Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 47

Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 47
(Eftirfarandi grein birtist í blaðinu Einherju á Siglufirði. Höfundur greinarinnar er Jóliann Þor- valdsson, ritstjóri). Þann 13. nóv. s. I. hélt Kvenfélagið VON upp á hálfrar aldar afmæli sitt nieð hátíðafundi að Borgarkaffi, og var ]>að 391. fundur félagsins, en fyrsti fundur félagsins var haldinn 13. nóv. 1917. Aðalhvatamaður og fyrsti fonnaður félagsins var frú Tndíana Pétursdóttir Tynes. Aðrar konur > fyrstu stjórn voru: Guðrún Björnsdóttir vara- formaður, Anna Vilhjálmsdóttir gjaldkeri, Kristín Pálsdóttir ritari, og meðstjórnendur Rósa Eggerts- dóttir og Petrína Sigurðardóttir. Stofnendur félagsins voru 48 konur, en nú eru félagskonur um 100. t Iöguin félagsins segir að tilgangur félagsins sé ineðal annars „að styðja framfarafyrirtæki og hjálpa bágstöddum“. Fyrsta viðfangsefni félagsins var margs konar liknar- starfsemi. Þá ræðst félagið í ]>að stórræði 1925, að byggja sér hús til fundastarfsetni o. fl., Kven- félagshúsið, Suðurgötu 14. Þetta liús seldi félagið stúkunni Framsókn nr. 187 1939, og starfrækti stúkan ]>ar sjómanna- og gestaheimili Siglufjarð- ar um margra ára skeið. Fljótlega hófst félagið handa um starfrækslu á barnadagheimili í Siglufirði yfir síldartímann. IIÚSFKEYJAN Fyrst við mjög frumstæð skilyröi. Var t. d. not- ast við tjöld, ]>ar sem húsnæði var ekkért. Síðan var dagheiinilið starfrækt í liúsi félagsins við Suðurgötu, og þegar það var selt, byggði félagið dagheimilið Leikskála, rétt innan við Siglufjarð- arkaupstaö. Þar hefur kvenfélagið starfrækt dag- heimilið flest ár síðan og gerir enn. Þótt margar kvenfélagskonur liafi unnið mikið og gott starf í þágu dagheimilisins, þá á frú Guðrún Rjörnsdótt- ir mestan þátt í stofnun og starfrækslu Leikskála, og var formaður dagheimilisnefndar alla tíð frá þyrjun og þar til hún flutti frá Siglufirði fyrir nokkruin árum. Er þessi þáttur úr starfsemi fé- lagsins, gott dæmi um dugnað og fórnfýsi liinna ýmsu kvenfélaga og kvennasamtaka víðs vegar um landið. Snenima var rælt um það innan félagsins að brýn þörf væri á að koma upp elliheimili í Siglu- firði. Stofnuðu félagskouur Elliheimilissjóð, sem þær söfnuðu fé til. Þegar hafin var bygging nýja sjúkrahússins, samþykktu félagskonur að leggja ellilieimilissjóðiun í bygginguna gegn því að þar yrði starfrækt sérstök elliheimilisdeild, sem og gert er. Sjóðurinn nam alls um 510 þús. kr. Auk þess gaf félagiö gluggatjöhl og gólftep|>i í elli- lieimilisdeildina, og í tilefni af 50 ára afmælinu gaf félagið bókaliillu með skrifborði í dagstofu ellideildarinnar. Má því segja að meö þessuin tveim þáttuin starfsemi sinnar, barnadagheiinili og elliheimili, liafi kvenfélagið VON veitt æsku Siglufjarðar og öldruðu fólki sérstakan stuðning og lijálp, sem er þakkar vert. Þó hér hafi verið nefndir tveir merkir ]>ættir úr starfi kvenfélagsins, þá er margt ónefnt enn, er félagskouur liafa unnið að með fórnfýsi og dugn- aði. Má þar nefna stuðning þeirra og umhyggiu við Sjúkraluis Siglufjarðar, aðra en áður cr getið, t. d. gaf félagið allan sængurfatnað í gamla sjúkra- húsið, þegar það tók til starfa 1928, en það cr nú horfið. Þá liafa vinnuflokkar innan félagsins unnið inikið að sérstökum málum. Má í því sambandi nefna „Spyrðuflokkinn“, sem árum saman vann að spyrðuhnýtingu, og andvirði vinnunnar gáfu koiiurnar til cllideildar sjúkrabússins, sem niinn- ingargjöf um frú Sigurbjörgu Hólm, sem var ein í hópnum og formaður félagsins um árabil. Á 50 ára afmælinu voru tvær konur gerðar að heiðursfélögum, þær Sigríðtir Jónsdóttir, Hlíðar- húsum, og Freyja Jónsdóttir, en báðar þessar kon- tir hafa niikiö starfað innan félagsins og átt sæti í stjórn um árabil. Þá bárust félaginu árnaðaróskir og gjafir frá lclögum og einstaklingum. Stjórn félagsins skipa nú: Guðný Fanndal, for- maður. Þorfinna Sigfúsdóttir, varafomiaður, Mar- grét Ólafsdóttir, ritari, Kristín Rögnvaldsdóttir, gjaldkeri. Anna Snorradóttir og Hildur Eiríksdótt- ir, ineðsljórnendur. (Á myndinni eru talið frá vinstri: Kristín Rögnvaldsdóttir, Guötiý Fanndal, Margrét Ólafsdóttir.) 43

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.