Morgunblaðið - 08.09.2011, Síða 25

Morgunblaðið - 08.09.2011, Síða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011 lifði fyrir. Hann var alltaf tilbú- inn, hvort sem það þurfti að grafa fyrir grunni, smíða eða bara hvað sem var. Að skjótast austur í bú- stað með nokkrar spýtur á toppn- um, það var ekkert mál. Við átt- um ógleymanlegar stundir saman við sumarbústaðabyggingar aust- ur í Árnesi. Helgi eftir helgi, sum- ar eftir sumar. Aldrei neitt mál. Hvað við gátum hlegið saman að skemmtilegum sögum hans og uppákomum og mest gerði hann grín að sjálfum sér. Við gátum líka grátið saman á erfiðum stundum. Hann stóð sem klettur með okkur Stínu í gegnum veik- indi Heklu dóttur okkar. Hann sagði kannski ekki margt, en var alltaf til staðar. Við urðum góðir vinir og ég á eftir að sjá eftir Stjána. Sérstak- lega finnst mér sárt að fá ekki að njóta elliáranna með honum, heil- um heilsu. Hann dó a.m.k. 20 ár- um of snemma. Stjáni minn. Ég þakka þér fyr- ir samferðina, þú kenndir mér meira en margur annar. Fórnfýsi þín og hjálpsemi, orðatiltækin þín og jákvæðni munu lifa með mér. Þinn vinur Hákon. Elsku tengdapabbi, það er ósanngjarnt að þú ekki nema 67 ára hafir þurft að kveðja þennan heim svona snemma. Sama hversu veikur þú varst þá var lífs- neistinn alltaf til staðar. Þú varst alltaf sannfærður um að þú myndir ná að berjast gegn sjúk- dómnum og gætir farið í útilegu í fellihýsinu, náð það góðum bata að þú kæmist aftur í vinnu. En því miður náði krabbameinið yfir- höndinni alltof snemma og við, fjölskyldan þín þurfum að horfa á eftir þér með miklum söknuði. En elsku Stjáni, minning þín lifir í hjörtum okkar og barna- börnin þín fá svo sannarlega að vita hvernig pabbi og afi þú varst. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa okkur og þegar búið var að tala við þig þá var vandamálinu redd- að. Takk fyrir allt, elsku Stjáni. Þín tengdadóttir, Gunnhildur. Elsku Stjáni, kynni okkar hóf- ust í takt við annað í þínu lífi, mér var tekið opnum örmum og var strax velkominn að borði í Fljóta- selinu. Mér leið sem ég væri full- gildur fjölskyldumeðlimur með undra skjótum hætti. En þegar frá leið og skilningur minn á þér jókst skildi ég að úr því þetta var val Fríðu hlaut það að vera hið besta mál enda stóð hann alltaf með sínum. Stjána leið að ég held aldrei betur en þegar búið var að stækka borðstofuborðið og við það sátu allir þeir sem honum þótti vænst um, fjölskyldan hans. Hann naut þess óendanlega að hafa fjölskylduna í kringum sig og hvað hann hafði gaman af því að segja sögur. Einstakur og skemmtilegur frásagnarstíll Stjána gleymist mér aldrei. Sög- urnar sem hann sagði af sinni æsku og lífshlaupi voru stundum eins og hverjar aðrar ýkjusörur. En Stjáni þurfti ekki á ýkjum að halda til að krydda sína sögu. Lengi býr að fyrstu gerð á klár- lega vel við um tengdapabba, honum lærðist ungum að hafa þyrfti fyrir hlutunum, að láta sér nægja og sætta sig við það sem til var. Enda voru þetta gildi sem einkenndu hann alla tíð. Ekki man ég til þess að hann hafi kvartað yfir hag sínum eða sagst sjá eftir einu eða öðru. Tengdapabbi hafði þann eigin- leika að lifa í núinu og vilja í ein- lægni það sem hann átti. Það er ekki ofsögum sagt að maður eins og ég hafði mjög gott af því að kynnast manni eins og Stjána. Öllu gat hann reddað, lagað og betrumbætt á sinn hátt. Fá voru þau verkefni eða að- stæður sem honum uxu í augum og ósjaldan heyrðist hann segja „ekki málið, við reddum þessu“. Svo var bara gengið í verkið. Allt- af gat maður leitað til Stjána enda vandfundinn jafn greiðvikinn, hjálpsamur og úrræðagóður mað- ur sem elskaði allt sitt og vildi í einlægni ávallt vera til staðar fyr- ir