Húsfreyjan - 01.04.1968, Qupperneq 16
Engin sérstök breyting liefur orðið á
gerð peysusvuntunnar á þessari öld, nema
hvað hún er nú aldrei bundin um mittið
heldur eingöngu hneppt. En heita má, að
síðan silkipeysufötin kornu til sögunnar,
hafi svo til eingöngu verið notuð ýmiss
konar íburðarmikil silki- og gerviefni í
svunturnar ekki síður en slifsin, enda er
sú tíð löngu liðin, að peysuföt voru livers-
dagsklæðnaður. Þá liefur einnig farið að
tíðkast nú síðustu tíu til tuttugu árin að
nota belti, og þá helzt stokkabelti, við
peysuföt, en það var aldrei siður áður fyrr.
Þess má geta, að á síðustu árum liefur,
að miklu leyti fyrir tilstilli Þjóðdansafé-
lags Reykjavíkur, verið unnið að því að
taka aftur upp prjónahúfur og peysuföt
úr ullarefnum, svo sem léttu klæði eða
þunnu lipru vaðmáli. Jafnframt þessu hef-
ur félagið reynt að útvega svuntur í lík-
ingu við dúksvunturnar gömlu. Er nú svo
komið, að á vegum Heimilisiðnaðarfélags
Islands er farið að vefa bekkjótt dúk-
svuntuefni, og í nýútkominni árbók fé-
lagsins er fyrirsögn um prjón á skottliúfu
og bent á, hvar hægt sé að verða sér úti um
band og prjóna. E. E. G.
7. mynd. Peysuföt frá urn 1930.
UM BÆKUR
Veizla undir grjófvegg
EFTIR SVÖVU JAKOBSDÓTTUR
Þessar smásögur Svövu Jakobsdóttur eru
allrar athygli verðar. Hún beitir ýmist lýs-
ingum hversdagslífs eða fjarstæðum til að
drega fram rangmat á lífsverðmætum,
hvemig menn villa sjálfir um fyrir sér eða
láta umhverfið þrýsta sér til að gangast
undir það mat, sem þeir þó vita að er
rangt.
Svava beinir mörgum skeytum sínum að
konum, sem einangrast við liégómlega
hluti og finna ekki lífi sínu aðra fyllingu
en að eignast of dýr hús og baka fínar tert-
ur. Vægðarlaus er saga hennar af móður-
inni, sem lætur börnin fyrst firra sig lieil-
anum, síðan hjartanu, sem enginn vill svo
higgja-
Það er jafnan ánægjuefni þegar menn
sjá rithöfund þroskast, liöfund, sem greini-
lega gerir þá kröfu til sjálfs sín, að gáfu
hans skuli beitt til annars en veita les-
endum stundargaman. Eftir léstur þessar-
ar bókar vænli ég mikils af höfundinum í
framtíðinni og mæli eindregiö með bók-
inni til lestrar. Frh. á bls. 30
12
HÚSFREYJAN