Vera - 01.07.1983, Blaðsíða 32
fytrn b£MÁ€Íórrivrwi
<j?ÍMG/ieœ>ia neMMrUi
Eins og bent var á í síðasta tbl. Veru, þá hafa konur margvíslegar
áhyggjur af útliti sínu og voru þá leidd rök að því að tískan og sú
l^venímynd sem ríkjandi er á hverjum tíma hafi ákaflega sterk itök
og áhrif í uppeldi og lífi kvenna. Flestöll vikublöð, sem ætluð eru
konum, flytja þeim ár eftir ár lesefni ekki aðeins um föt og tisku,
heldur einnig um mat og megrun. Við hlið nýrra mataruppskrifta,
sem eiga að endurnýja matreiðsluaðferðir húsmóðurinnar og þar
með efla fjölskylduhamingjuna eru megrunarsérfræðingarnir til-
búnir með nýjustu uppskriftina af megrunarkúrnum, sem á að
stuðla að því að konurnar passi upp á línurnar í freistingum elda-
mennskunnar. Þessi mótsögn á milli dekurs við matarlystina annars
vegar og baráttuna við aukakilóin og línurnar hins vegar getur vald-
ið mörgum konum stöðugum áhyggjum og togstreitu. Megrunarár-
átta kvenna er staðreynd, sem róttækustu kvennaframboðskonur
viðurkenna, en hún getur líka tekið á sig sjúklega mynd. Ein þeirra
er sú sem kölluð er á læknamáli Anorexia nervosa. Það er sjúkdóm-
ur sem aðallega hrjáir unglingsstelpur og ungar konur. Hann getur
einnig hrjáð konur á öðrum aldri, og fyrirfinnst einnig hjá körlum,
en er þó miklu sjaldgæfari meðal þeirra.
Árið 1979 kom út í Svíþjóð bók um þennan sjúkdóm, sem heitir
„Sjalvsvalt. Om anorexia nervosa och behovet av att förneka kropp-
32