Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 47

Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 47
þroskasögur. Aðalpersónan tekur að sjá líf sitt í nýju Ijósi eftir að hafa gengið í gegn um þolraun. Líf sögu- hetjunnar eins og endurskapast. Að vísu er ísskápurinn enn á sínum stað og eldavélin og umferðin heldur áfram að streyma eftir æðum borgarinnar . eins og áður - og þó ekki eins - veru- leikinn berst nú af einskonar ofnæmi og mannleg samskipti missa það „sjálfsagða" yfirbragð sem er forsenda hversdagslífsins og þess í stað er komiö ofurnæmi fyrir hinu staðlaða, dauða og klisjukennda í samskiptum manna og ógleði sem er ábyggilega ekki fjarskyldur ættingi Velgju Sartres. Rauður þráður dagbókanna er aftur á móti köllun höfundarins til að endur- skapa veröldina aftur. Það verður nán- ast sáluhjálparatriði að allt sem kemur fyrir þurfi að endurtakast með penna höfundar og öðlast við það nýtt gildi. I dagbókarfærslum sínum rær Handke á miö þar sem fáum hefði dottið í hug að fá mætti bein úr sjó. “ Hann leggur net sín á grunnsævi hins al-hversdagslegasta og reynir að höndla það sem smýgur iöulega á milli orðanna eða er af einhverjum ástæð- um of smátt til að þótt hafi taka því að koma oröum að því, of fíngert til að koma auga á það. Heilu bækurnar er hann með sjálf sitt undir og viðbrögð þess við sjálfu sér og áreiti umheims- ins. Blaðsetur viðmót sitt, framkomu, hugsanir og gerðir. Ferðast inn í afkima hugar og heims, hreiðrar um sig á milli skinns og hörunds, leitar aö því sem var „stoliö úr mér“, bíður eftir Því sem er „alveg að koma“. ítrasta sjálfstjáning sem leitast við að rífa sig 'ausa frá þyngdarsviði eigin sjálfs og ferðast laust úr viðjum um ómælis- lendur ópersónuleikans. En hættir Handke þá ekki til að lokast 'nn í fílabeinsturni einkamála og rjúfa samband við lesendur? Jú - og reyndar fer hann ekki dult með mót- Þróa sinn að „koma til móts“ við les- andann, sbr. tileinkunn „Heimsins þunga": „Handa þeim sem kemur þetta vió" En líka hér er Handke tvöfaldur í roð- inu því á öörum stað segir hann: „Mér er alltaf efst í huga að ná til fólks. Hvernig get ég fengið afgreiðslustelpu í búð til að lesa bókina sem ég er að skrifa? Ég freista þess aö finna upp- byggingu sem gæti snert þann sem er ekki vanur að lesa. Búa svo um hnúta að ef hann bítur á fyrstu málsgreinina séu líkur á að hann haldi lestrinum áfram.“ Bókin á að smita frá sér líkamlegri vel- líðan og lesturinn breytast í næringu, saðningu. VIÐTAL VIÐ PETER HANDKE Það sem hér fer á eftir eru glefsur úr spjalli Peter Handke viö Didier Goldschmidt og Brigitte Salino sem birtist árið 1983 í franska bókmennta- tímaritinu Les Nouvelles Littéraires. Eftir aó hafa búiö lengi í Frakklandi ertu nú sestur aö í þínu heimalandi. Og síöan þú snerir aftur til Austurríkis er ekki laust vió aö greina megi nýja strauma íþví sem þú skrífar: stíllinn er oröinn sáttfúsari og líkt og allt sé oröiö auöveldara, þaö gætir ekki lengur sama sársauka og í fyrrí skrífum. Er útlegöin kannski á enda? Útlegö kannski full hátíðlegt orð. En það er rétt aö síöan ég sneri aftur, hafa margir legið mér á hálsi fyrir að skálda upp full hraðsoðið samræmi. En því er alls ekki að heilsa. Þetta samræmi er afrakstur af mikilli formglímu, stílorrustu. Það er rétt að í því sem ég hef látið frá mér fara á síðustu fjórum árum, má greina áhrif frá heimalandi mínu. Mér er fundiö það til foráttu. En ég er bara að greina frá því lífi sem horfir við mér og sé mér ekki annaðfært. Menn þreytast ekki á að brýna fyrir mér að það eigi að skrifa um veröld á barmi tortímingar. Ég bara get það ekki. Mig langar ekki til þess. En það er ekki þar með sagt að ég sé á höttunum eftir ódýru sam- ræmi afþreyingarbókmenntanna. Ljósiö býr innra með mér. Það baðar staöinn þar sem ég bý, þar sem ég geng, gef köttunum, slæ grasiö. Stundum þegar ég heyri þessar gagnrýnisraddir, hef ég á tilfinning- unni að menn ætlist til að ég yfirgefi heimkynni mín. Eins og það sem ég skrifa væri staðnum að kenna. En það nær engri átt. Ég vil gera skil mínu umhverfi. Það er í senn það erfiðasta og jafnframt skemmtilegasta sem ég get tekið mér fyrir hendur. Ef ég ætti að setja mig í aðrar stellingar þá væri eins gott að fara til Senegal eða þessara landa þar sem hörmungin keyrir um þverbak. En er rétt að elta ó- lánið uppi? Ég held ekki. Það er engu líkara en lesendur séu hvarvetna á höttunum eftir hinni fullkomnu óhamingju. Þaö hefur löngum veriö háttur austurrískra ríthöfunda alveg frá Musil til Tómasar Bernhardt aö beina spjótum sínum mjög aö heima- landinu, stundum af heift. Hver er þín afstaöa? Sjálfur segiröu í Þunga heimsins: „Fitan sem mér klígjar viö: Austurríki". Jájá. Margt fólk, ekki síst rithöfundar, er haldiö einslags kvalalosta. Og böl- móöurinn fellur lesendum í geð. í stuttu máli og í eitt skipti fyrir öll: ég er ekki af þessum toga. En ég er enginn hræsnari heldur... Ég er díalektískur og þrái að víkka svið mitt. Það er allt 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Teningur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.