Vera - 01.10.1983, Blaðsíða 12
Ævintýrakvendi. Orðið er neikvætt, því samkvæmt hefð-
um og venjum eiga konur að vera settlegar, halda sig innan
veggja heimilisins og vera fjölskyldunni til sóma í hvívetna.
Menn hafa alltaf verið hræddir við konur sem hafa farið sín-
ar eigin leiðir, slíkt raskar samfélagsgerðinni. í mannkyns-
sögunni segir fátt af ævintýrakonum eða konum sem gerðu
merka hluti. Það er ekki fyrr en á síðari árum eftir að farið
var að kanna sögu kvenna að slíkar kvinnur hafa verið
dregnar fram í dagsljósið eða minning þeirra rifjuð upp. Ein
slíkra var Flora Tristan. Hún tilheyrði þeim hópi hugsjóna-
fólks sem kenndur var við útópískan sósíalisma (nafngiftin
er kom frá Marx og Engels, en þeirtöldu hugmyndir þeirra
heldur óraunhæfar). Saga Floru Tristan er merkileg. Hún
reis upp gegn ríkjandi hefðum, skildi við manninn sinn,
ferðaðist alla leið til Perú í leit að föðurætt sinni, skrifaði
bækur og fór um til að ná eyrum þeirra sem hún vildi tala
við, en það var verkafólk Frakklands, karlar og konur sem
bjuggu við sára eymd.
12