Vera - 01.10.1983, Blaðsíða 14
Konur krefjast friðar
Föstudaginn 26. ágúst sl. lauk friðargöngu nor-
rænna kvenna frá New York til Washington. I tilefni
þess efndu íslenskar konur til útifundar á Lækjar-
torgi í Reykjavík undir heitinu Friðarfundur
kvenna.
Að fundinu stóðu konur úr Kvennalistanum,
Kvennaframboðinu, Alþýðubandalaginu, Alþýðu-
flokknum og Framsóknarflokknum, ásamt stjórn
Fóstrufélags ísiands.
Fundurinn sem var hinn fjölmennasti hófst á því
að hin alhressa söngsveit kvennaframboðsins söng 2
lög. Ávörp fluttu þær Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, Dalla Þórðardóttir, Sigrún Sturludóttir,
Guðrún Helgadóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Guð
björg Linda Rafnsdóttir og Auður Eir Vilhjálms-
dóttir. Fundastjóri var Kristín Kvaran. Fundinum
lauk síðan með því að söngsveitin tók lagið.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundinum:
„Friðarfundur kvenna haldinn 26. ágúst 1983
ályktar að skora á ríkisstjórn íslands að gera nú
þegar allt sem í hennar valdi stendur til að stuðla að
því, að kjarnorkuvopn verði afnumin í austri og
vestri, að ný kjarnorkuvopn verði ekki staðsett í
Evrópu, að Norðurlönd verði lýst kjarnorkuvopna-
laust svæði, að nú þegar verði stöðvaðar allar til-
raunir, framleiðsla og dreifing allra gerða kjarnoku-
vopna og að því gífurlega fjármagni sem nú rennur
til vopnasmíða verði varið til að tryggja fæðu og
atvinnu í heiminum“.
Hér á eftir birtast öll ávörpin utan ávarps séra
Döllu Þórðardóttur sem mun því miður hafa glat-
ast.