Vera - 01.07.1983, Blaðsíða 4
Drykkjuna orsaka alltaf einhver vandamál
eða erfiðleikar t.d. einmanakennd, óréttlát-
anleg meðferð á persónunni í ýmsum mál-
um. Þess vegna leitar viðkomandi persóna á
náðir áfengisinsþvíþá stundsem manneskj-
an er drukkin gleymast sorgirnar eða eru að
a.m.k. þolanlegri. Síðan þegar fram líða
stundir, hœttir persónan að mœta til vinnu
sinnar vegna eftirkastanna eða jafnvel að
hún sé ennþá undir áhrifum áfengis. Hver
vill hafa slíktfólk í vinnu? Enginn. Viðkom-
andi missir vinnuna. Eittenn vandamálið og
því enn meiri ástœða til að drekkja sér í á-
fenginu. Manneskjan hefur því ekki nóg
fjármagn til að borga húsaleigu og missir
þar af leiðandi húsnœði sitt. Enn meiri á-
hyggjur. Þáfara kunningjarnir að þreytast á
þessu og draga sig til baka. Persónan er lent
I algjörum vítahring sem hún á mjög erfitt
með að rífa sig úr ein. En með smá aðstoð,
húsaskjóli, einhverjum til að rœða við, getur
henni tekist að rífa sig upp úr eymdinni.
Og þú sérð virkilega enga ástœðu til þess
að styðja þessa sjúklinga?
Þú segir meira að segja sjálf í grein þinni
að ástand þjóðarinnar sé svo slæmt að það
geti leitt af sér, að allir gefist upp og detti
varanlega í það. Það er einmitt það sem
maður gerir til að flýja vandann: „Detta í
það“! Eða eins og skrifað stendur:
„Ef eitthvað liggur illa á þér
er ágætt ráð að drekka,
að fá sér vín, að fá sér öl,
að fá sér nóg að drekka:
Því synda hefur ei sorgin lært,
hún sekkur, — bara sekkur,
á henni dýpkar meir og meir
þvl meira sem þú drekkur."
Það er alveg rétt sem þú segir að það sé
nóg til af bágstöddu fólki á landinu okkar;
veiku, fötluðu, gömlu o.s.frv. En undir
hvaða hóp eigum við að flokka drykkju-
fólk? Clataða? Nei! Drykkjusýki er ekkert
annað en sjúkdómur og sem betur fer ekki
ólæknandi sjúkdómur.
Eru ekki til elliheimili og sjúkrahús á víð
og dreif um landið þar sem að reynt er að
hjálpa hinum gömlu ogþeim sjúku? Er ekki
einhver aðstaða fyrir fötluð börn í Öskju-
hlíðarskóla? Að vísu mœtti lengi bæta
hverja stofnun og málefni út af fyrir sig. En
hvað eru til mörg heimili fyrir drykkju-
sjúka...?
Ég meina að tími sé til kominn að eitthvað
verði til bragðs tekið.
Þú segir að það opinbera standi sig ekki
sem skyldi í að aðstoða fólk á hrakhólum.
Stuttu seinna hneykslast þú á því að:
„...þessir alþingismenn skuli leyfa sér að láta
mynda sig á sjálfu A Iþingi til að sýna að þeir
séu sammála um SÁA.“Eruþeir hinir sömu
Alþingismenn þá ekki einmitt að sýna vilja
sinn áþví að hjálpa hluta af þvífólki sem er
á „algjörum hrakhólum“? Eg meina, jú!
Með kærri kveðju
Islensk framfa/asinnuð
sveitakona í Þyskalandi.
Ur aftursæti
venjulegs fólksbfls
eru margar útgönguleiðir
fyrir böm
án þess að nota dvmar!
Öll viljum viö tryggja sem best öryggi barnanna
okkar í umferðinni. Við vitum að það er ekki
nóg að láta þau sitja í aftursætinu, heldur er
mikilvægt að þau séu örugglega skorðuð, hvort
sem það er í bílstól, burðarrúmi eða bílbelti.
Við höfum sérhæft okkur í öryggisbúnaði fyrir
börnin,-búnaði sem hentar í flestar gerðir fólks-
bifreiða.
Barnastólar
(fyrir 9 mán - 6 ára)
Barnapúðar
(fyrir 6-12 ára)
Burðarrúmsfestingar
(fyrir 0 - 0 mán)
Beltastóll
(fyrir 6 - 12 ára)
Fótgrindur fyrir beltastól
(fyrir 6-12 ára)
VELTIR HF
Simi 35200
4