Birtingur - 01.01.1958, Page 21

Birtingur - 01.01.1958, Page 21
Form við sjó, olía, 1949 hugun hlutanna í náttúrunni og teikning þeirra sé málaranum nauðsynleg? — Jú. Ég held að maður verði að ganga í gegn um mjög stranga og nákvæma teikni- þjálfun, meira að segja akademíska vöðva- teikningu, til þess að fá tilfinningu fyrir hlutum í heildinni, fyrir heild myndflatarins. Því miður teikna ég ekki nóg, en það má í rauninni aldrei sleppa því að teikna. En ég Mt á slíka teikningu sem þjálfun en ekki takmark. — Þú leggur sem sagt áherzlu á mynd- bygginguna, hina ákveðnu og vísvituðu flataskipun, sem frumatriði málverksins. Hvað segirðu þá um tachismann, sem hefur kastað þessu alveg fyrir borð? Við höfum nú dæmi hér heima þar sem var síðasta sýning Kristjáns Davíðssonar og verk hans í nýútkominni ljóðabók Jóns Óskars, — og að nokkru leyti í nýjustu myndum Eiríks Smith, þótt það megi kannski frekar kalla þær abstraktan expressionisma. — Ja, þegar búið er að flæma alla kompósitión úr mynd, þurrka úr henni alla spennuna sem er í formunum, hvað er þá eig- inlega eftir? Mér finnst raunverulega ekki til neins að fást við myndlist upp á það. Þetta vandamál að mála, að byggja upp mynd, það er fyrst og fremst að gæða hana því lífi sem felst í innbyrðis þenslu forma og lita. Hún verður að skapast af tilfinningunni sem mál- arinn hefur fyrir hlutunum, af dómgreind hans en ekki af tilviljun einni saman. Ég held að tachisminn sé bara leiði og þreyta. 15 Birtingur

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.