÓNLIST
Í OKTÓBER BÝÐUR GLASGOW MOBO-
VERÐLAUNAHÁTÍÐINA AFTUR VELKOMNA
TIL BORGARINNAR. Þessi hápunktur breska
tónlistariðnaðarins fagnar hinu besta á breska,
alþjóðlega og urban tónlistarsviðinu. Fjöldi
frábærra listamanna kemur fram á viðburði
ársins í ár, þ.m.t. nýja breska goðið Jessie J og
ameríska R&B stjarnan Alexis Jordan.
SÖFN OG GALLERÍ
GLASGOW ER BORG MENNINGAR og heimili
meira en tuttugu safna og listagallería þar
sem ekki þarf að greiða fyrir aðgang. Meðal
þess áhrifamikla sem borgin hefur upp á
að bjóða er Kelvingrove Art Gallery, sem
er glæsileg bygging frá Viktoríu-tímabilinu
sem hýsir heimsklassa safn listaverka og
smíðagripa. Kelvingrove Art Gallery er eitt
af stærstu og vinsælustu söfnum Stóra
Bretlands.
Mikilfenglega nýja Riverside safnið er
hrífandi kennileiti á bökkum árinnar Clyde
og hýsir hið tilkomumikla samgöngusafn
borgarinnar. Aðgangur að safninu er án
endurgjalds og þið getið gengið um borð í
seglskipið Glenlee sem liggur við festar við
hlið safnsins. Sýningin Foundation at the
Lighthouse er einnig ný á árinu 2011. Þessi
nýja gagnvirka sýning flytur gestinn aftur í
tímann þannig að hann upplifir sögu Glasgow
á sannarlega einstakan máta.
FYRIR
HIÐ FU
LLKOM
NA
HAUST
FRÍ – H
EIMSÆ
KIÐ
GLASG
OW
Í SÍÐUSTU ÚTGÁFU LONELY PLANET ER GLASGOW LÝST SEM
„tilgerðarlausri, félagslyndri og í þróun á svimandi hraða…
annað orð fyrir tísku og stæl”. Borgin er einn af mest spennandi
áfangastöðum í Evrópu. Með stórkostlegar verslanir, ótrúlega
byggingarlist og söfn á heimsvísu sem og spennandi næturlíf og
líflega afþreyingu er Glasgow kjörinn áfangastaður fyrir borgarfrí.