Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 61

Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 61
Þorri Þeir fóru hvaö eftir annað að mannast og maður að belja í stríði að stimpla í spilandi þing og stríð að breiðast út á milli þeirra. Góa Þaö er satt, þeir komu. Fóru svo. Þorri Þeir koma með orð að grenja steinsteyptir með veggjum Þrotlausir að bíta bryntröll. Drynjandi fánar og orð að brotna á stökkum, að ríma organdi að renna hugprúðir niður og hróp og lönd. Og algóðir dembast að ræsi. Svona sífelld ræðuhöld og halló á halló ofan. Góa Nei ekki núna, það var létt að ekki vantaöi grunuð orð og nótur gerðu víðreist og haldið beina leið í c! Að sjá þessa grænkontruðu áttund! Og flærnar. Nú koma þær að þefa, tönn að hafast að við augað. Bíddu maðkur líf rólegur lífið. Undarlegt hve það að sökkva... og þarna fór það. Þorri Þú bullar. Góa Áttu við að ég heföi átt að skilja að vera þannig? Að þaö er víst svo mikið? Þorri Líf, er það að vera? Að ég hugsa þótt ég viti það ekki hvernig það kom og skildi við mig? Góa Nei. Því er ekki hægt? Því er það ekki sín eigin saga aftur að líf er með sitt vissa mál? Þorri Þeir koma ávallt, þarna, núna. Sjáðu, vitfirrtur heimur að æpa! Góa Æpi ég ef Ijósiö er að stríða milli þeirra sem þó er satt? Því sko hvað það er alltaf eins við sig og loðinn heimur enn að heimta hróp. Þorri Ó þú andþröngi harmur sem sorgina eltir að færa mér allt sem ég ræð ekki við! Góa Marglytturnar fá samt að anda og þarna haf að sigla og marfló að undrast augað og stórmikil hetjudáð svo ekki er orði stunið. Þarna rís hrikalegt auga í suður! Þarna, að hefjast lángt yfir eyðimörkina! Ekki orði stunið! Þorri Mér leiðist gítarspil. Mér leiðist síglaöir eyasöngvar og kátir karlar sem gánga í arf. Hve mörg ár og hvaö um aldir? Því komu ekki dagar og sigldu á svig við mitt auga og allt mitt geð? Góa Hvíldu auga. Hvíldu það og sigldu. Þorri Á ég þess framar von að fá að njóta stórlynds ástaryndis og kuldinn hætti aö plaga mitt ráð? Góa Það er allt svo satt sem er, hlaup í gráum heimi, tilboð og litir í reikandi áttund að ég má ekki villast fjarri saklaus að ég viti meir en lífið. Þorri Ég veit of margt sem ég vil ekki vita. Mig væmir við að þekkja daga að framtíö er þrautlifuö fortíð. Ég hugsa enn um dansinn, að hann kom að færa og fegurð og kvöl. Góa Dagurþinn. Hann hefur alltaf verið þar. Þar er hann samur. Viltu ekki vera hér að skilja að vera þannig? Það er það mikið að vera og dagur að lifa og líka að blindast og augað um ævi að horfa. Þorri Og samt nýar vonir. Til hvers svona seint aö sjá það að eilífu týnt? Góa Segðu já. Þá sérðu já. Þorri Ég missi hár með hverjum degi og þó fer sigling fram, að stórefld dáð hefur leikið um hár mín þar sem mér var súngið að haf flaut að með ángan. Góa En marflær? En þær enn að horfa á auga og túnglskin á sveimi og djúpið og skraf frá blaktandi þönglum? Þorri Ég hef fálmað af miklum hug og fölur og trúr yfir litlu og sá engan dans og enga birtu og þokan dettur á. Góa Sérðu ekki nóg hróp? Þarf ekki alltaf að sjálfsagt sé allt? Því sjáðu að lifa að telja sannleik. Þorri En dómurinn féll! Menn sögðu oröiö og fóru að hlæa. Góa Já einnig það. Líka vogun og eyðsla á lífi og stórmikil hlakkandi skelfing. Ég ervissulega hamingjusöm! Þorri Þú stráir dönsum, en mér mun aldrei gefast það Ijós sem nýar blóð mitt, aldrei lifa þann hlátur sem kann sig og áfram er haldið. En hver sagði sagan er bókuð? Hver segir réttlæti? Ég veit ekki hvar það var, bara aö ég horfi enn eftir leið 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Teningur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.