Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 59

Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 59
ekkert veit sýnist vera fallegt." „Hvað annað?" „Hér er þá tvennt sem við virðumst vera ágætlega sammála um: eftir- herman veit ekkert sem máli skiptir um það sem hún hermir eftir, heldur er hermilistin eins konar leikur og engin * alvara, og í öðru lagi, þeir sem fást við harmleikjaskáldskap hvort heldur í jambískum hætti eða söguljóði eru allir eftirhermur í fyllsta skilningi." „Það er alveg áreiðanlegt." „í Seifs nafni,“ sagði ég, „snýst ekki þessi eftirlíking um eitthvað sem er þremur þrepum frá sannleikanum? Eða hvað?“ „Jú.“ „En gagnvart hverju í manninum beinist þá sá máttur sem hún hefur?" „Hvaða hluta mannsins áttu við?“ „Sjáðu nú til: þegar við sjáum með sjóninni sömu stæröina úr nálægð og úr fjarska sýnist hún ekki vera jafn stór.“ „Reyndar ekki.“ „Og sömu hlutir sýnast beinir og beygðir eftir því hvort þeir eru séðir í vatni eða ekki, holir eða kúptir vegna þess að litirnir villa um fyrir sjóninni, og alls konar brenglun önnur á sér greinilega stað í sál okkar. Það er vegna þess að þau notfæra sér þennan veikleika í eðli okkar sem skuggamálun og brúðuleikur og margar aðrar tæknibrellur af þessu tagi eru hreinir galdrar." „Það er satt.“ „Og hafa ekki mæling, talning og vigtun reynst dágóð hjálp á þessu sviöi, þannig að viö látum ekki stjórnast af því sem sýnist stærra eða minna, þyngra eða léttara, heldur af því sem er taliö, mælt og vegið?“ „Auövitaó.“ „En þetta myndi vera verk skyn- semishluta sálarinnar.“ „Reyndar." „En þegar skynsemin hefur mælt eitthvað og gefið til kynna að eitt sé stærra eða minna eða jafnt öðru, þá sýnist mönnum oft um leið hið gagnstæöa." „Já.“ „Sögðum við ekki óhugsandi að eitt og hið sama hafi andstæðar meiningar um sama hlutinn á sama tíma?“ „Jú, og það var rétt hjá okkur.“ [603 A] „Þá er sá hluti sálarinnar sem hefur meiningar gagnstætt mælingun- um annar en sá sem trúir mæling- unum.“ „Já, hann er annar.“ „En það sem leggur trúnað á mælingu og talningu er besti hluti sálarinnar.“ „Nema hvað.“ „Það sem setur sig á móti honum heyrir þá til hinu lítilmótlega í okkur." „Óhjákvæmilega.“ „Þetta var nú það sem ég vildi fá samþykkt þegar ég sagði að dráttlistin og öll hermilist almennt ynni verk sitt fjarri sannleikanum og ennfremur að hún blandaði geði við það í okkur sem er fjarri skynseminni og hefði ekkert sem er heilbrigt og satt að félaga og vini.“ „Ég er fullkomlega sammála,“ sagði hann. „Lítilmótleg hermilistin hefur þá samneyti við sína líka og getur af sér lítilmótleg afkvæmi." „Svo virðist.“ „Hvort á þetta nú aöeins við um hermilist sjónarinnar,“ spurði ég, „eða líka þá sem styðst við heyrnina, þá sem við nefnum skáldskap?" „Sennilega líka um þessa," svaraði hann. Úrtíundu bók Ríkisins. Þýðing: Eyjólfur Kjalar Emilsson 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Teningur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.