Teningur - 01.05.1988, Side 66

Teningur - 01.05.1988, Side 66
HÖFUNDAR EFNIS Berglind Gunnarsdóttir er íslenskt Ijóöskáld sem býr í Reykjavík. César Vallejo var perúískt Ijóðskáld sem bjó lengst af í útlegð í Frakklandi. ívar Valgarðsson er íslenskur steypu- sérfræðingur. Ingólfur Arnarsson er íslenskur gifs- sérfræðingur. Mary Guðjónsson kennir bandarískar bókmenntir við Háskóla íslands. Magnúz Gezzon er íslenskt Ijóðskáld meö áhuga á dönskum bókmenntum Sigurlaug Gunnlaugsdóttir er íslensk verkakona með áhuga á rómönsku Ameríku. Tomas Borge er innanríkisráðherra sandinistastjórnarinnar í Nicaragua. Bernando Marqués mun vera kúbanskur blaöamaður. Ernsto Cardenal er prestur og menntamálaráöherra sandinista- stjórnarinnar í Nicaragua, eitt þekkt- asta núlifandi Ijóðskáld álfunnar. Guðbergur Bergsson er íslenskur rit- höfundur. Norbert Weber er þýskur gallerí- eigandi sem hefur sýnt verk eftir skandínavíska listamenn, þará meðal íslenska, og má þar nefna Sigurö Guðmundsson, íslenskan myndlistar- mann sem býr í Hollandi. Helgi Þorgils Friöjónsson er íslenskur listmálari sem hefur sýnt í Malmö. Sylvia Plath var bandarískt Ijóðskáld sem var gift Ted Hughes sem er breskt Ijóðskáld. Friðrika Benónýs er íslenskur bókmenntanemi með áhuga á banda- rískum bókmenntum. John Armleder er svissneskur lista- maður sem hefur sýnt á íslandi. Louise Erdrich er bandarísk skáld- kona af indíánaættum. Ástráður Eysteinsson er þýsk- bandarískt menntaður íslenskur bókmenntafræðingur. Óskar Árni Óskarsson er íslenskur bókavöröur á bókasafni Háskóla íslands. Peter Handke er austurrískur rithöfundur sem bjó um skeið í Frakklandi. Pétur Gunnarsson er íslenskur rithöfundur sem bjó um skeið í Frakklandi. Björgúlfur Ólafsson er þjóðlegur íslenskur rithöfundur. Gerwald Rockenschaub er austur- rískur listmálari sem hefur sýnt á íslandi. Platón var forngrískur heimspekingur sem ferðaðist til Egyptalands og Sikil- eyjar í fornöld. Eyjólfur Kjalar Emilsson er bandarískt menntaður íslenskur sérfræðingur í forngrískri heimspeki. Sjóni Sands er Steinar Sigurjónsson sem er íslenskur rithöfundur. 64

x

Teningur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.