Húsfreyjan - 01.04.1968, Síða 27
BlaSsíða úr Neues
Modelbueh ejtir
Rósínu Fiirst,
útg. í Niirnberg
1666—1676.
Þýzka munstrið í
lieild má sjá á vönd-
uðu linakksessuborði
fiosuðu frá Ketils-
stöðum á Völlum
(Þjms. 7294); er sess-
an talin vera frá 18.
öld. Þá er munstrið
einnig í íslenzkri sjóna-
bók frá 1776 (Þjms.
6950), en þar hefur verið bætt neðan við
það skrautlegri blómakrukku og fuglum
og blómum beggja vegna við bana.
En svo vikið sé aftur að uppdrættinum,
sem fyrst var um getiö, þá er gert ráð fyr-
ir tveimur litum á teikningunni, þótt
sleppt liafi verið á saumaöa dreglinum
þeim lit, sem merktur er með punktum.
Dregillinn er gerður úr bvítri börlengju,
20 cm breiðri og um 1 metra á lengd, með
um 7—8 þræði á livern cm í uppistöðu og
ívafi. Saumað var í með fléttusaumi með
þremur litbrigðum af áróragarni (hör-
garn befði ekki síður verið fallegt, ef lita-
úrval liefði verið fáanlegt), miðmunstrið
með bárauðú, en munstrin til endanna
með dekkra rauðu og dökkrauðu. Voru
litirnir valdir með tilliti til ákveðins borð-
búnaðar, enda dregillinn ætlaður sem
veizludregill á dúkað borð, þótt liér sé
liann sýndur á sófaborði.
Munstrið var sett niður með þeim liætti,
að um 34 spor (68 þræðir) voru milli
munstureininga og jafnlangt frá endum
að munstrum. Frá endunum var gengið
með einföldum hvítum raksaumi miðja
vegu milli munsturs og enda og síðan kögr-
að upp að saumnum.
E. E. G.
Ljósm.: Gísli Gestsson.
HÚSFKEYJAN
23