Teningur - 01.05.1988, Page 46
PETUR GUNNARSSON
PETER HANDKE
Um Peter Handke hefur verió sagt að
hann sé jafnvígur á djúkbox og grísku
tragedíurnar. Hann er blendinn í
menningunni eins og tíðarandinn:
Virgill, Grateful Dead, Sófokles,
Raymond Chandler, Hómer, Róbert
Mitchum, Cézanne... allir gætu þeir
hist í bók eftir Handke.
Frá því að hann hóf höfundarferil sinn
árið 1966, þá 24 ára gamall, hefur
varla lióið svo ár að ekki bærist frá
honum nýtt verk, stundum fleiri en eitt.
Sköpunarþróttur hans er með ein-
dæmum og hann fer hamförum á milli
listforma: saga, Ijóð, leikrit, kvik-
mynd... Framlag hans til nútíma-
bókmennta er í senn frumlegt og gætt
einhverju óræóu aödráttarafli. Stílgáfa
hans er mögnuð og sýn hans í senn
fersk og ófresk.
Þegar höfundarverk Handke er skoð-
að blasir fljótlega við hve utanflokka
hann stendur í bókmenntum samtím-
ans. í upphafi ferils síns hundsar
hann alveg hina pólitísku kröfu - þvert
ofan í kokkabækur tímans - og þó
skrifar hann jafn gagnróttækt verk og
leikritió Kaspar (1967) þar sem öll
félagsmótun einstaklingsins er undir.
En þegar kappræðuverkin fylltu út í
sjóndeildarhringinn, lagði hann sig
eftir efni sem áreióanlega hefur
jafngilt dauðri rottu: sínu eigin sjálfi.
í bókmenntum og einkalífi birtist hann
sem einfari og uppreisnarmaóur.
Eitt einkenni á Handke er næmi eða
öllu heldur ofnæmi fyrir staðalmerk-
ingunni: klisjunni. Þessar vanaviðjar
sem líf og tilfinningar eru hnepptar í
og hlaöast á alla skynjun eins og
hrúöurkarlar á neöansjávarlínu skips.
Handke geldur varhuga við ofurþunga
oröanna - hve þau eru hlaóin til-
finningum, hugmyndafræði og bara
allskonar aðskotadrasli líkt og lífvera
yfirkomin af sníkjudýrum. Til dæmis
gæti hann varla notað orð á borð við
„HitleF til aö tákna fyrirbæriö. Búið að
yfirhlaða það svo af merkingu og
tilfinningum að það er löngu orðið
merkingarlaust og sokkið í klisju-
djúpiö. í Barnasögu eru persónurnar
aldrei nefndar með nöfnum heldur
alltaf: „maðurinn", „konan“, „barniö“og
borgin sem þau búa í er ekki nefnd á
nafn eða landið - heldur „útlenda
borgin", „útlandiö" og málið sem menn
tala er „erlenda tungan". París, Frakk-
land, franska hafa of uppáþrengjandi
merkingu til að Handke treysti sér til
að bera hana fram í þessu samhengi.
Sköpun lesandans vængstýfð ef hann
fær slíka fjöldaframleiðslu upp í hend-
urnar og meiri líkindi til að hann
nálgist fyrirbærin ef hann barnar
söguna sjálfur.
Þessi afstaða Handke til málsins sver
sig í ætt við módernismann og ný-
rómaninn. Skáldskapurinn skal jafnan
vera frumraun, áreynsla til skynjunar
sem á sinn hátt leitast við að ógilda
alla fyrri skoðunarhætti og reynir að
koma upp um allt hið ágripskennda,
stirðnaða og dauöa sem þeir bjuggu
yfir. Handke heldurá lofti þessari ótrú-
legu kröfu: að byrja alltaf upp á nýtt.
En á sama tíma leitar hann mjög
fanga í klassíkinni: Hómer, Virgill,
Goethe - svo helstu kennileitin séu
nefnd. Hjá þessum höfundum finnur
hann viðmiðanir og jafnvel útgangs-
punkta heilla verka. Handke sameinar
lipurlega gerþekkingu hefðarinnar og
nýbreytni formbyltingarmannsins,
hann er bastarður klassíkur og
formbyltingar.
í stefnuskrárgrein frá árinu 1967: „Ég
er íbúi fílabeinsturnsins" og birtist
ellefu árum síðar í Svartáhvítu (1. tbl.
1978), getur að líta einarða markmiðs-
lýsingu:
„Ég á mér engin uppáhalds yrkisefni,
ég hef einungis eitt þema: að gera
mér Ijósa, Ijósari grein fyrir sjálfum
mér, að þekkja sjálfan mig eða þekkja
ekki sjálfan mig, að læra hvað ég geri
rangt, hvað ég hugsa rangt, hvað ég
hugsa umhugsunarlaust, hvað ég
segi umhugsunarlaust, hvað ég segi
ósjálfrátt, einnig hvað aðrir gera,
hugsa, segja umhugsunarlaust: að
verða vakandi og vekja aðra: gera mig
og aðra næmari og nákvæmari í lífinu,
til þess að auövelda mér samskipti við
fólk og stuðla að betri skilningi milli
mín og annarra."
Segja má að Handke hafi efnt þessi
fyrirheit prýðilega, verk hans hafa
orðið æ nákomnari og er fjórlógían
Hægfara heimför(-\ 979-1981) til vitnis
um það (en úr henni hefur Barnasaga
birst á íslensku). Enn fremur þrjú
bindi af dagbókum: Heimsins þungi
(1977), Frásaga blýantsins (1982) og
Endurtekningin (1983).
Um eiginlegar skáldsögur Handke má
segja að þær eru með vissum hætti
44