Teningur - 01.05.1988, Page 53
Frá sýningu Gerwalds íNew York, maí 1987.
En myndimar eru seldar ein og ein?
Já, en flestir kaupa þær í hópum,
Þrjár, fjórar saman. Enginn keypti
staka mynd. En ég reyni þó alltaf að
koma heildarhugmyndinni inn í hvert
einstakt verk, þannig að það standi
fyllilega fyrir sínu og spjari sig eitt sér.
Þannig verður það að vera.
Hver finnst þér vera munurinn á
evrópskri og amerískri list?
1 allri evrópskri list sér maður hinn
menningarlega bakgrunn Evrópu og
hér er það svo hinn ameríski kúltúr
sem er á bak við listina. Ameríka er
mjög nýtt land og hefur ekkert
menningarlegt „identitet" að mati
Evrópubúa sem halda því fram að
kanar leiti alltaf eftir því yfir hafið. En
Þetta er auðvitaö ekki rétt. Sem
Evrópumaður hugsaði ég lítið um
þetta áður en ég kom hingað til
Ameríku en þá varð mér munurinn Ijós
þó erfitt sé að henda reiður á hann.
En hvort tveggja getur verið kostur og
galli. Mörgum listamönnum í Evrópu
er þeirra mikla hefð og aðeins mikil
byröi og síðan sakna margir
ameríkanar þess sama. Hver verður
að vinna út frá sínum eigin aðstæðum
og notfæra sér alla þá kosti sem
heimabyggð hans býður upp á.
Þannig að það er ekkert slæmt við
hefðarskortinn hér vestan hafs né
heldur andstæöu hans í Evrópu.
Um þessar mundir eru margir góðir
listamenn í Bandaríkjunum og þeir
nýjustu eru alltaf mest spennandi því
þeir skapa meiri umhugsun og maður
veit minna um þá. Um Warhol hefur
margt verið sagt og ég kann vel að
meta hann þó ég hafi meiri áhuga á
Jeff Koons en þá einungis vegna
þess að Warhol stúderaði maður í
skóla en Loons er mér aðeins kunnur
um tvö, þrjú ár En þetta er allt saman
frekar verkefni gagnrýnenda og sem
listamaöur hef ég ekki svo mikinn
áhugaáþví. Ég hef t.d. meiri áhugaá
því nýjasta í tónlist en þeirri klassísku
eins og þeir spila heima í Vín, Mozart
og þeir allir eru hluti af bernsku minni,
en þegar ég kem hingað til New York
og heyri þessa rapp-tónlist og hipp-
hoppið þá líkar hún mér betur en
Mozart. Húnerhlutiafþeimtímasem
ég lifi og gefur mér meira vegna þess
að ég veit hvað þeir eru að tala um.
51