Teningur - 01.05.1988, Síða 42
ÁSTRÁÐUR EYSTEINSSON
Á NÚTÍMASLÓÐUM INDÍÁNA: ÁSTARLYF LOUISE ERDRICH
MINNIHLUTAMENNING
Pegar rætt er viö Bandaríkjamenn um
minnihlutahópa vestan hafs, halda
þeir því gjarnan fram að bandaríska
þjóðin sé ekki annað en fjöldi minni-
hlutahópa, víðsvegar að úr heimi.
Sumir þeirra stæra sig jafnvel af því
að Bandaríkin séu ein allsherjar
deigla eða „bræðslupottur" þar sem
öllum þjóðbrotum og kynþáttum sé
hrært saman í litríka heild.
En tveir þessara hópa hafa sérstöðu,
sem markast að nokkru af því að í
upphafi komu þeir ekki sem frjálsir
innflytjendur til þessa lands. Þá á ég
annars vegar viö blökkumenn sem
fluttir voru nauðugirtil þrælkunarvinnu
á ökrum hvíta mannsins, en hins
vegar við indíána sem voru fyrir í
landinu og höfðu búið þar frá aldaööli.
Þessir tveir hópar eiga það jafnframt
sameiginlegt að vera sem lifandi tákn
þess félagslega og siðferðilega
óréttlætis sem valdalitlir minnihluta-
hópar búa gjarnan við. Það eru raunar
frekar blökkumenn sem hafa verið í
sviðsljósinu sem minnihlutahópur er
býr við óréttlæti - þegar rætt er um
kynþáttamisrétti á Vesturlöndum
beinast sjónir einmitt gjarnan að
bandarískum blökkumönnum, upp-
runa þeirra og baráttu fyrir félagslegu
jafnrétti. Indíánar hafa hins vegar oft
gleymst, ekki síst í þeirra eigin landi.
Ef til vill er hljótt um þá þar vegna
þess að þeir eru sem falin samviska
bandarísku þjóðarinnar, eöa sam-
viskubit sem óþægilegt er að búa við
og því betra að gleyma, að minnsta
kosti uns nógu langt er um liöið. Það
er innan við öld síðan bandaríski
herinn stundaði fjöldamorð á indí-
ánum. Hin fræga slátrun við Wounded
Knee átti sér til dæmis stað í árslok
1890. Fram á okkar daga hafa
stjórnvöld verið að svíkja hvern þann
samning um griðastað sem indíánar
féllust fyrst á af miklu þolgæði og sátt-
fýsi og hafa síöan samþykkt nauðugir
viljugir. Þessar staðreyndir geta enn
komið viö kaunin á fólki; þær eru ekki
komnar í þá sögulegu fjarlægð sem
viö höfum til að mynda á hrun
índíánasamfélaga Suður-Ameríku.
Indíanar eru því enn lifandi tákn þess
að uppgangur og uppbygging hins
bandaríska samfélags hefur verið á
kostnað annars mannfélags sem var
hartnær útrýmt á síðustu öld og rödd
þess kæfð. En hefur hún verið kæfð?
Þótt þjóö eða kynþáttur megi þola þá
niðurlægingu sem iðulega felst í
hlutskipti minnihlutahópa þar sem
kynþáttamisrétti ríkir, er ekki sjálfgefið
að búið sé að ræna þá tjáningar-
hæfninni - jafnvel þótt þeir þurfi að tjá
sig á máli sigurvegarans. Sjálfstætt
menningarframtak minnihlutahópa er
tákn um reisn þeirra og andlegt frelsi,
um það aö þeir hafi ekki sýnt þá
undirgefni sem felst í algerri þögn.
Við höfum næg dæmi þess að banda-
rískir blökkumenn hafa ekki sætt sig
við þögnina; benda má á frjóa tónlist
þeirra, en nú á síöustu tímum kannski
enn frekar á skáldskap þeirra, því ekki
veröur lengur framhjá því litið að
fjölmargir blökkumenn eru meðal
fremstu rithöfunda Norður-Ameríku.
En hvað með bókmenntir indíána?
Víst eru til verk um fortíð og sögu
indíána, þótt flest séu þau skrifuð af
hvítum mönnum. Sum þessara verka
hafa bókmenntalegt gildi, til dæmis
bók Dee Brown, Bury My Heart at
Wounded Knee, eða Heygóu mitt
hjarta vió Undaó hné, eins og hún
heitir í íslenskri þýðingu Magnúsar
Rafnssonar sem út kom fyrir nokkrum
árum. Eitt merkilegasta verkið af
þessu tagi, Black Eik Speaks, eða
Svarti Elgurtalar, er skráð eftirfrásögn J
indíána sem bjó yfir fagurri hugsýn
um framtíð kynþáttar síns, en þurfti að
horfa upp á og lifa hrun og niður-
lægingu índíánaþjóðanna. Þetta verk
er skráð 1931 og þá er Svarti Elgur
sannfærður um endalok þeirrar
menningar sem sérkenndi indíána.
Draumur þeirra dó við Undaö hné;
hringurinn, megintákn í andlegu lífi
indíána, hefur veriö rofinn. Hvíti
maðurinn hefur komið frumbyggj-
unum fyrir í ferköntuðum híbýlum á
svokölluðum „verndarsvæðum".
HÆTTA AÐ VERA INDÍÁNI?
En hvað með líf indíána í dag? Er
einhver grundvöllur fyrir listrænni
tjáningu þeirra á núverandi ástandi
sínu? Þeir sem ferðast um indíána-
byggðir Norður-Ameríku kunna að
telja að svo sé ekki: gestsaugun sjá ef
til vill fyrst og fremst eymd og von-
leysi, sjá fátækt sem er þó ekki
örbirgð, því samviska ríkisins leyfir
ekki að frumbyggjar landsins svelti í
40