sitt fólk. Fyrir honum var ekki eftirsóknarverðast að eignast meira eða stærra heldur að njóta þeirra hluta og umfram allt sam- vista við fjölskyldu sína. Vand- fundinn var ríkari maður að eigin viti. Fáa þekki ég sem hafa þurft að hafa jafn mikið fyrir öllu sínu allt sitt líf og í ofanálag glímt við jafn mikil, erfið og sársaukafull veikindi og Stjáni. En að hann kvartaði eða aumkaðist yfir eigin veikindum eða verkjum? Aldeilis ekki, það var bara alls ekki hans stíll, kannski bölvaði hann í hljóði, hver veit. En hitt veit ég þó fyrir víst, Stjáni beit á jaxlinn, hann bar harm sinn í hljóði og hann barðist alltaf áfram af öllum mætti allt þar til yfir lauk. Elsku Stjáni, ég trúi því og treysti að þú hafir nú fengið bót meina þinna, að erfiðir tímar veikinda og vonbrigða séu að baki, að nú sértu á stað sem jafn góður maður og þú átt sannar- lega skilið að vera á. Elsku hjartans tengdapabbi, takk fyrir að gefa mér og treysta mér fyrir einni af þínum allra dýrmætustu eignum, henni Fríðu þinni. Þinn tengdasonur Gunnar. Elsku afi. Við vildum að þú værir enn hér. Þú varst góður maður og varst alltaf til staðar fyrir mann. Við söknum þín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Gabríel og Elvar Ingi. Ef við lítum um öxl til ljúfustu daga liðinnar ævi þá voru það stundir í vinahópi sem mesta gleði veittu (Niko.) Í dag kveðjum við góðan vin og félaga, Kristján Pálsson. Leiðir okkar lágu saman tvo síðustu ára- tugi og við viljum þakka forsjón- inni fyrir að hafa kynnst honum og átt með honum og Ernu konu hans yndislegar stundir. Það eru svo stór orð sem koma í hugann þegar við minnumst hans. Öðling- ur, góðmenni, þannig var Stjáni ætíð tilbúin, hjálpsamur og góð- viljaður. Við fórum með þeim hjónum í ferðir til útlanda og eiga þær stórt pláss í fjársjóði minn- inganna. Það var yndislegt að vera með þeim bæði þar og á heimilum okkar hér heima. Um margt var spjallað og miðlað af liðinni ævi. Í amstri daganna er dauðinn svo fjarlægur og ætíð erum við jafn óundirbúin afdráttarleysi hans. En öllu er afmörkuð stund, einnig lífi okkar. Þegar góður vin- ur fellur frá minnir það okkur á að enginn fær umflúið örlög sín. Elsku Erna mín, það var ekki von á öðru frá þér en þú stæðir við hlið hans allan þann tíma sem hann hefur verið veikur og til hinstu stundar. Það gerðir þú svo sannarlega. En allir dagar eiga sér kvöld og allar nætur morgna. Upp rís morgunsólin og minning- in um góðan mann lifir. Kæri vinur, við þökkum þér samfylgdina. Ástvinum þínum öllum ég sendi blóm fagurrautt úr brjósti mínu, legg það við sárin, læt tárin seytla í þess krónu, uns sorgin ljómar. (Jóhannes úr Kötlum.) Sólborg og Sigurberg. ✝ Susann Mar-iette Schumac- her, fyrrverandi flugfreyja, var fædd 17. ágúst 1942 í Brunns- parken í Helsinki. Hún lést 29. ágúst 2011. Faðir hennar var Harry Bertil Schumacher verk- fræðingur, móðir Lilly María Grön- ros Schumacher húsmóðir, bæði látin. Systkini Susann voru Fleur Christina María Houvo- nen Schumacher listmálari, f. 28.7. 1939, og Peter Stuart Schumahcer, f. 7.6. 1944, verk- fræðingur, bæði látin. Susann giftist Skúla Þor- valdssyni athafnamanni, 3.9. 1966, og áttu þau tvö börn sam- an, Þorvald Skúlason, f. 14.2. 1967, og Nínu Skúladóttur, f. 9.12. 1968, d. 13.2. 