Húsfreyjan - 01.04.1968, Qupperneq 9

Húsfreyjan - 01.04.1968, Qupperneq 9
S. J. Ég lield að ungir eiginmenn nú á dögum séu farnir að breytast og víst er um það, að námsmenn, sem eru heima, fá tæki- færi til þess að kynnast börnum, sínum ögn meira en algengast liefur verið. H. A. Ung bjón, sem bæði vinna úti eða eru við nám og skipta barnauppeldinu á milli 6Ín, eru enn injög sjaldgæf liér. S. J. Veldur fjárhagurinn því ekki m. a.? Námslán eru svo lítil liér, þjóðfélagið beinlínis krefst þess af konunni að bún afsali sér bæði námi og framtíðarstarfi. F. N. Ætli að augu karlmanna opnist fyrir því að breytinga sé þörf fyrr en kon- umar liefja sjálfar áróður fyrir bættri að- stöðu? Geta þær ekki líka bætt aðstöðu sína með því aö skipuleggja betur heim- ilisstörfin og hagnýta sér vélar, svo sem uppþvottavélar, í stað þess að standa við uppþvott klukkustundum saman? H. A. Kvenfélögin hafa almennt beitt sér sorglega lítið fyrir kvenfrelsi. S. J. Ég hef verið að vona, að ungu menntakonumar risu upp eitthvað á svip- aðan hátt og verkalýðurinn háði sína bar- áttu áður fyrr. F. N. Nú, þurfa þær þá ekki kvenna- samtök? , H. A. Hvernig myndu ungar mennta- konur brinda af stað þeirri hreyfingu? Er nokkur ólga fyrir bendi lijá þeim? Situr ekki hver í sínu horni og nöldrar í barm sinn? Ég bind ekki miklar vonir við að slík hreyfing brjóti sér braut. S. J. I Svíþjóð hófst hreyfing í þessa átt vegna þess, að þar reis upp „spámaður“, Eva Moberg ferðaðist um landið í tvö ár og hélt fyrirlestra um jafnréttið. Nú þora Svíar ekki einu sinni að semja litla aug- lýsingu án þess að athuga gaumgæfilega hvort nokkuð sé í benni, sem geti talizt niðrandi fyrir konur. S. T. Rétt er það, einstaklingur getur vakið mikla hreyfingu, en jarðvegurinn þarf að vera rétt undirbiiinn. Hvað þarf að gera fyrst? H. A. Ég held, að það sem þarf að ger- ast fyrst sé það, að konan komist út í at- vinnulífið, svo muni bitt koma af sjálfu sér. S. .1. Eins og ég nefndi í uppliafi, þá beld ég að við þurfum að byrja strax í barnaskólanum. Ég vil ekki láta kenna stúlkum og drengjum sín liver fögin í handavinnu. Stúlkur sækja í vissar at- vinnugreinar vegna þessa sífellda þrýst- ings, sem beitt er gegn þeirn. H. A. Ég lield ekki að það sé svo erfitt að breyta siðgæðisvitund manna — eru það ekki efnahagslegu atriðin, sem verður að leysa fyrst? F. A. Þjóðlífið er nú orðið svo flókið bjá okkur þessum 200 þúsund sálum, að það er eins og liver verði að bera sig saman við ótal sérfræðinga til þess að komast að nokkurri niðurstöðu um sjálfsögðustu bluti og ég beld að sé kominn tími til að gera æðstu stjórn okkar mála miklu ein- faldri. Þá færu menn að sjá livað em að- alatriði og bvað aukaatriði. Mér finnst það vera góðs viti, að konurnar í kvenfélögun- um skuli nú vera farnar að vilja líka gera eittbvað fyrir sig sjálfar, auk þess sem þær starfa að sínum stefnumálum. Fræðslu- slarf þeirra hefur löngum verið bundið bagnýtum greinum, nú vilja þær líka læra andlitssnyrtingu, leikfimi og föndur, sem styrkir í senn sjálfstraust þeirra og er þeim til skemmtunar. S. J. Gelur það ekki líka bent til eins- konar flótta — til dýrkunar kveneðlisins? Mér þætti það sorgleg þróun, ef karlmenn- irnir færu að taka að sér líknarmálin, en konurnar ástunduðu andlitssnyrtingu í staðinn. En mig langaði til þess að lieyra meira um það bvað Hallveig átti við með því, að réttindamál kvenna leystust aðeins með því, að efnabagsmálin leystust fyrst? H. A. Ég átti við það, að ef konurnar yrðu raunverulega jafn réttliáar karlmann- inum í atvinnulífinu, þá yrðu þær um leið lausar iir þeirri sjálflieldu, sem þær nú eru í — að þjóðfélagsaðstaða konunnar á öðruin sviðum breytist þá fyrst þegar fjár- hagshliðin er leyst. S. J. Verður ekki litið á það með nokk- urri tortryggni og lítilsvirðingu, ef konur beina baráttu sinni eingöngu að því að tryggja sér betri efnahagslega aðstöðu? H. A. Ég á alls ekki við að kvenfólkið 5 HÚSFBEYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.