Teningur - 01.05.1988, Síða 58
frá Keios og fjölmargir aðrir geta talið
samtímamönnum sínum trú um það
með einkakennslu að þeir séu ófærir
um að stjórna húsi sínu eða borg
nema þeir hljóti menntun sína undir
handleiöslu þeirra. Og fyrir þessa
visku eru þeir svo elskaðir að það eitt
vantar á að fylgismennirnir beri þá á
háhesti. En ef Hómer var fær um að
hjálpa mönnum til dygðarinnar,
heldurðu að samtímamenn hans
hefðu látið hann eða Hesíod reika um
sem farandsöngvara og hefðu ekki
fremur haldið í þá en aurana sína og
þröngvað þeim til að gerast heima-
menn hjá sér? Og hefóu skáldin ekki
látið sannfærast, hefðu þeir þá ekki
sjálfir elt þau hvert á land sem er uns
þeir væru orönir nógu menntaðir?"
„Mér sýnist þú hafa alveg rétt fyrir þér,
Sókrates minn,“ sagði hann.
„Eigum við þá ekki setja öll skáld frá
og með Hómer í flokk þeirra sem líkja
eftir skuggum dygðarinnar og annars
þess sem þau fjalla um? Þau snerta
hvergi á sannleikanum, heldur er það
eins og við vorum að segja um
málarann sem býr til það sem þeim
sem ekkert kunna til skósmíða fremur
en hann sjálfur sýnist vera [601 A]
skósmiður, og sjá ekkert nema liti og
form?“
„Vissulega."
„Á sama hátt munum við þá segja,
býst ég við, að skáldiö liti hverja list
með nöfnum og lýsingum. Það hefur
engan skilning sjálft á öðru en því að
líkja eftir, svo að þeim sem eru eins og
það sjálft og dæma eftir tungutakinu
sýnist það tala mjög vel, þegar það
fjallar í bundnu máli með hrynjandi og
samhljómi hvort heldur um skósmíðar
eða herstjórnarlist eða hvaðeina
annað. Þetta skáldskaparmál býr
sem sagt yfir einhverjum náttúrlegum
töfrum. Því ég hygg þú vitir hvernig
mál skáldanna lítur út þegar búið er að
afklæða það skrautklæðum braglistar-
innar, og það mælt fram eitt og óstutt.
Þetta hefurðu ugglaust séð.“
„Reyndar hef ég það,“ svaraði hann.
„Veröur það ekki áþekkt útlits og
ásjóna drengs,“ sagði ég, „sem
skartar engu öðru en æsku sinni og
glatar æskuþokkanum?"
„Einmitt,“ svaraði hann.
„Komdu nú og leiddu hugann aö
þessu: sá sem er skuggaskáld og
eftirherma, segjum við, hefur engan
skilning á veruleikanum, heldur á
sýndinni. Er ekki svo?“
„Jú.“
„En nú er ekki nema hálf sagan sögó
og ekki má skilja við málið við svo búið
heldur skulum við skoða þaö til fulls.“
„Haltu áfram,“ sagði hann.
„Málari, skulum við segja, málar beisli
og mél.“
„Já.“
„En það eru söölasmiðurinn og jám-
smiðurinn sem búa þau til.“
„Vissulega."
„En veit málarinn hvernig beisli og mél
eiga að vera? Eða veit sá sem býr
þau til, söðlasmiðurinn og jámsmiður-
inn, það ekki einu sinni, heldur aöeins
sá sem kann að nota þau, hesta-
maðurinn?"
„Alveg rétt.“
„Og ætli við segjum ekki sama um allt
annað?"
„Hvað þá?“
„Aö fyrir hvern hlut séu þrjár listir: til
notkunar, til sköpunar og til eftir-
líkingar."
„Jú.“
„Miðast dygð, fegurö og rétt lag hvers
smíðisgrips, dýrs eða verks við
nokkuð annað en þá beitingu sem
hlutnum er ætlað eöa hann er náttúr-
lega vaxinn til?“
„Nei, þannig er það.“
„Þá er það brýn nauðsyn að notandinn
sé sem reyndastur og miöli því til
smiðsins hvað geri hlutinn góðan eða
slæman þegar honum er beitt. Til
dæmis lætur flautuleikarinn flautu-
smiðinn ábyggilega vita um flaut-
urnar, hverjar kæmu sér að gagni í
flautuleiknum, og gæfi fyrirmæli um
smíði þeirra. Og hinn mun fara að
tilmælum hans.“
„Nema hvað.“
„Upplýsir ekki kunnáttumaðurinn
smiðinn um góðar flautur og lélegar
og hinn tekur mark á honum og
Sókrates
smíðar þær eftir því?“
„Jú.“
„Svo að í tilviki eins og sama tækis, þá
hefur smiðurinn rétta meiningu um
kost og löst á því, enda fylgir þeim
sem veit og er tilneyddur að hlusta
[602 A] á hann. En sá sem notar
tækið hefur þekkingu á því.“
„Vissulega."
„Skyldi nú eftirherman öðlast
þekkingu á því sem hún dregur upp,
og geta greint hvort það er fagurt og
rétt, af því að beita hlutnum, eða
öðlast hún rétta meiningu um það
vegna óhjákvæmilegs samneytis við
þann sem veit og boða frá honum um
hvernig mála beri?“
„Hvorugt."
„Þá mun eftirherman hvorki vita né
trúa því sem rétt er um kost og löst á s
því sem hún líkir eftir.“
„Svo virðist."
„Hann hefur dágott vit á því sem hann
er að gera þessi eftirherma!"
„Eða hitt þó heldur!"
„Eigi að síður hermir hann eftir án
þess að vita í nokkru tilviki hvernig
hluturinn sem hann gerir verður góður
eða slæmur, heldur virðist sem hann /
líki eftir því sem þorra manna sem
56