1999. Susann og Skúli skildu. Susann giftist ekki aftur, en var í sambúð um 9 ára skeið á níunda ára- tugnum með Pétri Aðalsteinssyni. Susann fluttist til Íslands 1962 er hún hóf störf sem flugfreyja hjá Loftleiðum, síðar Flugleiðum/ Icelandair og starfaði í háloft- unum allt til ársins 2006 er hún lét af störfum að eigin ósk, þá 65 ára að aldri. Síðustu árin dvaldi Susann langdvölum á Spáni sér til heilsubótar og ánægju. Útför Susann fer fram frá Fríkirkjunni í dag, 8. september 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Ég fann þig, elsku amma mín, og finn enn fyrir þér innst inni. Hvernig er hægt að þakka, það sem verður aldrei nægjanlega þakkað. Hvers vegna að kveðja, þann sem aldrei fer. Við grátum af sorg og söknuði en í rauninni ertu alltaf hér. Höndin sem leiddi mig í æsku mun gæta mín áfram minn veg. Ég veit þó að víddin sé önnur er nærveran nálægt mér. Og sólin hún lýsir lífið eins og sólin sem lýsti frá þér. Þegar að stjörnurnar blika á himnum finn ég bænirnar,sem þú baðst fyrir mér. Þegar morgunbirtan kyssir daginn, finn ég kossana líka frá þér. Þegar æskan spyr mig ráða, man ég orðin sem þú sagðir mér. Vegna alls þessa þerra ég tárin því í hjarta mínu finn ég það, að Guð hann þig amma mín geymir á alheimsins besta stað. Ótti minn er því enginn er ég geng áfram lífsins leið. Því með nestið sem amma mín gaf mér, veit ég að gatan hún verður greið. Og þegar sú stundin hún líður að verki mínu er lokið hér. Þá veit ég að amma mín bíður og með Guði tekur við mér. (SiggaDúa2.) Ég bið að heilsa Nínu og Perlu. Og hvíldu í friði, elsku amma mín. Þín ömmustelpa María Bjarnadóttir. Elsku Susi mín. Ég sit hérna með tárin í augunum og hugsa til þín. Upp í hugann koma allar okkar frábæru samverustundir. Ég vissi að hverju stefndi hjá þér í veikindum þínum en það er allt- af jafnsárt að fá fréttirnar. Ég kynntist þér ekki fyrr en eftir að Nína dó. Það tókst með okkur vinátta sem var einstök og er ég þakklát fyrir að hafa verið svo heppin að hafa fengið að kynnast þér. Ég er svo þakklát þér hvað þú hjálpaðir mér og börnunum mín- um þegar við áttum í erfiðleikum í okkar lífi. Elsku Susi mín, takk fyrir að opna augu mín og hjálpa mér að eignast nýtt líf sem varð mér og börnunum mínum ein- göngu til góðs í einu og öllu. Við fórum í nokkrar frábærar ferðir saman, ein áramótin var ég með þér í Baltimore, það var skemmtilegt að upplifa að vera í öðru landi á svona tímamótum. Haustið 2006 fórum við til Spánar að leita að húsi, vorum í tvær ógleymanlegar vikur í húsinu þeirra Gullýjar og Jóns. Svo fundum við hús og þá hófst nú undirbúningurinn við að pakka og flytja. Síðan fórum við út að taka á móti dótinu í apríl og þar hélt ég upp á einn afmælisdaginn minn. Þessi ferð var algjört kraftaverk hvað allt gekk upp hjá okkur, dótið kom á réttum tíma sem er mjög sjaldgæft á Spáni en svona var bara allt saman í kring- um þetta hjá okkur saman. Síðan fóruð þið Perla út í maí. Ég kom nokkrum sinnum til þín og alltaf jafngaman að koma og vera hjá þér. Síðast kom ég 2009, með mér voru börnin mín og unnusti og héldum við upp á 50 ára afmælið mitt með þér sem var yndislegur tími. Þú komst síðastliðið haust til okkar og þá orðin veik, varst hér í smátíma en fórst aftur út. Síðan um jólin komstu og varst þá hjá mér og fjölskyldu minni og einnig Þorvaldur. Þetta voru notaleg jól og yljar það mér núna um hjarta- rætur að hafa fengið að hafa þig og Þorvald hjá okkur. Elsku Susi mín, þú varst ein- stök persóna í alla staði. Þú lést hlutina í ljós og það fór ekki á milli mála ef þér mislíkaði eitt- hvað eða þú kunnir ekki við ein- hvern. Þú þurftir að ganga í gegnum mikla sorg í þínu lífi sem markaði líf þitt sem eðlilegt var. Ég vil þakka þér fyrir allar okkar frábæru samverustundir og alla þá ómetanlegu hjálp sem þú veittir mér og börnunum mínum. Elsku Þorvaldur minn, megi góður Guð gefa þér styrk á þess- ari sorgarstundu. Elsku Susi mín, takk fyrir allt. Þú kemur alltaf til með að eiga stórt pláss í mínu hjarta. Þín vinkona Ingunn. Það er tómlegt, engin elsku Susie til að heimsækja eða hringja í. Við kynntust í gegnum