Húsfreyjan - 01.04.1968, Side 33
samt úr vegi að endurvekja þessa gagn-
semi.
Mismunandi er livernig sængurverum er
lokað. Hentugast mun vera að liafa opið á
hliðinni um 1 m langt og loka því með
böndum eða hneppslum og tölum. Þannig
má snúa sængurverinu á mismunandi vegu,
svo að slitið komi jafnara niður á því. Sé
opið liaft á öðrum endanum, eins og vana-
legast er, þá slitnar það fyrst þeim megin,
sem veit að höfðalaginu.
Koddaver
Ymist eru notuð bómullarefni eða liörefni
í koddaver. Því sléttara og meira gljáandi
sem efnið er, því svalara virðist það. Og
gljáandi efni eru líka auðveldari í þvotti,
þess vegna er hörefni æskilegt í koddaver,
þótt sá galli sé á þeim, að þau þurfa sér-
staka aðgæzlu í þvotti. Venjulegast er
að nota einskeftuofin léreft í koddaver.
Helztu stærðir á koddaverum eru: 60x65
sm, 65x80, 60x90 eða 60x100 sm. Koddaver
í barnarúm er um 37x45 sm.
Koddaverin má sauma Jiannig, að þau
séu einungis jafnstór koddanum, en ann-
ars er vanalegt að hafa um 5 sm breiða
rönd á 3 hliðunum. Opið er þá haft að
neðan og lokað með tölum og hneppslum
eða böndum. Hentugt er að sauma opin
þannig að um 20 sm breitt brot leggist inn
í verið öðru megin að neðan, eins og sést á
næstu mynd. Þá þarf livorki hneppslur né
hönd. Séu koddar mun lengri á annan veg-
inn en liinn, er lieppilegt að liafa opið á
hliðinni.
Skraut á koddaverum má hafa á ýmsa
vegu, ýmist ofnar rendur eða saumaðar.
Hcntugra er að rendur og skraut sé ofið í
efnið fremur en saumað, J)ar sem saumur-
inn vill oft hlaupa meira en efnið sjálft,
og ])á lierpir hann efnið saman, svo að
koddaverið verður óslétt og leiðinlegra í
HÚSFREYJAN
29