Teningur - 01.05.1988, Page 24

Teningur - 01.05.1988, Page 24
MAGNÚZ GEZZON MORÐ ÁN TILEFNIS Þegar Jakob hafði legið andvökuna í þrjá sólarhringa og bylt sér, skreið hann fram í eldhús og náði í saxið, laumaðist svo inn í svefnherbergið og lét hnífinn vaða ótt og títt. Blindur og trylltur hjakkaði hann og hjó; glotti öskraði og hló uns á hann lagðist mók og þungur svefn. Stundum hrökk hann upp, blautur af svita og heitur eða skjálfandi og kaldur. Þannig leið tíminn í daunillri og loftlausri íbúðinni. Þykk gluggatjöldin voru dregin fyrir og daufir Ijósgeislar sem náðu aö skína inn, mögnuðu myndirnar á veggjun- um. Allt umhverfi hans var atað saur, hlandi og blóði. Annað slagið teygaði hann vatn úr flösku, tók inn lyf og bjó einhversstaöar í fótum sínum og höndum en höfuöiö á borðinu talaði án afláts inn í vegginn sem hvíslar sjálfs- morði að fjarlægu kvöldi, djúpt í vitundinni þar sem enginn leikur tveimur skjöldum. Konan á miðri myndinni, næst glugganum brosir... Fjólublá lína veltir mynt yfir þrí- hyrninginn... Stelpan... Stelpan fyrir löngu... Hún henti smásteinum á eitt leiðið...Ég kallaði til hennar og spurði hvers vegna hún gerði þetta, en fékk aldrei svar; aðeins gelgjulegan hlátur þegar hún hleypti steinunum niður úr svuntunni og valhoppaði fyrir hús- hornið. Anna? Já. En styttan? Frá hægri til vinstri eða þvert um geð niöur götuna. Hvað? Sporbaugur augnanna reykir hugs- anir mínar í stólnum og hún hvarf hlæjandi á bak við húshornið og sönglaði eitthvað...eitthvað um... Rautt, blátt, grænt, gult, segireinhver. Farðu, láttu mig í friöi. Hann glottir þegar hann gengur inn í þetta nýja hlutverk. Svei, hugsar hún fremur en segir. Það hallar stöðugt undan fæti... fæti... undan fæti... svo langt sem augað eygir. Hafðu þetta helvítis djöfulsins andskotans. Anna? Já. Hvar ert þú, hvíslar hann. Hérna ástin mín. Á myndinni við hliðina á þér... í brúðarskartinu... Ég er tilbúin... Presturinn fer að koma og gestirnir eru mættir... Þarna er altariö... Svo göngum við upp að því... Nú getum við lagt af stað... Nei nei... Þetta er rangt... Þú átt að bíða mín við altariö... Anna, vilt þú ganga að eiga manninn, sem stendur þér við hliö? Já. Jakob vilt þú ganga að eiga...? Já. Dragið þá hringana hvort á annars hönd og þau gripu vopnin og hófu þau á loft áður en nokkur fékk að gert lágu þau á gólfinu og hún hljóp hlæjandi fyrir hornið og hann á eftir. Velkomin inn í þennan bláa flöt segir einhver og hleypur fagnandi á móti þeim inn í hugsunina. Klerkarnir tryllast og malda í móinn, en geta ekkert gert því allt er afstaðið og þeir strjúka andlit grátandi barns- ins þurrum köldum fingrum. Láttu riffilinn vera. Nei, taktu hann og skjóttu sæla dauðavímuna. Tíminn líður inn í sköp brosandi konu stendur í reglum hótelsins. Gullin Ijóskeilan reykir síðustu sígarettuna og þörfin er enn söm og jöfn. Hausinn glottir, því allt er afstaðiö í leik hinnar fullkomnu sjálfsstjórnar. Seinna reið skotið af og þegar þeir knúðu dyra var hann horfinn... að eilífu horfinn. 22

x

Teningur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.