börnin mín Maríu og Steinar þegar þau fóru að elta konu í hverfinu sem átti fallegan hund sem hét Perla, María bað um að fá að passa hundinn en þú sagði að hún væri of lítil, og hún mætti koma seinna, kom þá sú stutta daginn eftir og spurði aftur hvort hún mætti passa hundinn en svarið var að sjálfsögðu það sama. María og Steinar fóru síðan að venja komur sínar til þín og Perlu og leið sérstaklega vel, það var fyrst og fremst talað við þau sem jafningja, enda var aldur afstæð- ur í þínum huga þú gast verið vin- ur allra. Þú barst alltaf hag þeirra fyrir brjósti og var gagnkvæm virðing og væntumþykja ykkar á milli, enda spurði María hvort hún mætti kalla þig ömmu, ég sagði henni að spyrja þig og svar- ið var að sjálfsögðu já. Þau voru heppin að eiga ömmu sem gat talað sama tungumál, ráðlagt og skilið en samt leyft þeim að taka endanlega ákvörð- un. Stundum fengu þau að líka gista hjá þér og þá gekkst þú úr rúmi fyrir krakkana og Perlu. Síðar var Perla oft hjá okkur þegar þú varst í vinnunni og þótti okkur afar vænt um þessa elsku. Þér þótti gott að kíkja í eld- húshornið til okkar með Perlu þína og þar var rætt um ýmsa hluti, það var sama hvar var bor- ið niður í þeim samræðum, alltaf hafðir þú áhuga og eitthvað til málanna að leggja, þú lést þig flest mál varða, þá var gaman. Heimili þitt á Spáni var fallegt og gaman að koma til þín, þú tókst vel á móti okkur, takk fyrir það. Gott var að eiga þig sem vin, Susie mín, alveg sama hvort um gleði eða sorg var að ræða, alltaf hlustaðir þú og gafst góð ráð. Aldrei heyrði ég þig kvarta í veikindum þínum, þegar ég spurði þig hvernig þú hefðir það var svarið: gott. Við vorum heppinn að fá að kynnast þér, þó að okkur hefði langað til að hafa þig lengur hjá okkur, en í lífinu fær maður ekki allt sem mann langar til og meg- um við líka vera þakklát fyrir þann tíma sem þú varst hjá okk- ur. Ég trúi því að nú sért þú kom- in til Nínu þinnar og Perlu prins- essu og þar ríki fagnaðarfundir. Þorvaldur minn, þinn missir er mikill, þú áttir einstaka mömmu, félaga og vin, megi góður Guð styrkja þig í sorginni. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn.) Ég kveð þig með söknuði en þakklæti fyrir allt. elsku Susie mín, megi góður Guð geyma þig. Þín vinkona Jónína Blöndal. Susann var flugfreyja og skíðakona. Í báðum tilfellum var léttleiki og svif aðaleinkenni hennar. Susann var ótrúlega lífs- glöð og skemmtileg vinkona. Fjöllin í kringum Omeshorn og Rüfikopf bergmáluðu hlátri hennar þegar hún brunaði niður brekkurnar. Hennar verður sárt saknað í Lech am Arlberg. Ég votta Þorvaldi syni hennar og fjölskyldu mína dýpstu sam- úð. Úlrik Arthúrsson, skíðakennari í Lech. Hún kom inn í líf okkar fyrir tæpum tveimur áratugum – um það leyti sem elsta dóttir okkar fæddist. Elegant er orðið sem lýsti Susann Mariette Schumac- her best. Sama við hvaða aðstæð- ur; úti að labba með hundinn í rigningu, á stofugólfinu í Barbie- leik, ristað brauð og te í eldhús- inu – Susie var alltaf elegant. Su- sie tók að sér hundinn okkar til að létta á yfirhlöðnu heimilishaldi fjölskyldunnar, sem þá taldist ung, og fyrr en varði var Perla líka orðin elegant. Susie hafði í sér að gera umhverfi sitt fallegt og krydda á þann hátt að hvers- dagslegir hlutir voru ekki lengur hversdagslegir í kringum hana. Á sama hátt breyttist Perla úr venjulegum springer spaniel í ilmandi fyrirmyndar hefðarhund með gullskreytta hálsól í höndum Susiar. Þrátt fyrir hamingjusama og innihaldsríka ævi fór Susie ekki varhluta af sorginni. Missir einkadóttur hennar á besta aldri var henni afar þungbær. Líklegt þykir mér að foreldrar jafni sig aldrei á slíku áfalli. Þrátt fyrir stuðning og elsku Þorvaldar