Morgunblaðið - 08.09.2011, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Vertu netsnjall! er bæklingur sem
SAFT og Nýherji hafa gefið út um
árvekni á netinu.
Bæklingurinn, sem ætlaður er
börnum og unglingum og for-
ráðamönnum þeirra, hefur að
geyma ýmis heilræði um hvernig
hægt sé að vera „netsnjall“ og hvet-
ur um leið til gagnrýninnar hugs-
unar um það sem finnst á netinu.
Í bæklingnum eru m.a. ráðlegg-
ingar um hvernig netnotendur geta
stýrt „prófílnum“ á netinu og
hvernig passa megi upp á persónu-
upplýsingar og lykilorð. Einnig er
bent á að það sem fólk skrifar á net-
ið situr þar eftir um ókomna tíð.
Bæklingnum verður dreift í þá
grunnskóla sem SAFT heimsækir í
vetur. Einnig er hægt að nálgast
hann á skrifstofu Heimilis og skóla.
Honum verður einnig dreift í raf-
rænu formi til allra grunnskóla og
verður ennfremur að finna á vef
SAFT.
Gísli Þorsteinsson, markaðsstjóri
Nýherja, og Hrefna Sigurjóns-
dóttir, framkvæmdarstjóri Heimilis
og skóla, kynntu útgáfu bæklings-
ins.
Vertu netsnjall! – nýr bæklingur fyrir börn
og foreldra um árvekni á netinu gefinn út
Á mánudaginn fengu
nemendur og starfsfólk
Áslandsskóla heimsókn
frá ÁVEXTI sem eru
hvatasamtök að aukinni
ávaxtatrjáræktun á Ís-
landi. Jón Þórir Guð-
mundsson, garðyrkju-
fræðingur af Akranesi,
og Lilja Oddsdóttir, for-
maður samtakanna,
færðu skólanum að gjöf
tvö eplatré. Skólinn
ákvað að kaupa eitt stykki að auki
og voru því gróðursett þrjú epla-
tré aftan við skólann. Trén þrjú
heita Close, Carol og Rödlöven og
eru frá Bandaríkjunum, Kanada
og Svíþjóð. Ef allt gengur að ósk-
um gætu þau borið ávexti að 2-4
árum liðnum.
Þrjú eplatré gróðursett við Áslandsskóla
Lögfræðingafélag Íslands efnir til
hádegisverðarfundar fimmtudag-
inn 8. september kl. 12-13 í Gull-
teigi B, Grand Hóteli.
Fundarefnið er: Kaup erlendra
aðila á fasteignum á Íslandi.
Kveikjan að fundinum er kaup Hu-
ang Nubo á Grímsstöðum á Fjöll-
um.
Á fundinum mun Karl Axelsson
hrl. hjá Lex og dósent við lagadeild
Háskóla Íslands fjalla um þær laga-
reglur sem gilda um fjárfestingar
erlendra aðila á fasteignum og
náttúruauðlindum. Eyvindur G.
Gunnarsson, dósent við lagadeild
Háskóla Íslands, mun bregðast við
erindinu.
Fundarstjóri verður Kristín Ed-
wald hrl. og formaður LÍ.
Aðgangseyrir með hádegisverði
er 3.000 kr. en fyrir félaga í LÍ
2.700 kr. Greiðist við innganginn.
Morgunblaðið/Arnaldur
Ræða kaup útlend-
inga á fasteignum
hér á landi
Fimmtudaginn 8. september verður
haldið málþing um þróunarsam-
vinnu á Háskólatorgi í Háskóla Ís-
lands sal 102, kl. 12-13.
Fundarstjóri verður Regína
Bjarnadóttir, formaður stjórnar
UN Women á Íslandi. Jón Kalman
rithöfundur, Helga Þórólfsdóttir
friðarfræðingur og Engilbert Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Þró-
unarsamvinnustofnunar Íslands,
munu flytja erindi.
Málþingið er hluti af kynningu
sem stendur yfir á þróunarhjálp Ís-
lendinga erlendis.
Ræða þróunarhjálp
Mjólkursamsalan (MS) flutti á dög-
unum út gám af gouda-osti til Hol-
lands. Það er í fyrsta skipti í tólf ár
sem fastur ostur er fluttur út frá Ís-
landi og síðast var fastur ostur
fluttur út að einhverju ráði árið
1992.
Um er að ræða tilraunaverkefni
og segir Jón Axel Pétursson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs MS, að verið sé að kanna
markaðsmöguleika með útflutn-
ingnum.
MS flytur út ost
STUTT
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Sumarið lét bíða lengi eftir sér hér
fyrir norðan, eins og áhugamenn um
þann árstíma muna örugglega vel.
Haustið er hins vegar ekki á þeim
buxunum. Það er mætt, og fer ekki
framhjá neinum.
Skítaveður eins og boðið var
upp á í gær, rok og rigning, er gott
að því leyti að maður sem kemur aft-
ur til vinnu eftir langt frí sættir sig
við að sitja inni! Aðrir ruku til og
reyndu að bjarga uppskerunni; jarð-
arberjum, káli og fleira góðgæti.
