Teningur - 01.05.1988, Qupperneq 56

Teningur - 01.05.1988, Qupperneq 56
„En þú segir, býst ég við, að það sem hann skapar sé ósatt. Samt sem áður skapar málarinn á vissan hátt rúm, er ekki svo?“ „Jú, sýndarrúm," sagði hann. „En húsgagnasmiöurinn? Sagðirðu ekki áðan [597 A] að hann skapi ekki frummyndina, sem við segjum að sé það sem rúm er, heldur bara eitthvert rúm?“ „Reyndar sagði ég það.“ „Svo að ef hann skapar ekki það sem er, þá skapar hann ekki veruleikann, heldur eitthvað sem er líkt og veru- leikinn, en er ekki veruleiki: hætt er við að sá sem segði verk húsgagna- smiðsins eða annars handverkmanns vera fullkomlega raunverulegt, færi ekki með rétt mál.“ „Reyndar ekki,“ sagði hann, „að minnsta kosti eftir meiningu þeirra sem ástunda rökræðurum þvílík efni.“ „Við skulum því ekkert undrast ef þessir hlutir vilja verða heldur ógreini- legir í samanburöi við sannleikann." „Undrumst ekki.“ „Ertu nú til í,“ spurði ég, „að við könnum á grundvelli þessa hver þessi eftirherma eiginlega er?“ „Ef þú vilt,“ sagði hann. „Verða ekki rúmin með þrennu móti? Eitt er náttúrlegt, það sem ég hugsa við segjum að guð hafi búið til - eða hver annar?“ „Enginn annar, held ég.“ „Og svo eitt sem trésmiðurinn býr til.“ „Já,“ svaraði hann. „Og eitt sem málarinn býr til - eða hvað?“ „Segjum þaö.“ „Málari, húsgagnasmiður, guð_þessir þrír eru settir yfir þrjár myndir rúma.“ „Já.“ „Nú, annað hvort vegna þess að guðinn vildi ekki skapa nema eitt náttúrlegt rúm eða þá að nauðsyn rak hann til þess, skapaði aðeins þetta eina rúm sem er hið raunverulega rúm. Tvö slík eða fleiri voru ekki getin af guöinum og munu ekki verða.“ „Því þá það?“ spurði hann. „Af því,“ svaraði ég, „að ef hann skapaði nú tvö, þá kæmi fram eitt rúm Hómer enn sem hvort tveggja þetta fengi mynd sína af, og þetta rúm væri hið raunverulega rúm, en ekki hin tvö.“ „Rétt,“ sagði hann. „Þetta hugsa ég guðinn hafi vitað og, þar sem hann vildi vera raunverulegur höfundur raunvemlegs rúms - ekki bara einhver húsgagnasmiður sem býr til eitthvert rúm, gat hann þetta eina náttúrlega rúm.“ „Svo virðist." „Viltu nú að við ávörpum hann sem „náttúruhöfund" þessa hlutar eöa eitthvað í þá veru?“ „Hann á það skilið," sagöi hann, „fyrst hann er náttúrlegur höfundur þessa og allra annarra hluta." „En hvað eigum við að kalla tré- smiðinn? Ætli ekki smið rúmsins?" „Jú.“ „Og eigum við líka að nefna málarann höfund og smið þessa hlutar?“ „Alls ekki.“ „Hvað er hann þá gagnvart rúminu?" „Mér sýnist best hæfa að kalla hann eftirhermu þess sem hinir eru höfundar að.“ „Ágætt," sagði ég, „þú kallar þá þriðja skapnaðinn frá náttúrunni eftir- hermu?" „Einmitt," svaraði hann. „í þeim hópi verður þá líka harmleikja- skáldið, fyrst það er eftirherma: því er eðlislægt aö vera í þriðja sæti frá konunginum og sannleikanum og eins um allar hinar eftirhermurnar." „Hætt er við því.“ „Við höfum þá orðið sammála um eftir- hermuna. En segöu mér [598 A] um málarann hvort þér sýnist hann reyna ;> að líkja eftir hinum náttúrlega hlut sjálfum eða verkum handverks- mannanna?" „Verkum handverksmannanna," svaraði hann. „Eins og þau eru eða eins og þau sýnast vera? Greindu líka á milli þessa tvenns." „Hvað áttu við?“ spurði hann. „Jú, sjáðu til: rúm sem þú horfir á ýmist frá hlið eða beint framan á eða frá hvaða sjónarhomi sem er: tekur það einhverjum breytingum sjálft eða er það alltaf samt við sig, (áótt það birtist á ólíka vegu - og allt annað á sömu lund?“ „Á síðari veginn," sagði hann, „það birtist á ólíka vegu, en breytist ekkert." ^ „Hugaðu nú að þessu: að hvoru miðar málaralistin hverju sinni, að líkja eftir veruleikanum eins og hann er eða sýndinni eins og hún birtist? Hvort er hún eftirlíking sannleika eða skugga- myndar?" „Skuggamyndar," svaraði hann. „Hermilistin er þá fjarri sannleikanum; og að því er virðist kallar hún fram hvað sem er vegna þess að hún snertir aðeins á broti af hverjum hlut, sem að auki er skuggamynd. Málar- inn, segjum við, málar fyrir okkur skó- smið og trésmið og aðra handverks- menn án þess að bera skynbragð á list nokkurs þeirra. En sé hann góður > málari og málar trésmið í fjarlægð, myndi hann eigi að síður blekkja börn og fávíst fólk svo að þau héldu að hann væri sannur trésmiður." „Nema hvað.“ „En ég hygg, vinur minn, að þetta sé það sem við eigum aö láta okkur skiljast um alla slíka menn: þegar einhver skýrir okkur frá því að hann , hafi hitt mann sem kann allt handverk 54
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Teningur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.