Húsfreyjan - 01.04.1968, Qupperneq 34
þvotti og frágangi. Gæta ber þess, þegar
saumað er í rúmfatnað, að garnið sem
saumað er með sé lielzt bómullargarn en
ekki úr reioni, sem ekki þolir suðuþvott.
Áður fyrr var algengt að liafa ýmiss kon-
ar útsaum, hekluð milliverk eða jafnvel
knippluð í koddaver og sængurver, en
þetta krefst nákvæmni og vandvirkni við
frágang á rúmfatnaðinum, því að slíkt
skraut nýtur sín illa nema það sé fallega
sléttað, belzt með strokjárni. Það liefur
því smám saman orðið sjaldgæfara nú á
öld liraðans og annríkisins.
Fáanleg eru ofin bönd með stöfum eða
nöfnum, og eru notuð sem merking á rúm-
fatnað, a. m. k. víða erlendis.
Þá er nú mjög í tízku mislitur rúm-
fatnaður. 1 verzlunum fást margs konar
efni í ýmsum fölum en fallegum litum, og
ýmist með satínvefnaði, damaskvefnaði og
jafnvel jacquardvefnaði. Stundum er sama
efnið ofið með fleiri en einni vefnaðargerð
og er þá oft mjög skrautlegt í sjálfu sér
og snoturt. Þessi efni þurfa ekki útsaum
eða hekluð milliverk, aðeins einfalda
merkingu. Þá eru einnig fáanleg lakaléreft
í ýmsum föluni litum, og fer vel að bafa
t. d. gulleit lök við sængurver og kodda-
ver sem eru úr gulröndóttu efni. Þessi mis-
litu rúmfataefni verða að sjálfsögðu að
vera lituð með lit, sem þolir suðuþvott, þá
eru þau þægileg í þvotti og frágangi.
ílr bœklingi nr. 2 jrá Statcns Huslioldningsrád,
Danmörku 1967.
UM BÆKUR
Frli. af bls. 12
Hugur og hönd
rit Heimilisiðnaðarfélags íslands.
Út er komið ársrit Heimilisiðnaðarfélags-
ins fyrir árið 1967 og er það í senn smekk-
legt og fróðlegt. Meðal greina er Jurtalit-
un, eftir Vigdísi Kristjánsdóttur og eru
þar gefnar uppskriftir af ýmsum jurtalit-
um. Á öðrum stað er kennt að orkera,
skattera og baldera, og uppskrift er af
prjónaðri skotthúfu við peysuföt svo nokk-
uð sé nefnt. 1 ritinu eru greinar um Júlí-
önu Sveinsdóttur listmálara og Elínu
Briem skólastjóra og siltbvað fleira er
þar, sem fróðlegt er að lesa. Ritnefndina
skipa þær Gerður Hjörleifsdóttir, Sólveig
Biiadóttir, Sigríður Halldórsdóttir og Vig-
dís Pálsdóttir. S. Th.
30
HÚSFKEYJAN