Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 18

Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 18
ur aldrei komizt — það eru liennar örlög þessvegna verða alltaf stór vandamál og — þessvegna verða alltaf of ungar mæður, og allslags heimskupör framin. En við get- um dregið úr vandamálunum, og sterkasta vopnið í þeirri baráttu emð einmitt þið. Þótt þetta sé vandamál í milljónaborg- um, þá þarf þetta ekki að vera vandamál á Islandi. Hér eru miklir möguleikar til að skapa fyrirmyndar þjóðfélag af marg- víslegum ástæðum, ef við aðeins notum þá möguleika. Vandamálin, þetta og mörg önnur, sem við enim að berjast við, eni ekki að skapast nú, rót þeirra liggur í tím- anum sem liðinn er og vandamál framtíð- arinnar eiga uppliaf sitt í tímanum, sem nú er að líða. Syndir feðranna koma niður á bömunum, er sagt. Það er ekki dómur, heldur náttúrulögmál, sem ekki er liægt að breyta nema að takmörkuðu leyti og í viss- um skilningi. Tryggingalöggjöf, skattafyr- irkomulag, trúlofunarfjölskyldufyrirbærið á Islandi, ásamt ýmsu fleiru á sinn sterka þátt í lauslætinu bér, sem í samanburði við skýrslur hliðstæðra þjóða á ekki sinn líka. Það er ekki æskan, sem á sök á því sem skýrslurnar sýna, það eruin við, sem eldri erum, sem með einstaklingslegri og þjóð- félagslegri afstöðu okkar gagnvart þessum málum böfum skapað það ástand sem er. Og til að skýra örlítið livað ég á við, skal ég taka bér örfá dæmi úr daglega líf- inu. Hópur kvenna er samankominn. Vanda- málið of ungar mæður er til umræðu og þá um leið vandamálið of ungar öminur, og hvernig beri að leysa það. Ein liefur svarið við öllum vandaspurningunum. Og það er á þessa leið. Ég segi dætrum mín- um, að þær komi ekki með nein lauslætis- börn inn á mitt heimili, og svo segi ég þeim, hvað er á markaðnum af getnaðar- varnarlyfjum og livernig beri að nota þau, og þar með er vandinn leystur. Kornung stúlka var að fara út til að skemmta sér eitt kvöld. Rétt áður en hún fór út, kallaði móðir bennar á bana til þess að vera viss um að bún væri með getnaðarvarnarlyf með sér, svo ekkert kæmi fyrir. Kona fór með 16 ára dóttir sína til sáÍ- fræðings af þeim sökum, að stúlkan var uppstökk og erfið í umgengni á lieimil- inu. Ráð læknisins var, stúlkan er orðin kynþroska, það er ekkert að lienni, bún þarf bara að bafa samskipti við karlmann, þá er lienni batnað. Læknir sagði á opinberum vettvangi frá því, að oft kæmu til sín 13 ára stúlkubörn til að fá getnaðarvarnarlyf. Spurning lians var þá venjulega þessi, varstu send til mín eða komstu af sjálfsdáðum? Svarið var alltaf ]>að sama bjá þeim öllum: „Hún mamma sendi mig.“ Hversvegna? „Jú, ég er með strák, komin á fast, og mamma er svo brædd um að ég verði ófrísk.“ Annar læknir sagði mér nákvæmlega j>að sama, fjöldinn allur af 13—14 ára telpum koma, ekki til að fá fræðslu, nei heldur til að fá eittlivað svo Jiær verði ekki barnshafandi. Eru J)etta þá ráðin til að fyrirbyggja vandamálið of ungar mæður, eða vanda- málið óliamingjusamar mæður, mæður, sem verða mæður áður en þær óska eftir })ví sjálfar? Nei, auðvitað ekki! Það er mikið um J)að talað að auka fræðslu um kynferðismál í skólum lands- ins, og sjálf er ég auðvitað bliðlioll því, ef réttum og færum aðilum er falið })að blutverk. En h'ffræðileg fræðsla ein sam- an, orkar litlu og mun koma að takmörk- uðu gagni. Ég befi þegar sagt að ekkert ráð er svo gott að })að leysi allan vanda, og auðvitað geri ég mér fulla grein fyrir J)ví, að ég á ekkert slíkt ráð lieldur. En það breytir J)ó ekki þeirri bjargföstu sannfær- ingu minni, að mæður eða foreldrar em í sterkustu aðstöðunni og eiga sterkasta vopnið til þess að berjast ineð gegn þessu vandamáli, sem og mörgum öðrum. Ef barnið, fær heilbrigða næringu, bæði and- lega og líkamlega, frá upphafi, })á er J)að staðreynd, að J)að sækir síður í það sem er óbeilbrigt. Eins og flestum er kunnugt, J)á er })ví oft Iialdið fram, að barnsfæðing sé erfið og J)að er rétt, bún getur verið það, en liitt er einnig ljóst nú á dögum, að ef allt er með felldu, bæði andlega og líkamlega, og allt 14 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.