Dalsbraut er enn í brennidepli.
Bæjaryfirvöld hafa boðað til íbúa-
fundar í kvöld í Lundarskóla, þar
sem rætt verður um þá umdeildu
götu. Formlegt efni fundarins er
deiliskipulagið „Dalsbraut frá Þing-
vallastræti að Miðhúsabraut“ sem
meirihluti bæjarstjórnar hefur
ákveðið að leggja.
Skipulag Dalsbrautar er enn í
vinnslu og allir þættir málsins verða
kynntir á fundinum, sem hefst kl.
20.30. Oddur Helgi Halldórsson, for-
maður bæjarráðs og formaður
vinnuhóps um skipulag Dalsbrautar,
gerir m.a. grein fyrir því hvar málið
stendur.
Ástæða er til að óska Birni Þor-
lákssyni kollega til hamingju með
Akureyri vikublað, sem hóf göngu
sína í síðasta mánuði. Því fleiri fjöl-
miðlar, því betra fyrir samfélagið.
Og samkeppnin er góð; svei mér ef
þeir Vikudagsmenn hafa ekki spýtt í
lófana eftir að blað Björns fór að
koma út...
Andri Geir Viðarsson náði þeim
áfanga að fara holu í höggi á Jað-
arsvellinum sl. laugardag – á 18.
braut á Byko-mótinu. Andri Geir er
sá fyrsti sem nær draumahögginu að
Jaðri í sumar en hvorki fleiri né
færri en 10 náðu því í fyrra.
Norðanmenn hafa sama húmor
og borghyrningar. Ég heyrði því
a.m.k. fleygt að hlátrasköllunum
hefði aldrei ætlað að linna í Hofi um
síðustu helgi þegar Vesturport sýndi
gleðileikinn Húsmóðurina. Færri
komust að en vildu og aukasýningu
hefur því verið bætt við næsta laug-
ardag.
Megas og Senuþjófarnir leika á
Græna hattinum annað kvöld og á
laugardaginn treður þar upp hljóm-
sveitin Ensími.
Á næstunni verður hægt að lesa
frítt á Akureyri! Í tilefni Dags læsis,
sem er í dag, verður bókakössum
dreift á fjölmenna staði, t.d. á kaffi-
hús, verslanir og heilsugæsluna; í
kössunum eru bækur sem fólk má
grípa með sér heim, lesa, og skila
síðar í sambærilegan kassa. Hver og
ein verður merkt: Bók í mannhafið.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Haust Gróður er enn grænn á Akureyri en litabreytingar örugglega í
vændum. Þessir ferðamenn minntu íbúana á það í gær að haustið er komið.
Allt er vænt sem vel er gult
Mikil aukning hefur verið á sölu nef-
tóbaks hérlendis og 1. september sl.
bættist ný tegund, Lundi, við á
markaðinn.
Skorri Andrew Aikman, sölustjóri
Rolf Johansen & Co., segir að fyrir-
tækið hafi viljað vera með á vaxandi
markaði og hafi því sett Lunda á
markað. Ferlið hafi staðið lengi yfir
og tími kominn á annan valkost.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að-
stoðarforstjóri ÁTVR, segir að sam-
keppnin hafi ekki enn haft áhrif á
framleiðslu ÁTVR. Ekki hafi verið
rætt um að hætta henni en mark-
miðið sé ekki að auka söluna og
ÁTVR taki þátt í herferð gegn
munntóbaksnotkun.
Viðar Jensson, verkefnisstjóri í
tóbaksvörnum hjá Landlæknisemb-
ættinu, segir að vaxandi neysla sé
raunverulegt vandamál. Samkvæmt
könnunum Capacent Gallup hafi
15% 16-23 ára pilta notað munn-
tóbak daglega 2009 og 2010 en í júní
2011 hafi talan verið 21%. Um 1%
stúlkna hafi neytt efnisins. ÁTVR
hafi framleitt 16,7 tonn af neftóbaki
árið 2007 en 25,5 tonn í fyrra. 2009
hafi 73% eingöngu notað íslenska
neftóbakið sem munntóbak en í júní
í ár hafi talan verið 86%. „Við höfum
reynt að sporna við neyslunni með
verkefnum eins og „Fyrirmyndar-
leikmanninum“ en við erum rétt að
byrja,“ segir Viðar og bætir við að
ungt fólk hefji helst notkun fyrir til-
stuðlan fyrirmynda eða hópþrýst-
ings. Hann leggur áherslu á að
neyslan sé ekki meiri hjá piltum í
íþróttum en öðrum piltum og það al-
varlegasta sé að neytendur verði svo
háðir neyslunni. Í því sambandi
nefnir hann að samkvæmt rann-
sóknum séu sænskir strákar með
tóbak í vörinni að meðaltali í 13-15
tíma á dag.
steinthor@mbl.is
Herferðin gegn munntób-
aksnotkun fær samkeppni
Nýtt neftóbak á íslenskum markaði truflar ekki ÁTVR
Morgunblaðið/Jim Smart
Tóbak Íslenska neftóbakið er vinsælt munntóbak en Landlæknisembættið segir vaxandi neyslu vandamál.