Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 45

Húsfreyjan - 01.04.1968, Blaðsíða 45
Ég lagði þessar spurningar fyrir þær: 1. Hve gamalt er félag yðar og hvaða konur skipa stjóm þess nú? 2. Hvernig er fundarsókn? 3. Hvaða verkefni liafið þið tekið fyrir og hvað nýtur mestra vinsælda? 4. Hvað um framtíðina? Hér á eftir fara svör þeirra. Ég vil geta þess að síðan að þetta var tekið saman er komin ný stjóm í Kvenfélag Kópavogs og skipa liana þessar konur: Eygló Jónsdóttir formaður Sigurbjörg Þórðardóttir varaformaður Guðrún Einarsdóttir ritari Stefanía M. Pétursdóttir gjaldkeri Meðstjórnendur: Arndís J óhannesdóttir Áslaug Eggertsdóttir Ásta Sigurðardóttir Jóhanna Björnsdóttir Rannveig Jónasdóttir Frú SigríSur Gísladóttir: F svar: Sjálfstæðiskvennafélagið Edda var stofnað 14. maí 1953. Stjórn félagsins skipa nú þessar konur: Sigríður Gísladóttir formaður Ásdís Magnúsdóttir varaformaður Guðný Jónsdóttir gjaldkeri Ástliildur Pétursdóttir ritari Stefanía Stefánsdóttir meðstjórnandi. Varastjórn: Inga Þorsteinsdóttir Hólmfríður Guðmundsdóttir. 2. svar: Fundarsókn má teljast vel í meðallagi, en starfsemin byggist aðallega á fræðslufund- um og námskeiðum. 3. svar: Aðallega liúsmæðrafræðslu og ýmiskonar námskeið. Vil ég minnast á nokkur atriði. Haldin liafa verið saumanámskeið, sníða- námskeið og snyrtinámskeið. Þá liöfum við verið með námskeið í postulínsmálun og bókbandi, og livorutveggja verið mjög vinsælt. Þá hafa verið haldin mörg fróðleg erindi um liúsmæðrafræðslu, blómarækt og lieilsuvernd. Þá má nefna sýnikennslu í veizlubrauði, en þá urðu margar frá að liverfa, svo mikil varð aðsóknin. Einnig heldur félagið basar árlega. 4. svar: Gagnvart félagsstarfinu yfirleitt, má segja að vaxandi erfiðleikar séu á almennri þátt- töku. Þar kemur ýmislegt til greina og má þar nefna sjónvarpið meðal annars. Félagsstarfið er hér eins og víðar borið uppi af of fáum, en í okkar félagi eru góð- ir starfskraftar fyrir liendi og lít ég því björtum augum á framtíðina. Frú Sólveig Runólfsdóttir: 1. svar: Freyja, félag framsóknarkvenna í Kópa- vogi var stofnað 5. apríl 1963, og er því nákvæmlega 5 ára gamalt. 1 stjórn þess eru nú þessar konur: Sólveig Runólfsdóttir formaður Margrét Ólafsdóttir varaformaður Jóhanna Bjarnfreðsdóttir gjaldkeri Hólmfríður Gestsdóttir ritari Þorgerður Kolbeinsdóttir meðstjórnandi. Stjórn SjáljstœSiskvennafélagsins Eddu. Fremri röð frá vinstri: Ásthildur Pétursdótlir, Sigríður Gísladóttir, Guðný Jónsdóttir. Aftari röð: Ásdís Magnúsdóttir, Stefanía Stefánsdóttir, Hólmfríður Guðmundsdótlir. húsfreyjan 41

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.