Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 18
HUGMYNDIR í STEINSTEYPU
RÆTT VIÐ ÍVAR VALGARÐSSON
ívar Valgarðsson hefur á undan-
förnum tíu árum haldiö þó nokkrar
einkasýningar, þær helstu í Ásmund-
arsal 1980, Nýlistasafninu 1983 og
tvívegis að Kjarvalsstöðum 1984 og
1987, einnig hefur hann tekiö þátt í
samsýningum hér á landi og erlendis.
Einkum hafa steinsteypuverk ívars
vakið athygli. Þessar sýningar hafa
ekki farið hátt enda list Ivars hljóðlát.
Það var því kominn tími til að fara að
ræða við ívar um feril hans og list.
Viömælendur hans voru þeir Eggert
Pétursson og Ingólfur Amarsson.
Af hverju steinsteypa?
Hún hentar mér mjög vel. Eins og hús
eru byggð þá smíðar maður mót, hellir
í þaö, slær síðan utan af og verkið er
tilbúið. Efniðsem slíkt er líka heillandi.
Aö sumu leyti er erfitt að glíma við
steinsteypuna, hún er hrá. Þannig að
formið þarf aö vera ansi sterkt til þess
að hún verði aðlaðandi. Það er líka
eitthvað í áferðinni. Ég er ekki enn
laus viðhugmyndiraf þvítagisem ég
vinn í steinsteypu. Það er eitthvað við
það að steinsteypa hugmynd.
Landslag?
Það eru frekar eldri verkin sem hafa
beint með landslag að gera. Viðhorfin
til myndefnanna eru mikið að breytast
hjá mér núna. En er ekki allt landlag?
/ gömlum teikningum og skissum
staösetur þú oft skúlptúra í landslagi.
Þjónar sýningarrýmió svipuöum
tilgangi og landslagsumgjöró?
Nei, nei, kannski er þetta í einhverjum
tengslum við arkítektúr. Eru ekki hús
og allt okkar mannlega umhverfi í
landslagi, það má vera að þetta sé
eitthvað þess háttar.
Þegar þú hófst þinn feril þá vannst þú
einhvers konar „Land-art“ verk,
gönguverk og náttúmupplifun meöal
annars.
Þetta var allt formraent. Þá heillaði mig
meira en annað að setja verk mín í
beint samband við landslag. Eins-
konar geometrisk náttúruupplifun.
Þú notaóir þá Ijósmyndir og varst aö
fást skilgreiningar á kerfisbundinn og
hlutbundinn hátt í verkum eins og t.d.
„Milli fjalls og fjöru“og„Flæöarmál".
Ég vil vísa til þess sem ég sagði áðan:
þetta voru svona concept, minimal
formpælingar.
En núna í dag sýnirþú yfirleitt saman
verk á gólfi og veggjum. Líturþú þá á
sýningarnar sem einhvers konar
„innsetningu" (installation) ?
Ég hef alltaf gengiöútfrá rýminu þegar
ég hef byrjað að velta fyrir mér sýn-
ingu, bæði lóörétt og lárétt. Ég hef
alltaf rýmið í huga. Ég hef alltaf unnið
svona og vinn svona enn þann dag í
dag. Það er kannski sérviska í mér, en
það getur verið sentímetra spursmál
hvernig mynd hangir á vegg gagnvart
verki sem er á gólfi.
Hefuröu ákveóna tilfinningu í huga
þegar þú vinnur sýningu eöa eru
verkin fullkomlega sjálfstæó?
Ég vil líta á hvert verk sem sjálfstætt
verk, en mér finnst afskaplega fallegt
að sjá þau saman, þau byggja hvort
annað upp og tengjast eins og hlutirnir
ættu að gera í umhverfinu. Vissulega
breytast tilfinningar manns frá einum
tíma til annars. Þegar sýningu er lokið
erégtæmdur. Enþegarégbyrjaaftur
upp á nýtt, hef ég alltaf óafvitandi
hliösjón af því sem ég hef gert áður.
Oft er það ekki fyrr en ég er búinn að
hengja upp sýninguna að ég sé um
hvað hún fjallar. Rétt eins og einhver
annar hafi veriö að verki. Stundum
segir mér einhver sína skoðun á því
og það stenst kannski. En í hverri
sýningu ríkir mjög ákveðin tilfinning
finnst mér.
Sum verkin eru á veggjum, en önnur
á gólfi, þú ert líka meö málverk. Hafa
málverkin þróast án tengsla vió
skúlptúrana á undanförnum árum?
Sjónrænt hefur bilið milli vegg-
verkanna og gólfverkanna breikkað.
En mér finnst vera tengsl þama á milli
eöa spenna. Staðsetningin skapar
jafnvel óþægilega spennu milli frí-
standandi skúlptúrsins og veggverk-
anna.
Fyrstu málverkin sem þú sýndir í
Nýlistasafninu '83 voru í beinum
tengslum við landslag, en nú hefur
málverkió tekið aöra stefnu hjá þér.
Ég vil gjarnan hafa fyrirvara á að tala J
um málverk í heföbundnum skilningi
heldur veggverk. Mér finnst ég hafa
færst frá sveitinni inní stofu. Ég veit
ekki af hverju. Þetta kom í Ijós á
síðustu sýningu. Allt í einu var komið
píanó inní.
Og eitt verkanna sem minnti á glugga
var unnið meó bílalakki.
Já það var sprautaö með Volks- /
wagenlakki á stálplötu. Það er óhætt
16