Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 19

Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 19
eins vel undirbúið og liægt er, þá þarf hún ekki að vera ýkja erfið. En liitt er stað- reynd, augljós og rétt, að það að vcra móð- ir er ekki alltaf auðvelt verk, ónei, það er oft bæði sársaukafullt og erfitt. Þessvegna má til sannsvegar færa, að það að ala barn er sársaukafullt, en sá sársauki er oft sár- astur, þegar árin fara að færast yfir barn- ið, sem svo saklaust og lítið lék sér í vögg- unni sinni. Hvaða stefnu mun þetta barn taka? Hvaða afstöðu mun það laka til lífsins, bver verður framtíð þess? Þessar spurn- ingar bljóta oft að vera í huga foreldris, þegar það undrast og dáist að því lífi, sem það sér dafna, lífi sem því liefur verið falið að vaka yfir meðan það er að þrosk- ast til manndóinsára. Hvert svarið verður veltur á mörgu. Erfðir, upplag, uppeldi umhverfi og kringumstæður, allt eru þetta sterkir þættir til að skapa og móta. Hvern- ig tiltekst er því sannarlega ekki alltaf for- eldrunum eingöngu að kenna eða þakka, en því verður auðvitað aldrei neitað, að það hvemig sambandið milli foreldris og bams er, hlýtur ávallt að verða mjög sterkur þáttur í lífsviðhorfi og lífsstefnu. Um uppeldismál ætla ég ekki að ræða enda ekki fær um það, um það er svo margt ritað og rætt. En sú spurning vakn- ,ar oft, livernig fóm foreldrar að bér áður fyrr, sem fengu engar leiðbeiningar, en virtust vera fædd til að fæða af sér og ala upp liamingjusöm börn? Svarið er ein- faldlega þetta. Það var hjartavitið og kær- leikurinn og trúin á handleiðslu Guðs, sem lýsti upp leiðina, og svo var umhverfið ekki eins geigvænlega sterkt eins og það er nú. Þessvegna þarf bjólið að snúast til baka, þótt það sé e. t. v. á móti lögmálum nútím- ans. Það þarf að snúast í þá átt að móðirin eignist það samband við dóttir sína, að hún geti setzt hjá lienni í kyrrð og ró, laus við bítlamúsikk og sjónvarps- eða útvarps- hávaða. Það þarf að snúast þannig, að þú setjist bjá dóttir þinni, já og syni, talir við þau um undur lífsins, ekki á háfleygan og vísindalegan bátt, lieldur á einfaldan og kærleiksríkan liátt. Þú þarft ekki að bafa húsfreyjan nein fræðirit til bjálpar, þú þarft ekki að kenna dóltir þinni um liin ýmsu líffæri, sköpun þeirra eða störf, þú þarft ekki að segja lienni í smáatriðum um samskipti karls og konu, eða ráðleggja henni getn- aðarvarnarlyf. Allt þetta veit lieilbrygð, ung kona, benni er þetta í blóð borið, náttúran sér um það nú, eins og ávallt, en sú hjálp, sem liún þarfnast frá þér, er and- legur styrkur: til þess að skilja sjálfa sig, og til þess að berjast gegn tíðaranda og tízkufyrirbæri, sem berst liarðri baráttu til þess að kæfa allt sem siðgæði heitir. Það er ekki vandalítið að vera ung og óþroska í slíku andrúmslofti. Ég veit það vel, að þetta bjargar ekki öllu, eins og ég liefi þegar sagt, en það er samt skortur- inn á þessu beilbrigða og eðlilega sam- bandi milli móður og dóttur sem á stóra sök á að svo fjölmörg mistök eiga sér stað. Nútíma æska er mötuð á því sí og æ, með öllum tiltækum ráðum, að kynferðisþörfin verði að fá útrás og verði að fá næringu, nákvæmlega eins og líkaminn þarf mat til viðhalds. Hitt verð ég lítiö vör við, að áróðri sé lialdið uppi til þess að benda mæðrum framtíðarinnar á það, að það sé brot, gegn því fegursta í náttúrunni að næra eölileg- ar og fagrar tilhneigingar og livatir á ó- eðlilegan bátt, og gera þær þannig að ó- eðli, sem dregur til spillingar og óliam- ingju. Eina móteitrið gegn þessari geigvæn- legu óliamingjuþróun, eruð þið sjálfar, mæður — mæðra framtíðarinnar! Hjólið þarf að snúa til baka, móðurhlutverkið þarf, já það verSur að verða aftur það, sem því í upphafi var ætlað að vera. Ef svo yrði, yrðu þessi vandamál svipur bjá sjón. Leyfið mér þessvegna að segja þetta; gefið ykkur tíma fyrir syni ykkar og dæt- ur, hjálpið þeim, það er ykkar fyrsta og stærsta lilutverk, ekkert má vera ykkur hugþekkara en það. Þroskið ykkur sjálfar, svo þið getið hjálpað börnunum ykkar til þroska, því það þarf að þroska og efla siðgæðiskennd unga fólksins, þroska bug- sjón þess, þroska fegurðarskyn þess, þroska hjá því virðingu fyrir sjálfu sér! 15

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.