Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 14

Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 14
4. mynd. Peysujöt jrá um 1870 (Þjms. mms. Tr. G. 136, 15). liggur á herðunum undir peysunni, ská- brotinn og bundinn í slaufu að framan. Einnig tíðkaðist, og var reyndar algengara framan af, að iinýta klútinn að framan og láta hornin bggja út á brjóstið sitt til livorrar handar (3. mynd). A seinni hluta 19. aldar tóku peysuföt- in litlum breytingum. Ein sú helzta var, að farið var að sauma peysuna úr klæði eða vaðmáli í stað þess að prjóna hana. Gerir Sigurður málari þetta að umræðu- efni í ritgerð sinni um íslenzka kvenbún- inga 1857. Segir Jiann, að „nú séu konur farnar að taka upp á þeim ósið að sníða peysurnar úr klæði“ og finnst fara illa á því. Þó viku prjónapeysurnar smám sam- an, en saumaða peysan liélt velli. Eftir myndum að dæma, virðast silki- svuntur Iiafa orðið fremur algengar til sparinotkunar á þessu tímabili, og hélzt svo áfram (sjá 5. mynd). Þá voru einnig, eins og áður er drepið á, tekin upp silki- slifsi í stað liálsklútsins. Mun slifsið í fyrstu liafa verið svart eða dökkleitt og fremur lítið (sjá 4. mynd), en stækkaði síðan, og er kom fram yfir aldamótin 1900 var það oft Ijósleitt með skrautlegri áferð og bundið í slaufur á margvíslegan liátt (sjá 5. og 6. jnynd). Á seinni hluta 19. aldar tók skotthúfan liins vegar verulegum breytingum: liúfan sjálf grynnkaði, skúfurinn lengdist og hólkurinn stækkaði. Á 4. mynd sést vel, hve lítil húfan var orðin þegar um 1870, en hún átti enn eftir að minnka og var á síðustu áratugum ahlarinnar orðin nánast að litlum flötum bleðli, sem nældur var með prjónum ofan á mitt höfuðið fram- arlega. Minnsta skottliúfa, sem ég veit um, er um 14 cm að þvermáli með 34 cm löng- um silkiskúf. Um eða upp úr aldamótun- með því að brjóta liana og leggja undir hana — í tímaritsgrein frá 1914 er í liálf- um 1900 munu húfurnar hafa farið heldur 5. mynd. Peysujöt jiriggja kynslótia. Mynd jrá um 1906. 10 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.