Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 42

Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 42
Þær spurningar sem berast til Leiðbein- ingastöðvarinnar benda til þess, að stund- um komi fyrir, að livítur nælonfatnaður litist, ef bann er látinn í þvottavél með mislitum nælonfatnaði. Hér skal því tekið fram, að gerviefni litast yfirleitt mjög auð- veldlega af öðrum fatnaði, jafnvel af fatn- aði, sem ekki virðist láta lit. Þvoið því ætíð livítan nælonfatnað sér. Spurning: Hvað er eggjagult? Er liægt að nota eggjagult í staðinn fyrir egg? Svar: Eggjagult er ekki þurrkað egg eins og eggjaduft, sem var á markaðnum fyrir nokkrum árum. Samkvæmt upplýs- ingum frá efnagerðinni Rekord og efna- gerðinni Ilma er eggjagult blanda af maís- sterkju, sódadufti og gulum lit, og er maís- sterkjan aðaluppistaðan í blöndunni. Ef eggjagult er látið í kökudeig verða kökurn- ar gular á litinn og lyfta sér aðeins meira vegna sódaduftsins. Eggjagnlt er selt í litl- um dósum eða pökkum, mun kílóverðið vera um 50—70 kr. Kílóverð á maízena- nijöli er um 30 kr. Spurning: Mig langar til að kaupa frysti- kistu fyrir haustið, bvað þarf ég að atliuga, þegar ég kaupi hana? Svar: Þegar frystikista er keypt, ]>arf að athuga eftirfarandi atriði: 1. Ábyrgðarskírteini og það sem í á- byrgðinni felst. 2. Varabluta- og viðgerðaþjónustu. 3. Stærð kistunnar og ummál bennar. Það fer að sjálfsögðu eftir stærð fjölskyld- unnar, livað frystikistan þarf að vera stór, en það fer einnig eftir því, hvernig þér lmgsið yður að nota kistuna. Þess skal get- ið, að í hverjum lítra af frystikisturúmi er unnt að geyma um y2 kg af matvælum. Mælið kistuna að utanverðu og berið mál- in saman við plássið, sem lil umráða er í íbúðinni, þar sem frystikistan á að standa. 4. Frostið í kistunni. Þegar matvæli eru fryst, þarf helzt að vera 25° frost í kist- 38 unni. En fryst matvæli þarf að geyma í a. m. k. 18° frosti. Unnt þarf að vera að stilla liitastillinn í samræmi við notkun kistunnar. 5. Hve mikið magn af matvælum má frysta í einu. Danir tala um „indfrysnings- kapacitet“ frystikistu eða frystiskáps, en það þýðir live mikið magn eða mörg kíló af matvælum er liægt að frysta á tveim sólar- Iiringum, þannig að matvaran sé gegnfros- in (en þá á bitastigið að vera komið í -í- 10° C í miðju böggulsins). Það er mjög mismunandi, bve mikið magn er unnt að frysta í einu í liinum ýmsu gerðum af frystikistum. Að sjálfsögðu fer það að nokkru eftir stærð kistunnar, en fleiri at- riði koma einnig til greina í því sambandi. Ef óskað er eftir að geta fryst mikið magn í einu, er áríðandi, að „indfrysningskapa- citeten“ sé bá, til þess að góður árangur náist. 6. Gerð kistunnar. Flestar kistur eru lakkaðar að utanverðu, en stundum er þannig gengið frá lokinu, að unnt er að nota það sem vinnuborð. Að innanverðu eru frystikistur oftast úr plasti eða áli (alúmíni), en það þykir auðvelt að breinsa. Munið að ál má ekki hreinsa með sóda eða þvottaefni með sóda. Lamir kistunnar þurfa að vera sterklegar og end- ingargóðar, og einangrun kistunnar þarf að vera mjög góð, þá er bún sparneytin á rafmagn. 7. Rafmagnsnotkun kistunnar. Algengt er að frystikistur noti um 1Y2—3 kwb á sólarbring. Ef kistan er látin standa á köldum stað, verður rafmagnsnotkunin minnst, látið ekki frystikistu standa ná- lægt miðstöðvarofni. 8. Körfur og grindur þurfa að vera þægilegar, svo að auðvelt sé að bafa allt í röð og reglu í kistunni. Ennfremur þarf að vera Ijós utan á kistunni, sem gefur til kynna, ef hitastigið bækkar í henni. Meiri og ýtarlegri vitneskju er unnt að fá í bæklingnum „Frysting matvæla“, sem Sigríður Kristjánsdóttir tók sainan. Fæst hann á skrifstofu Kvenfélagasambandsins, Hallveigarstöðum. S. H. HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.