son- ar hennar var ör á sálinni sem aldrei greri til fulls. Samskipti okkar minnkuðu þegar við flutt- um á erlenda grund til námsdval- ar, en við fylgdumst með úr fjar- lægð. Þegar heim var snúið var Susie flutt til Spánar – ásamt Perlu. Þegar meinið greindist var Susie tilbúin til fundar við æðri heimkynni og Nínu sína. Við minnumst yndislegrar vinkonu með hlýju og þakklæti og vottum Þorvaldi alla okkar samúð. Nú bíður okkar sól og sumar, sandar lifna, mórinn brumar. Og þegar haustar með unga höldum héðan burt frá vetri köldum En næsta vor þá vitjum þín, – vertu blessuð vina mín (S.G.) Kristín, Bjarni og börn. Það er mikil gæfa að eignast góða vinnufélaga. Ég minnist Susann Schumacher, Súsý, með sorg í hjarta en líka með gleði fyr- ir að hafa starfað með henni í nær 30 ár. Hún var fáguð heimskona, smágerð, grönn, falleg, tilfinn- ingarík og einstaklega hláturmild með skemmtilega kímnigáfu. Ég sé fyrir mér andlit hennar upp- ljómað með glettnina í augunum og heyri í huga mér hlátur hennar og finn til þakklætis fyrir að hafa átt samleið með henni þessi ár. Súsý var góð flugfreyja, henni var annt um að farþegunum liði vel og það var gott að vinna með henni. Allt lék í höndunum á henni, hún var snögg í verkum og góður stjórnandi um borð. Í löngum stoppum erlendis lentum við margoft saman og þá var reglulega gaman hjá okkur. Hún þekkti borgirnar mjög vel sem við flugum til og stakk upp á nýj- um stöðum til þess að skoða og nýjum veitingahúsum til þess að borða á. Minnisstæð eru jól sem við eyddum saman í Bandaríkj- unum. Hún var fyrsta freyja í þessari ferð og hafði skipulagt allt svo vel, þannig að við fundum jólin í hjarta okkar. Hún var greiðvikin, gjafmild á vinskap sinn og sýndi alltaf þakklæti sitt fyrir greiða sem henni var gerð- ur, hversu smár sem hann var. Hún var mjög stolt af börnum sínum, sem báru henni góðan vitnisburð, svo fáguð og kurteis. Harmur hennar var mikill þegar Nína dóttir hennar lést. Ég horfi á umslagið með bréfi sem ég skrifaði til hennar þá, fannst orð svo lítilmegnug í sorginni svo að ég sendi henni það ekki. Þó nokkrum árum seinna, þegar ég hitti hana og sagði henni að ég hefði fundið, í flutningum, sam- úðarbréfið sem ég hafði skrifað henni, en ekki sent, sagðist hún endilega vilja fá það og ætlaði að koma í heimsókn og sækja það, en aldrei varð af því. Eftir að ég hætti í fluginu sáumst við sjaldn- ar, en töluðum saman í síma endr- um og eins, en síðustu árin hafa verið henni erfið. Ég er þakklát fyrir að hafa átt samleið með Susann Schumac- her, minning hennar mun lifa um ókomin ár. Þorvaldi og öðrum að- standendum hennar og vinum votta ég mína dýpstu samúð. Anna Bjarna. Í dag kveðjum við fyrrverandi vinnufélaga okkar Susann M. Schumacher, eða Súsí eins og hún var kölluð. Mínar minningar tengdar henni eru ljúfar, hún var alltaf glöð, alltaf með lausnir á málum og það er gott að hafa slíkar fyr- irmyndir í starfi flugfreyja og -þjóna. Verksvit og útsjónarsemi og ekki síst mikill húmor voru hennar einkenni sem vinnu- félaga. Susann var virk þegar kom að félagsmálum. 1995 stóðum við saman, öxl í öxl í rétt um 12 klst. úti á flugvelli innanlands þar sem Flugfreyjufélag Íslands stóð í verkfallsaðgerðum. Hún hafði á orði að gallinn sem ég var í væri ekki „smart“; hennar var að sjálf- sögðu fagurbleikur og með áföst- um miðum með nöfnum erlendra skíðastaða sem ég kann ekki að nefna. Þrátt fyrir þennan aug- ljósa mun á smekkvísi stóðum við vaktina saman með sama mark- mið að leiðarljósi. Syni Susann, Þorvaldi, votta ég mína dýpstu samúð, Fyrir hönd FFÍ Sigrún Jónsdóttir formaður FFÍ. Susann Mariette Schumacher

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.