Vera - 01.07.1983, Blaðsíða 25

Vera - 01.07.1983, Blaðsíða 25
SJÓSÓKN kvenna Nú á tímum virðast flestir halda að sjó- sókn sé aðeins á karla færi, og trúa því ekki að konur hafi áður fyrr róið til fiskjar, nema þá alveg sérstakar konur, eins og t.d. Þuríð- ur formaður. í sögunum sést að konur sóttu sjó og það virðist ekki hafa þótt mikil frétt á þeirri tíð að þær gerðu það. TVær konur eru a.m.k. nefndar sem réru til fiskjar og þriðja konan réri á báti úti fyrir ströndum íslands og varð fyrsta konan sem settist að á íslandi eftir því sem sögur herma. Að vísu er ekki sagt að hún hafi róið, en það gefur auga leið að hún hafi gert það, því að þau voru þrjú á báti, sem sleit frá Garðari Svavarssyni, þegar hann snéri aftur til Noregs eftir vetursetuna á Husavík: Náttfari og þræll og ambátt. Þau settust að í Náttfaravík og hefir ambáttin nafnlausa orðið húsfreyja á þeim bæ, fyrsta húsfreyjan á íslandi.'' Bjargey húsfreyja á Blámýri við ísafjarð- ardjúp réri til fiskjar í þrjú ár a.m.k. Það kom reyndar ekki til af góðu að hún gerði það. Maður hennar, Hávarður kallaður ís- firðingur, varð svo alvarlega hugsjúkur að hann sinnti ekki störfum. Ólaf son þeirra hjóna vógu óvinir ungan að árum. Hörm- uðu þau son sinn mjög. Hávarður, sem áður hafði verið hinn mesti kappi, var nú kominn á efri ár og haltur að auki, gat ekki komið hefndum fram. Næstu tólf mánuði lá Há- varður í rekkju og reis aldrei úr. „En Bjargey tók það ráð, að hún reri hvern dag með Þór- halli (frænda Hávarðar), en hún vann um nætur það, er hún þurfti“. Bjargeyju tókst að koma karli sinum á fætur til að hefna sonar síns og heimta bætur fyrir hann, en sú tilraun mistókst og aftur lá Hávarður í hvílu sinni í 12 mánuði. Og enn misheppnaðist til- raun til hefndar. „Bjargey hélt hinu sama fram um athöfn sína, að hún réri á sjó hvern dag með Þórhalli“. Þá er Hávarður hafði legið þrenna 12 mánuði í rekkju, var með öllu þrotin þolinmæði Bjargeyjar, ekki síst af því að Hávarður heldur því fram að sér hafi ekki komið dúr á auga í þessi þrjú ár. Hún segir það allmikla lygi, og nú stenst hann ekki stóryrtar eggjanir hennar, tekst að hefna sonarins og verður heill á sinni.2' Athyglisverð eru orð sagnaritara: „hún réri hvern dag.. en hún vann um nætur það, er hún þurfti“. Hann hefir munað að matseld og búverk gera sig ekki sjálf. Bændur til forna, þeir er þingfararkaup áttu að greiða, voru skyldugir til að fara með Nokkrar glefsur úr IX kafla í óprentaðri bók um vinnu kvenna á Islandi um aldaraðir húskarla sína (að smalamönnum undan- skyldum) til skipsdráttar, er skip komu af hafi. Kæmu menn ekki til skipsdráttar varð- aði það sektir. Erfitt hefir verkið þótt, því svo er kveðið á í þjóðveldislögunum í Grá- gás: „Nú koma menn til skipsdráttar og firra þeir sig útlegð (sekt) ef þeir taka á festum þrisvar af öllu afli svo að stýrimenn eru tilbúnir".3) Skipsdráttur eða framsetning skips hefir sennilega almennt talist karlmannsverk, enda er talað um húskarla í lögunum. Flóa- manna saga greinir þó frá atburði þar sem konur voru við skipsdrátt. Ásgrímur Elliða- Grímsson var höfðingi mikill og farmaður og átti skip í ferðum. Hann vildi ekki greiða skiptoll, sem honum bar, og átti því í deilum við landeiganda, Þorgils örrabeinsstjúp sem rétt átti á hafnartolli: „Um vorið voru menn kvaddir af Ásgrími til skipsdráttar, og kom fjöldi manns. Pyttir voru um sand- ana víða og voru fullir með vatni, þó að fjaran væri Ásgrímur tók á festum í fremra lagi, og voru þar mest konur hjá honum, hann var í litklæðum, tóku nú fast á. Maður reið á landinu fyrir ofan, mikill vexti og hafði bol- öxi í hendi. Hann horfði á skipdrátt- inn. Ásgrímur eggjar nú fast, að menn herði sig vel. Og er Þorgils var kominn að flæðarpyttinum, sá hann, að Ásgrímur hélt á strengnum, hleyp- ur hann þá til og heggur strenginn, og verður afturhlaupið hart. og hrapar Ásgrímur í pyttinn og konurnar á hann ofan. Urðu öll klæðin Ásgríms vot og þrekkótt og svo hann sjálfur. Þetta þykir honum mikil svívirðing ger til sín, verður nú vís, hver gert hef- ur, og kvað þá Þorgils varla mega við svo búið skilja“. 4) Skipið hans Ásgríms Elliða-Grímssonar var hafskip, sem fjölda manns þurfti til að draga eða setja fram. Þótt söguritari virðist hafa gaman af því að segja frá hrakförum Ásgríms og að konurnar hafi dottið ofan á hann, ber ekki á því að hann undrist yfir því að konur komi til skipdráttar, enda nefna lögin ekki aðeins húskarla heldur einnig griðmenn. — Þó hefir það trúlega ekki verið alsiða, a.m.k. ekki á seinni öldum. En það bar þó við. Espólín segir frá bólunni sem gekk yfir landið á árunum 1707—1709, og varð nærri helmingi þjóðarinnar að aldur- tila. í Njarðvík lést „svo margt karlfólk að varla mátti telja... og urðu konur að setja upp skip og grafa dauða menn“.5) Að fara til sjós eða fara í verið þýðir ekki aðeins að fara ó sjó eða róa til fiskjar. Fleiri voru að starfi við fiskafla en þeir sem drógu fisk úr sjó. í landi voru bæði konur og karl- 25

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.